Forsíða  > Einstaklingar  > Afslættir, bætur og frádrættir  > Dagpeningar
Veftré   A- A+

Dagpeningar

Dagpeningar eru greiddir vegna tilfallandi ferðalaga launþega á vegum launagreiðanda utan fasts samningsbundins vinnustaðar. Þeim er ætlað að standa undir kostnaði launþegans vegna fjarveru frá heimili sínu, annars vegar vegna gistikostnaðar, ef um hann er að ræða, og hins vegar vegna fæðiskaupa og annars tilfallandi kostnaðar sem af ferðinni hlýst.

Á móti fengnum dagpeningum er launamönnum heimilt að færa frádrátt samkvæmt reglum fjármálaráðherra.

Athugið að leyfilegur frádráttur á móti dagpeningum, samkvæmt skattmati fjármálaráðherra, þarf ekki að vera sama fjárhæð og Ferðakostnaðarnefnd ákvarðar að greiða skuli starfsmönnum ríkisins vegna ferða á vegum launagreiðanda. Sé leyfilegur frádráttur lægri ber að skila staðgreiðslu af mismuninum.
Sjá nýjustu tilkynningu Ferðakostnaðarnefndar.

Dagpeningar á tekjuári

Á tekjuári þarf ekki að draga staðgreiðslu af dagpeningum, svo fremi að greiðslurnar séu ekki hærri en kveðið er á um í skattmati fjármálaráðherra. Séu þær hærri ber að draga staðgreiðslu af mismuninum.

Skilyrði fyrir því að halda megi dagpeningagreiðslum utan staðgreiðslu eru að fyrir liggi hjá launagreiðanda gögn um tilefni ferðar og fjölda dvalardaga, fjárhæð ferðapeninga eða dagpeninga eða eftir atvikum reikningar frá þriðja aðila, svo og nafn og kennitala launamanns.

Dagpeningar á framtali

Á framtal ber að færa fengna dagpeninga og frádrátt á móti þeim. Gera skal grein fyrir frádrættinum á eyðublaðinu Dagpeningar RSK 3.11, sem fylgja á framtalinu.

Dagpeningar í staðgreiðslu, skattmat fjármálaráðherra eins og það er núna.

Matsreglur um frádrátt manna með atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi.

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook