Forsíða  > Einstaklingar  > Afslættir, bætur og frádrættir  > Vaxtabætur  > Fyrirframgreiðsla
Veftré   A- A+

Vaxtabætur - fyrirframgreiðsla

Íbúðarkaup 1999 og síðar

Heimilt er að greiða þeim sem kaupa eða hefja byggingu íbúðarhúsnæðis 1999 og síðar vaxtabætur fyrirfram.

Ákvörðun fyrirframgreiðslu

Fyrirframgreiðslan er reiknuð eftir sömu reglum og gilda um útreikning vaxtabóta í álagningu nema hvað miðað er við ársfjórðung í staðinn fyrir heilt ár. Hámark vaxtabóta er fjórðungur af hámarks vaxtabótum fyrir heilt ár. Miðað er við greidda og gjaldfallna vexti í hverjum ársfjórðungi en þó ekki hærri fjárhæð en sem nemur fjórðungi hámarks vaxtagjalda miðað við heilt ár. Skerðing vegna tekna er miðuð við fjórðung launatekna umsækjanda á síðustu 12 mánuðum samkvæmt staðgreiðsluskrá og upplýsingar um tekjur utan staðgreiðslu og eignir samkvæmt síðasta framtali.

Ákvörðun skattstjóra um fyrirframgreiðslu er kæranleg til ríkisskattstjóra.

Fyrirframgreiðsla vaxtabóta er greidd ársfjórðungslega, fjórum mánuðum eftir lok hvers ársfjórðungs.

  • Vaxtabætur fyrir 1. ársfjórðung (jan., feb., mars,) eru greiddar 1. ágúst
  • Vaxtabætur fyrir 2. ársfjórðung (apr., maí, júní,) eru greiddar 1. nóvember
  • Vaxtabætur fyrir 3. ársfjórðung (júlí, ág., sept.,) eru greiddar 1. febrúar
  • Vaxtabætur fyrir 4. ársfjórðung (okt., nóv., des.) eru greiddar 1. maí

Umsóknin RSK 3.14

Sækja skal um fyrirframgreiðslu vaxtabóta til skattstjóra á eyðublaðinu RSK 3.14. Auk þess sem hægt er að prenta eyðublaðið af vef ríkisskattstjóra liggur það frammi hjá fasteignasölum, lánastofnunum og hjá skattstjórum.

Þegar kaup hafa átt sér stað eða bygging er hafin er hægt að sækja um fyrirframgreiðslu vegna þeirra lána sem stofnað hefur verið til, sbr. það sem kemur fram hér á eftir. Sótt er um í eitt skipti og eftir það ákvarðast fyrirframgreiðslan sjálfkrafa á grundvelli þeirrar umsóknar. Einungis þarf að senda nýja umsókn ef stofnað er til nýrra lána.

Umsóknarfrestur

Frestur til að sækja um fyrirframgreiðslu vaxtabóta er í einn mánuð eftir að ársfjórðungi lýkur.

Vegna 1. ársfjórðungs er umsóknarfrestur til 30. apríl
Vegna 2. ársfjórðungs er umsóknarfrestur til 31. júlí
Vegna 3. ársfjórðungs er umsóknarfrestur til 31. október
Vegna 4. ársfjórðungs er umsóknarfrestur til 31. janúar

Umsóknum er skilað til skattstjóra í því umdæmi þar sem umsækjandi er framtalsskyldur. Berist umsókn síðar er hún afgreidd með umsóknum næsta ársfjórðungs.

Nauðsynleg gögn og upplýsingar

Við útfyllingu umsóknar er nauðsynlegt að allar upplýsingar séu við höndina. Ófullnægjandi útfylling getur þýtt tafir á úthlutun fyrirframgreiðslu. Eftirfarandi þarf að hafa í huga:

Upplýsingar um skuldareiganda (lánveitanda) þurfa að vera skýrar. Greina þarf frá bankanúmeri, númeri höfuðbókar og númeri láns. Þessar upplýsingar eru nauðsynlegar fyrir lánastofnunina og séu þær ekki rétt útfylltar getur skattstjóri ekki sótt upplýsingar til lánastofnana. Í flestum tilvikum koma þessar upplýsingar fram á greiðslukvittunum.

Þegar um ný lán er að ræða þurfa að koma fram upplýsingar um það hvenær lánið var tekið (fyrsta vaxtadag), fjárhæð lánsins og fyrsta gjalddaga.

Jafnframt þarf að gefa upplýsingar um lántökukostnað, þinglýsingar- og stimpilgjöld, afföll eða yfirverð. Þessar upplýsingar verða ekki sóttar til lánastofnana og verður því umsækjandi að gera grein fyrir þeim á eyðublaðinu.

Ef um yfirtekin lán er að ræða þarf að koma fram hvenær lánið var upphaflega tekið, upplýsingar um eftirstöðvar lánsins á yfirtökudegi bæði með og án vísitölu og fyrsti gjalddagi eftir yfirtöku. Bent skal á að fyrirframgreiðsla reiknast ekki fyrr en viðkomandi lánastofnun hefur verið tilkynnt um yfirtökuna.

Gögn sem fylgja skulu umsókn

Nauðsynlegt er að eftirfarandi gögn fylgi með umsókninni:

  • Ljósrit af kaupsamningi
  • Ljósrit af skuldabréfi
  • Kvittanir þar sem fram koma lántökugjald, þinglýsingarkostnaður og stimpilgjöld af lánum
  • Kvittanir vegna síðustu greiðslu af yfirteknum lánum ásamt ljósriti af vaxtauppgjöri milli kaupanda og seljanda
  • Þeir sem kaupa búseturétt þurfa að skila staðfestingu á kaupunum
  • Ef um byggingu á íbúðarhúsnæði er að ræða þarf að leggja fram ljósrit af staðfestingu á greiðslu gatnagerðargjalda, ljósrit af verksamningi eða önnur gögn sem staðfesta hvenær bygging var hafin

Lán sem veita rétt til fyrirframgreiðslu

Þau lán sem veita rétt til fyrirframgreiðslu eru fasteignaveðlán sem tekin eru til öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Það á jafnt við um ný lán og yfirtekin lán.

Fyrirframgreiðsla reiknast frá þeim mánuði þegar greitt er af láni í fyrsta skipti. Þegar stofnað er til nýrra lána kemur strax til greiðslu lántökukostnaðar og reiknast fyrirframgreiðslan þá frá því að lánið er afgreitt. Fyrirframgreiðsla vegna yfirtekinna lána reiknast frá þeim tíma sem greitt er af láninu eftir að viðkomandi lánastofnun hefur verið tilkynnt um yfirtökuna. Því er nauðsynlegt að tilkynna yfirtöku láns strax til að koma í veg fyrir tafir á greiðslu vaxtabóta.

Upplýsingar sóttar til lánastofnana

Einungis lán sem lánastofnanir veita skattyfirvöldum upplýsingar um, veita rétt til fyrirframgreiðslu vaxtabóta. Þegar fyrir liggur undirrituð umsókn um fyrirframgreiðslu vaxtabóta, sækir skattstjóri þær upplýsingar til lánastofnana sem nauðsynlegar eru til að ákvarða fyrirframgreiðsluna.

Uppgjör og álagning

Fyrirframgreiðsla vaxtabóta er bráðabirgðagreiðsla. Í fyrirframgreiðslu er einungis tekið tillit til vaxtagjalda af fasteignaveðlánum og einungis tekið mið af greiddum vaxtagjöldum. Þegar kemur að álagningu er hins vegar ekki litið til þess hvort vextir hafi verið greiddir heldur er nóg að þeir hafi verið gjaldfallnir. Sama á við um önnur lán sem tekin hafa verið til öflunar íbúðarhúsnæðis en þau sem veittu rétt til fyrirframgreiðslu, þau koma til útreiknings vaxtabóta í uppgjöri samkvæmt framtali. Við álagningu samkvæmt skattframtali eru vaxtabætur reiknaðar og gerðar upp ef um of- eða vangreiðslu hefur verið að ræða.

Vaxtabótum og fyrirframgreiddum vaxtabótum er skuldajafnað á móti ógreiddum opinberum gjöldum og á móti gjaldföllnum afborgunum og vöxtum af lánum Íbúðalánasjóðs.

Nánari upplýsingar

Allar nánari upplýsingar um fyrirframgreiðslu vaxtabóta má fá hjá skattstjórum og hjá ríkisskattstjóra.

Ítarefni

Annað

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook