Annar frádráttur
Úr skattmati 2012
Frádráttur vegna fósturs barna.
Ef framteljandi hefur fengið greiðslur vegna barna sem sett eru í fóstur hjá honum af barnaverndarnefnd eða meðferðarstofnunum ber að tekjufæra þær greiðslur. Færa má til frádráttar sannanlegan kostnað sem beint tengist þessum greiðslum. Einnig má færa, í stað sannanlegs kostnaðar, frádrátt sem svarar til tvöfalds barnalífeyris vegna hvers barns, en þó aldrei hærri fjárhæð en greiðslunum nemur. Þessi regla á þó ekki við þegar um er að ræða reglubundna starfsemi sem felst í að taka börn í fóstur frá barnaverndarnefnd eða meðferðarstofnunum. Þá skal telja greiðslur til tekna sem rekstrartekjur og rekstrarkostnað til frádráttar eftir almennum reglum þar um.
Frádráttur vegna dagvistunar eða sumardvalar barna.
Greiðslur vegna dagvistunar barna og sumardvalar á að gera upp sem rekstrartekjur. Til frádráttar má færa rekstrarkostnað eftir almennum reglum þar um. Þó má í stað frádráttar sem byggist á sannanlegum kostnaði færa til frádráttar 175 kr. fyrir hvern veittan morgunverð eða síðdegishressingu og 350 kr. fyrir hvern veittan hádegis- eða kvöldverð. Vegna 12 ára barna og eldri er þó heimilt að færa til frádráttar 235 kr. fyrir hvern veittan morgunverð eða síðdegishressingu og 470 kr. fyrir hvern hádegisverð eða kvöldverð. Slíkur frádráttur má þó aldrei vera hærri en innheimt var fyrir fæði samkvæmt gjaldskrá.
Í stað sannanlegs viðhaldskostnaðar húsnæðis og húsbúnaðar, kostnaðar vegna hreinlætisvara, föndurvara, bóka, bifreiðakostnaðar, gæsluvallagjalda o.þ.h. má færa til frádráttar á móti öðrum tekjum en vegna fæðissölu, 25% af þeim tekjum. Ef um sumardvöl er að ræða má færa til frádráttar 20% af tekjum án fæðissölu, enda sé um gistingu að ræða. Slíkur frádráttur má þó aldrei vera hærri fjárhæð en innheimt er vegna þessara liða samkvæmt gjaldskrá.
Frádráttur hjá stuðningsfjölskyldum fatlaðra barna.
Greiðslur til stuðningsfjölskyldna fatlaðra barna teljast að fullu til skattskyldra tekna en á móti má færa beinan kostnað vegna umönnunar og dvalar barnanna. Í stað sannanlegs kostnaðar má færa frádrátt eftir sömu reglum og samkvæmt kafla 5 að framan. Sé um kostnað að ræða sem leiðir af sérþörfum barnsins vegna fötlunar má færa þann kostnað til frádráttar, auk frádráttar samkvæmt skattmati þessu, enda sé gerð sérstök grein fyrir honum.
Frádráttur vegna vistunar aldraðra og öryrkja.
Greiðslur vegna vistunar aldraðra eða öryrkja í heimahúsum teljast að fullu til skattskyldra tekna en á móti má færa beinan kostnað sem af vistuninni leiðir. Í stað sannanlegs kostnaðar að færa til frádráttar á móti greiðslum fjárhæð sem svarar til tvöfalds ellilífeyris (grunnlífeyris), en þó aldrei hærri fjárhæð en nemur greiðslunum. Þessi regla á þó ekki við ef um er að ræða atvinnurekstur. Þá skal telja greiðslur til tekna sem rekstrartekjur og rekstrarkostnað til frádráttar eftir almennum reglum þar um.
Fæðisfrádráttur hjá launagreiðanda.
Launagreiðendur sem ekki færa sérreikning yfir fæðiskostnað launþega sinna mega draga frá tekjum sínum af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi 1.121 kr. fyrir hvern heilan fæðisdag sem þeir láta launþegum sínum í té fæði án endurgjalds. Sama gildir um fæði sem launagreiðandi lætur fjölskyldu launþegans í té án endurgjalds, enda séu hlunnindi þessi talin launþega til tekna, sbr. kafla 2.7.

