Forsíða  > Einstaklingar  > Afslættir, bætur og frádrættir  > Dagpeningar  > Í staðgreiðslu
Veftré   A- A+

Dagpeningar - skattmat 2012

Almennt

Athugið að leyfilegur frádráttur á móti dagpeningum, samkvæmt skattmati fjármálaráðherra, þarf ekki að vera sama fjárhæð og Ferðakostnaðarnefnd ákvarðar að greiða skuli starfsmönnum ríkisins vegna ferða á vegum launagreiðanda. Sé leyfilegur frádráttur lægri ber að skila staðgreiðslu af mismuninum.
Sjá nýjustu tilkynningu Ferðakostnaðarnefndar

Frádráttur á móti dagpeningum.

Frádráttur á móti dagpeningum sem launþegi hefur fengið greidda frá launagreiðanda sínum er heimill, enda hafi dagpeningarnir verið greiddir vegna tilfallandi ferða á vegum launagreiðandans utan venjulegs vinnustaðar og launþeginn sannanlega greitt gistingu samkvæmt reikningi og fæði og annan ferðatengdan kostnað, svo sem fargjöld að og frá flugvöllum. Frádrátturinn er jafnframt háður því skilyrði að fyrir liggi í bókhaldi launagreiðanda, sem og hjá launþega, gögn um tilefni ferðar og fjölda dvalardaga, fjárhæð ferðapeninga eða dagpeninga, svo og nafn og kennitala launþega.

Frádráttur á móti dagpeningum innanlands.

jan. -
Fyrir gistingu og fæði í einn sólarhring Kr. 20.800
Fyrir gistingu einn sólarhring Kr. 11.100
Fyrir fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag Kr. 9.700
Fyrir fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag Kr. 4.850

Frádráttur á móti dagpeningum erlendis. (Í SDR)

Frá jan -

Almennir dagpeningar
Dagpeningar vegna
þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa.
Gisting Annað Samtals Gisting Annað Samtals
Flokkur 1: SDR 187 125 312 120 80 200
Moskva, Singapúr, New York borg, Tókýó, Washington DC

Flokkur 2:

SDR

159

106

265

102

67

169
Dublin, Istanbúl, Japan (nema Tókýó), London, Lúxemborg, Mexíkóborg, Seúl

Flokkur 3:

SDR

141

94

235

90

60

150
Amsterdam, Aþena, Bandaríkin (nema New York borg og Washington DC), Helsinki, Barselóna, Brussel, Genf, Hong Kong, Kanada, Kaupmannahöfn, Madrid, Osló, París, Róm, Stokkhólmur, Vín

Flokkur 4:

SDR

125

83

208

80

54

134
Annars staðar

Sé dvalið skemur en 3 vikur á sama stað er heimilt að draga frá óskerta almenna dagpeninga. Sé dvalið 3 vikur eða lengur á sama stað er heimilt að draga frá óskerta almenna dagpeninga fyrstu vikuna en síðan þjálfunar-, náms- eða eftirlitsdagpeninga. Fari dvöl erlendis vegna þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa fram úr 3 mánuðum skal frádráttur vegna þjálfunar-, náms- og eftirlitsdagpeninga lækka um fjórðung þann tíma sem dvalið er lengur en 3 mánuði.

Hafi gisting launþega verið greidd samkvæmt reikningi er honum einungis heimilt að draga fjárhæð samsvarandi „Annað“ frá fengnum dagpeningum.

Hafi starfsmaður fengið greidda dagpeninga fyrir samfellda dvöl 30 daga eða lengur skulu viðmiðunarfjárhæðir hér að framan lækka um 10 SDR fyrir hvern dag sem dagpeningagreiðslur fara fram yfir 30 daga samfellt. Gildir það bæði varðandi almenna dagpeninga erlendis og dagpeninga vegna þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa.

Frá tekjum manna af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi er heimilt, í stað þess að ferðakostnaður annar en gisti- og fæðiskostnaður erlendis sé dreginn frá samkvæmt reikningi, að draga frá fasta fjárhæð, sem hæst getur orðið 30% af þeim hluta dagpeninga, sbr. framangreint, sem er vegna annars kostnaðar en gistingar.

Frádráttur vegna gistingar og annars í SDR á dag á móti dagpeningum erlendis verður sem hér segir ef dvalið er 3 vikur eða lengur:

Dagur 1 - 7 Dagur 8 - 30 Dagur 31 –
3 mánuðir
Á dag umfram
3 mánuði
Flokkur 1 312 200 190 143
Flokkur 2 265 169 159 119
Flokkur 3 235 150 140 105
Flokkur 4 208 134 124 93


3.3 Vinna erlendis.

Sé dvöl launþega erlendis vegna tímabundinna almennra starfa þar á vegum íslensks launagreiðanda eiga reglur í tölulið 3.2 um frádrátt á móti dagpeningum vegna ferðalaga ekki við en honum er þá heimilt að draga frá sérgreindum greiðslum, sem hann kann að hafa fengið vegna uppihalds, fjárhæð sem hæst getur orðið 30 SDR á dag allt að einu ári. Skiptir ekki máli í þessu sambandi þó launþegi komi í stuttar heimsóknir hingað til lands á umræddu tímabili.

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook