Vaxtabætur í álagningu 2012
vegna vaxtagjalda árið 2011
Hér er að finna reiknivél en með því að tilgreina fjölskyldustöðu og skrá tekjustofn, eignastofn, vaxtagjöld af lánum og eftirstöðvar þeirra í árslok er hægt að reikna út vaxtabætur.
Stofn til útreiknings
Vaxtagjöld til útreiknings vaxtabóta er sú fjárhæð sem lægst er af 1), 2) og 3).
- Vaxtagjöld samkvæmt reit 87 og/eða 166 á framtali.
- 7% af eftirstöðvum skulda samkvæmt reit 41, 45 eða 167.
- Hámark vaxtagjalda, sem er:
Hjá einhleypingi kr. 800.000 Hjá einstæðu foreldri kr. 1.000.000 Hjá hjónum og sambúðarfólki kr. 1.200.000
Tekjutenging
Frá vaxtagjöldum skv. framansögðu dragast 8% af tekjustofni* og er mismunurinn reiknaðar vaxtabætur.
Eignatenging
| Hjá einhleypingi/einst. foreldri | kr. | 4.000.000 |
| Hjá hjónum/sambúðarfólki | kr. | 6.500.000 |
| Hjá einhleypingi/einst. foreldri | kr. | 6.400.000 |
| Hjá hjónum/sambúðarfólki | kr. | 10.400.000 |
| Fyrir einhleyping | kr. | 400.000 |
| Fyrir einstætt foreldri | kr. | 500.000 |
| Fyrir hjón og sambúðarfólk | kr. | 600.000 |
Vaxtabætur skiptast jafnt á milli hjóna/sambúðarfólks. Vaxtabætur sem eru lægri en 5.000 kr. á mann falla niður.
* Tekjustofn til útreiknings vaxtabóta er frábrugðinn tekjuskattsstofni að því leyti að fjármagnstekjur eru meðtaldar og laun frá alþjóðastofnunum sem ekki eru skattlögð koma inn í tekjustofn til útreiknings á vaxtabótum.
Sérstök vaxtaniðurgreiðsla
Til viðbótar við hefðbundnar vaxtabætur kemur sérstök niðurgreiðsla vaxta.
Vaxtaniðurgreiðslan er 0,6% af skuldum vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota, þó að hámarki kr. 200.000 hjá einhleypingi og kr. 300.000 fyrir hjón, sambúðarfólk og einstæða foreldra. Niðurgreiðslan, að viðbættum vaxtabótum, getur þó ekki orðið hærri en vaxtagjöld ársins.
Vaxtaniðurgreiðslan er ekki tekjutengd, en eignatengd þannig að niðurgreiðsla til einstaklinga byrjar að skerðast við nettóeign kr. 10.000.000 og fellur niður þegar eignin nær kr. 20.000.000.
Vaxtaniðurgreiðsla til hjóna, sambúðarfólks og einstæðra foreldra byrjar að skerðast við nettóeign kr. 15.000.000 og fellur niður þegar eignin nær kr. 30.000.000.
Vaxtaniðurgreiðsla er greidd út í tvennu lagi, 1. maí og 1. ágúst.
Flutningur milli landa
Hjá þeim sem ekki eru búsettir á Íslandi allt árið eru vaxtabætur hlutfallaðar samkvæmt dvalartíma á Íslandi. Þetta á þó ekki við um þá sem fara utan til náms á háskólastigi og halda skattalegri heimilisfesti á Íslandi.
