Forsíða  > Einstaklingar  > Framtal og álagning  > Álagningarseðill
Veftré   A- A+

Álagningarseðill 2010

Vegna tekjuársins 2009

Skattstofnar og útreikningur

Tekjuskattur og útsvar

Tekjuskattur er 24,1% af tekjuskattsstofni, sbr. 2. kafla skattframtals. Útsvar er reiknað af sama stofni og er hundraðs hluti þess ákvarðaður af sveitarfélögum. Á álagningarseðli kemur fram sveitarfélag og hundraðs hluti útsvars.

Frá þannig reiknuð um tekjuskatti og útsvari dregst persónuafsláttur og eftir atvikum sjómannaafsláttur, sbr. upplýsingar um skattafslátt hér á eftir.

Hátekjuskattur

Til viðbótar við almennan tekjuskatt og útsvar er lagður sérstakur 8% tekjuskattur (hátekjuskattur) á tekjuskattsstofn umfram 4.200.000 kr. á tímabilinu júlí-desember 2009.

Skattur á fjármagnstekjur

Stofn til skatts á fjármagnstekjur er vaxtatekjur, arður, leigu tekjur og sölu hagnaður, sbr. 3. kafla skattframtals. Lagður er 10% tekjuskattur á allar fjármagnstekjur ársins 2009. Til viðbótar er lagður 5% skattur á fjármagnstekjur tímabilsins júlí-desember, sem eru umfram kr. 250.000 á mann. Frítekjumark manna vegna leigutekna á tímabilinu júlí-desember er 30%. Hvorki útsvar né önnur gjöld eru lögð á fjármagns tekjur. Frá reiknuðum skatti á fjármagnstekjur dragast 10/36 af þeim persónuafslætti, sem ekki hefur verið nýttur með öðrum hætti.

Auðlegðarskattur

Á nettóeign einhleypings umfram 90 milljónir kr. og nettóeign hjóna og samskattaðs sambúðarfólks umfram 120 milljónir kr. er lagður 1,25% auðlegðarskattur.

Gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra

Gjaldið er 8.400 kr. á hvern mann. Undanþegnir gjaldinu eru menn með tekjuskattsstofn 1.361.468 kr. eða lægri, og þeir sem eru 70 ára og eldri í árslok 2009, svo og elli- og örorkulífeyrisþegar sem dvelja á dvalar- og hjúkrunarheimilum.

Útvarpsgjald

Gjaldið er 17.200 kr. á hvern mann. Undanþegnir gjaldinu eru menn með tekjuskattsstofn 1.361.468 kr. eða lægri, og þeir sem eru 70 ára og eldri í árslok 2009, svo og elli- og örorkulífeyrisþegar sem dvelja á dvalar- og hjúkrunarheimilum.

Slysatrygging við heimilisstörf

Iðgjald vegna slysatryggingar við heimilisstörf er 400 kr.

Skattafsláttur

Persónuafsláttur

Persónuafsláttur er 506.466 kr.

Persónuafsláttur er fyrst dreginn frá reiknuð um tekjuskatti. Óráðstafaður persónuafsláttur gengur síðan til greiðslu á útsvari. Þegar um samskattaða einstaklinga er að ræða er þeim hluta persónuafsláttarins, sem enn er óráðstafað, bætt við persónuafsláttmaka. Af því sem þá kann að vera óráðstafað ganga 10/36 til greiðslu skatts á fjármagnstekjur, en fellur að öðru leyti niður.

Sjómannaafsláttur

Sjómannaafsláttur á árinu 2009 var 987 kr. á dag. Sjómannaafsláttur er dreginn frá reiknuðum tekjuskatti á undanpersónuafslætti. Hann getur mestur orðið jafnhár reiknuðum tekjuskatti af launum fyrir sjómannsstörf. Sjómannaafsláttur sem ekki nýtist á móti tekjuskatti fellur niður.

Vaxtabætur

Þeir sem greiða vaxtagjöld af lánum, sem tekin hafa verið vegna kaupa eða byggingar á íbúðarhúsnæði til eigin nota, eiga rétt á vaxtabótum.

Vaxtagjöld til útreiknings vaxtabóta er sú fjárhæð sem lægst er af a), b) og c).

  1. Vaxtagjöld samkvæmt reit um 87 og/eða 166 á framtali.
  2. 7% af eftirstöðvum skulda samkvæmt reit um 41, 45 eða 167 á framtali.
  3. Hámark vaxtagjalda. Hjá einhleypingi er það 554.364 kr., hjá einstæðu foreldri 727.762 kr. og hjá hjónum, sambúðarfólki eða pari í staðfestri samvist 901.158 kr.

Frá vaxtagjöldum samkvæmt framan sögðu eru dregin 6% af tekjum. Hjá hjónum, sambúðarfólki eða pari í staðfestri samvist er miðað við saman lagðar tekjur beggja. Mismunurinn er vaxtabætur sem eru skertar hlutfallslega fari eignir að frá dregnum skuldum fram úr:

  • 7.119.124 kr. hjá ein hleyp ingi eða ein stæðu for eldri uns þær falla niður við 60% hærri mörk eða 11.390.599 kr.
  • 11.390.599 kr. hjá hjón um, sam búð ar fólki eða pari í stað festri sam vist uns þær falla niður við 60% hærri mörk eða 18.224.958 kr.

Hámark vaxtabóta fyrir einhleyping er 246.944 kr., fyrir einstætt foreldri 317.589 kr. og fyrir hjón, sambúðarfólk eða par í staðfestri samvist 408.374 kr.

Vaxtabætur sem eru lægri en 900 kr. á mann falla niður.

Lækkun vaxtabóta getur stafað af hækkun fasteignamats á milli ára.

Fyrirfram ákvarðaðar vaxtabætur

Endanleg fjárhæð vaxtabóta er byggð á framtali og ákvörðuð við álagningu. Á innheimtuseðli hafa fyrirfram ákvarðaðar vaxtabætur verið dregnar frá endanlegri fjárhæð.

Fyrirfram ákvarðaðar vaxtabætur vegna vaxtagjalda á árinu 2010 koma ekki fram á álagningarseðli 2010.

Barnabætur

Barnabætur eru greiddar framfærendum barna innan 18 ára aldurs, sem heimilisföst eru hér á landi. Þær eru greiddar í fyrsta sinn árið eftir að barn fæðist og í síðasta sinn árið sem 18 ára aldri er náð.

Barnabætur með börn um yngri en 7 ára eru 61.191 kr. Til viðbótar greiðast tekjutengdar barnabætur með öllum börn um sem hér segir:

Hjón og sambúðarfólk:
Með fyrsta barni152.331 kr.
Með hverju barni umfram eitt181.323 kr.
Einstæðir foreldrar:
Með fyrsta barni253.716 kr.
Með hverju barni umfram eitt260.262 kr.

Tekjutengdar barnabætur eru skertar með hliðsjón af tekjum framfæranda um fram 3.600.000 kr. hjá hjónum, sambúðarfólki eða pari í staðfestri samvist og 1.800.000 kr. hjá einstæðu foreldri. Skerðingin er 2% af tekjum umfram mörkin ef um er að ræða eitt barn, 5% ef þau eru tvö og 7% ef þau eru þrjú eða fleiri.

Ekki er heimilt að skuldajafna barnabótum á móti opinberum gjöldum.

Fyrirfram ákvarðaðar barnabætur

Endanleg fjárhæð barnabóta er byggð á framtali og ákvörðuð við álagningu. Á innheimtuseðli hafa fyrirfram ákvarðaðar barnabætur verið dregnar frá endanlegri fjárhæð.

Skatt hlut fall barna

Af launatekjum barna, sem ekki hafa náð 16 ára aldri á tekjuárinu, er reiknaður 4% tekjuskattur og 2% útsvar af fjárhæð sem er umfram 100.745 kr. Börn eiga ekki rétt á persónuafslætti.

Tryggingagjald og gjöld lögð á stofn til tryggingagjalds

Gjaldstofn og álagning

Tryggingagjald og önnur gjöld á sama stofn eru lögð á launagreiðendur. Gjaldstofninn er öll greidd laun, reiknað endurgjald, þóknanir, hlunnindi, mótframlag í lífeyrissjóð og aðrar hliðstæðar greiðslur samkvæmt III. kafla laga um tryggingagjald. Gjald í Ábyrgðasjóð launa vegna gjaldþrota er lagt á samkvæmt lögum um þann sjóð og markaðsgjald samkvæmt lögum um Útflutningsráð Íslands. Gjaldþrepið er 5,34% af stofni janúar-júní 2009, en 7% af stofni júlí-desember 2009. Gjaldskyldir eru allir þeir sem greiða laun eða reikna sér endurgjald.

Hundraðshluti álagðra gjalda á stofn til tryggingagjalds skiptist þannig:

jan.-júníjúlí-des.
Almennt tryggingagjald 4,54% 4,54%
Atvinnutryggingagjald 0,65% 2.21%
Gjald í Ábyrgðasjóð launa v/gjaldþrota 0,10% 0,20%
Markaðsgjald 0,05% 0,05%
Samtals hundraðshluti til álagningar 5,34% 7,00%
 
Viðbót vegna slysatryggingargjalds sjómanna við fiskveiðar 0,65% 0,65%

Bændur, smábátaeigendur og vörubifreiðastjórar greiða atvinnutryggingagjald til Tryggingasjóðs sjálfstætt starfandi einstaklinga.

Tryggingagjald er lagt á laun samkvæmt launaframtali. Þar ber að telja fram öll tryggingagjaldsskyld laun, reiknað endurgjald, þóknanir og hlunnindi ársins 2009, auk mótframlags í lífeyrissjóð.

Stofn til tryggingagjalds vegna reiknaðs endurgjalds getur aldrei verið lægri en 748.224 kr. hjá manni í fullu starfi við eigin atvinnurekstur.

Innheimta - staðgreiðsla tryggingagjalds

Á staðgreiðslu ári skal greiða tryggingagjald mánaðarlega.

Á árinu 2009 var þó heimilt að skila tryggingagjaldi af gjaldstofni í fyrsta sinn í þeim mánuði, sem stofninn náði 504.000 kr. og síðan mánaðarlega eftir það, ef gjaldstofn hafði til þess tíma verið lægri að meðaltali en 42.000 kr. á mánuði. Tryggingagjald, sem ekki er staðgreiðsluskylt, gjaldfellur 1. ágúst.

Gjaldstofn utan staðgreiðslu er m.a. reiknað endurgjald lægra en 215.000 kr., reiknað endurgjald barna og laun og hlunnindi, sem undanþegin eru staðgreiðslu opinberra gjalda.

Dánarbú

Álagning á dánarbú fer eftir þeim reglum sem gilda um lögaðila og fer fram í lok október, um leið og lagt er á aðra lögaðila.

Kærufrestur

Frestur til að kæra álagningu opinberra gjalda, þ.m.t. tryggingagjalds, er 30 dagar talið frá dagsetningu auglýsingar ríkisskattstjóra um að álagningu sé lokið. Auglýsingin var dagsett 28. júlí og skal kæra hafa borist skattstjóra í síðasta lagi 27. ágúst 2010. Kæra skal vera skrifleg og studd nauðsynlegum gögnum. Unnt er að senda kæru rafrænt á þjónustusíðu skattur.is.

Staðgreiðsluyfirlit

Á innheimtuseðlum eru birtar upplýsingar um innborgaða staðgreiðslu sundurliðaða eftir launagreiðendum. Ef upplýsingum ber ekki saman við launaseðla er launamönnum bent á að snúa sér til launagreiðanda varðandi leiðréttingu. Sé afdregin staðgreiðsla ekki leiðrétt þannig, geta menn snúið sér til ríkisskattstjóra með umsókn um leiðréttingu. Afrit af launaseðlum þurfa að fylgja slíkri umsókn.

Gjöld í staðgreiðslu

Staðgreiðsla er bráðabirgðagreiðsla opinberra gjalda á tekjuári. Við uppgjör staðgreiðslu á móti álögð um tekjuskatti og útsvari getur komið fram mismunur, þ. e. inneign eða skuld. Sama gildir um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur og staðgreiðslu tryggingagjalds.

Af launum og öðrum staðgreiðslu skyld um tekjum var á árinu 2009 reiknuð 37,2% staðgreiðsla, þ.e. 24,1% tekju skattur og 13,1% útsvar. Álagt útsvar er mismunandi eftir sveitarfélögum, en í staðgreiðslu er miðað við landsmeðaltal (13,1%).

Af arði og staðgreiðslu skyldum vaxta tekjum var reiknuð 10% staðgreiðsla vegna skatts á fjármagnstekjur janúar - júní, en 15% staðgreiðsla júlí - desember.

Inneign/skuld

Inneign - ofgreidd staðgreiðsla vegna tekjuskatts og útsvars

Inneign getur t.d. myndast í neðan greind um tilvikum:

  • Persónuafsláttur hefur ekki verið nýttur við staðgreiðslu.
  • Ríkisskattstjóri hefur veitt ívilnun til lækkunar á tekjuskattsstofni.
  • Frádráttur er færður á skattframtal vegna ökutækjastyrks og dagpeninga sem staðgreiðsla hefur verið greidd af.
  • Iðgjöld vegna viðbótar lífeyrissparnaðar hafa ekki verið dregin frá stofni til útreiknings staðgreiðslu.
  • Útsvar í sveitarfélagi framteljanda er lægra en landsmeðaltal (13,1%).

Skuldir - ógreiddur tekjuskattur og útsvar

Skuld getur t.d. myndast í neðangreind um tilvikum:

  • Útsvar í sveitarfélagi framteljanda er hærra en landsmeðaltal (13,1%).
  • Persónuafsláttur hefur verið ofnýttur við staðgreiðslu.
  • Launagreiðandi hefur ekki staðið skil á afdreginni staðgreiðslu.
  • Skattur af fjármagnstekjum hefur ekki verið innheimtur.

Skuld getur einnig myndast vegna tekjuliða, sem ekki var skylt að skila staðgreiðslu af, t.d. vegna:

  • Leigutekna og söluhagnaðar.
  • Hagnaðar af atvinnurekstri.

Inneign/skuld vegna tryggingagjalds

Inneign vegna tryggingagjalds getur myndast ef staðgreiðsla hefur verið ofgreidd. Á sama hátt myndast skuld ef ekki hafa verið gerð skil á greiðslu tryggingagjalds.

Mismunur - inneign/skuld

Á mismun staðgreiðslu og álagningar er reiknað 2,5% álag. Gildir það bæði um inneignir vegna of greiddrar staðgreiðslu og um skuldir vegna ógreidds tekjuskatts, útsvars og skatts á fjármagnstekjur.

Á mismun (skuld) staðgreiðslu og álagningar tryggingagjalds reiknast dráttar vextir frá gjalddaga, sé greitt eftir eindaga hvers tímabils.

Á ofgreidda staðgreiðslu tryggingagjalds eru reiknaðir inneignarvextir.

Gjöld utan staðgreiðslu

Skuld getur myndast vegna eftir talinna gjalda:

  • Útvarpsgjalds.
  • Gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra.
  • Slysatryggingar vegna heimilisstarfa.
  • Skatts á fjármagnstekjur.
  • Auðlegðarskatts
  • Iðnaðarmálagjalds.
  • Búnaðargjalds.
  • Tryggingagjalds.

Skuld getur einnig myndast ef fyrirfram ákvarðaðar barnabætur eða vaxtabætur reynast hærri en endanlega ákvarðaðar bætur.

Greiðslustaða

Til frádráttar og skulda jöfnunar koma:

  • Fyrirframgreiðsla upp í gjöld utan staðgreiðslu, þ.e. búnaðargjald ársins 2010.
  • Ofgreidd staðgreiðsla.
  • Skattafsláttur.
  • Barnabætur.
  • Vaxtabætur.
  • Inneignar vextir (að frádreginni staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts).
  • Álag v/ofgreiddrar staðgreiðslu og fyrirframgreiðslu upp í búnaðargjald.

Ráðstöfun staðgreiðslu og ofgreiddrar fyrir framgreiðslu

Hjá hjónum og samsköttuðu sambúðarfólki er ofgreiddri staðgreiðslu fyrst ráðstafað til greiðslu á ógreiddu útsvari og tekjuskatti maka vegna álagningarársins.

Síðan er ofgreiddri staðgreiðslu og ofgreiddri fyrir framgreiðslu iðnaðarmálagjalds og búnaðargjalds ráðstaf að til greiðslu á:

  • Eldri þing- og sveitarsjóðsgjöld um.
  • Álögðum gjöldum ársins sem gjaldfalla 1. ágúst eða fyrr.
  • Eftirstöðvum tryggingagjalds og vanskilum á staðgreiðslu.
  • Eldri þing- og sveitarsjóðsgjöld um maka.
  • Öðrum gjaldföllnum sköttum.

Ofgreiddri staðgreiðslu er ráðstafað upp í ofgreiddar greiðslur úr fæðingarorlofssjóði og ofgreiddar húsaleigubætur frá sveitarfélögum.

Ráðstöfun barnabóta og vaxtabóta

Frá vaxtabótum og barnabótum eru dregnar fyrirfram ákvarðaðar vaxtabætur og barnabætur. Barnabótum, sem þá standa eftir, er ráðstafað á móti ofgreiddum barnabótum og skipt á tvo gjalddaga, 1. ágúst og 1. nóvember. Vaxtabætur koma til útborgunar 1. ágúst. Vaxtabótum sem koma til útborgunar 1. ágúst er ráðstafað til greiðslu á:

  • Eldri þing- og sveitarsjóðsgjöldum.
  • Álögðum gjöldum ársins sem gjaldfalla 1. ágúst eða fyrr.
  • Eftirstöðvum tryggingagjalds.
  • Kröfum að utan.
  • Van greiddum þing- og sveitarsjóðsgjöldum maka.
  • Virðisaukaskatti, bifreiðagjaldi og þungaskatti.
  • Ofgreiddum greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.
  • Ofgreiddum húsaleigubótum frá sveitarfélögum.
  • Vangreiddum meðlögum hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga.

Gjalddagar

Eftirstöðvum álagðra gjalda og fyrirframgreiðslu búnaðargjalds vegna álagningar ársins 2011 er jafnað á fimm gjalddaga, 1. ágúst - 1. desember. Þó er útvarpsgjaldi jafnað á þrjá gjalddaga, 1. ágúst, 1. september og 1. október.

Gjalddagaskipting miðast þó við að ekki sé til innheimtu lægri fjárhæð en 2000 kr. á hverjum gjalddaga.

Vangreiðsla á hluta gjalda veldur því að öll gjöld á gjaldárinu falla í eindaga 15 dögum eftir gjalddagann, þó ekki fyrr en 15. næsta mánaðar eftir að álagningu er lokið.

Gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa og ofgreiddar barnabætur og vaxtabætur gjaldfalla 1. ágúst.

Ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi manna, sem stunda sjálfstæðan atvinnurekstur, er fallinn í gjalddaga fyrir 1. ágúst ef ekki hefur verið staðið í skilum með staðgreiðslu við komandi tekjuárs.

Staðgreiðsluskylt tryggingagjald er gjaldfallið fyrir 1. ágúst. Tryggingagjald utan staðgreiðslu gjaldfellur 1. ágúst.

Fyrirfram greiðsla búnaðar- og iðnaðarmálagjalds sem reyndist ógreidd vegna ársins 2010, er gjaldfallin fyrir 1. ágúst.

Inneign sem myndast að loknum skuldajöfnuði er greidd þannig:

  • Barnabætur eru greiddar út 1. ágúst og 1. nóvember.
  • Aðrar inneignir eru greiddar út 1. ágúst.

Inneign er greidd út þrátt fyrir ógreidda álagningu ársins sem gjald fellur 1. september og síðar.

Innborgun gengur fyrst til lækkunar á elstu skuld.

Dráttarvextir

Dráttarvextir eru reiknaðir í samræmi við ákvæði 114. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, 32. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga og 13. gr. laga nr. 113/1990 um tryggingagjald, sbr. III. kafla vaxtalaga nr. 38/2001.

Skyldur launagreiðanda

Launagreiðanda ber að halda eftir af launum starfsmanns fjárhæð, sem nægir til greiðslu opinberra gjalda hans, þó aldrei hærri fjárhæð að meðtalinni staðgreiðslu en sem nemur 75% af heildarlaunagreiðslu hverju sinni. Ágreining um afdrátt af laun um má bera undir viðkomandi innheimtumann ríkissjóðs. Ákvörðun hans er kæranleg til fjármálaráðuneytis.

Greiðsluseðlar

Ef fjárhæð (skuld) á gjalddaga er 1000 kr. eða hærri eru greiðsluseðlar sendir gjaldendum vegna hvers gjalddaga 1. ágúst - 1. desember. Greiðsluseðlar eru sendir til þeirra gjaldenda sem ekki eru merktir ákveðnum launagreiðendum hjá innheimtumönnum ríkissjóðs.

Inneign 30. júlí

Inneignir verða greiddar út 30. júlí.

Lagt er inn á bankareikning gjaldanda ef upplýsingar um reikning eru fyrir hendi skv. skattframtali, bankaskrá innheimtumanna, ráðstöfunarskrá banka og sparisjóða eða launaskrá Fjársýslu ríkisins. Aðrir fá senda ávísun. Upplýsingar um greiðslu inneigna koma fram á innheimtuseðli.

Nánari upplýsingar

Ríkisskattstjóri veitir nánari upplýsingar um álagningu opinberra gjalda þ.m.t. tryggingagjalds, auk staðgreiðsluskila.

Innheimtumenn ríkissjóðs, sýslumenn utan Reykjavíkur og tollstjóri, veita nánari upplýsingar um greiðslustöðu, útborgun inneigna og innheimtuskulda. Jafnframt skal bent á upplýsingavef ríkisskattstjóra, www.rsk.is.

Leiðbeiningar í bækl ingi þessum skapa hvorki rétt né skyldur umfram ákvæði laga.

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook