Forsíða  > Einstaklingar  > Framtal og álagning  > Forsendur álagningar  > Forsentur í álagningu 2011
Veftré   A- A+

Forsendur í álagningu 2011

Vegna tekjuársins 2010

Skatthlutfall

Manna:
Af stofni 0 - 2.400.000 kr.

24,10%

(+ útsvar viðk. sveitarfélags).
Af stofni 2.400.001 - 7.800.000 kr.27,00%(+ útsvar viðk. sveitarfélags).
Af stofni yfir 7.800.000 kr.33,00%(+ útsvar viðk. sveitarfélags).

Meðaltalsútsvar var 13,12% og staðgreiðsluhlutfall var því 37,22%, 40,12% og 46,12% á árinu 2010.

Barna (fædd 1995 og síðar): 6% af tekjum umfram 100.745 (4% tekjuskattur og 2% útsvar).
Lögaðila: 18% tekjuskattur á hlutafélög, en 32,7% á sameignarfélög, dánarbú og þrotabú.

Fjármagnstekjuskattur

Á fjármagnstekjur er lagður 18% skattur. Frítekjumark vegna vaxtatekna er 100.000 kr. (200.000 kr. hjá hjónum/sambúðarfólki) og aðeins 70% af leigutekjum íbúðarhúsnæðis myndar skattstofn.

Hagnaður af sölu hlutabréfa getur verið skattfrjáls, allt að kr. 367.625 hjá einhleypingi og kr. 735.250 hjá hjónum/sambúðarfólki. Skilyrði er að um sé að ræða “sérstök hlutabréf” sem keypt voru í staðfestu félagi á árunum 1990-96.

Auðlegðarskattur

Á nettóeign einhleypings umfram 75 milljónir kr. og nettóeign hjóna umfram 100 milljónir kr. er lagður 1,5% auðlegðarskattur. Skatturinn er ekki lagður á félög.

Gjald í framkvæmdasjóð aldraðra

Gjaldið er kr. 8.700 og er lagt á alla þá sem fæddir eru 1941 eða síðar og hafa tekjuskattsstofn sem er hærri en kr. 1.425.218.

Útvarpsgjald

Gjaldið er kr. 17.900 á hvern mann. Undanþegnir gjaldinu eru menn með tekjuskattsstofn kr. 1.425.218 eða lægri, og þeir sem eru 70 ára og eldri í árslok 2010, svo og elli- og ör­orku­­lífeyrisþegar sem dvelja á dvalar- og hjúkrunarheimil­um.

Ýmsar tölur

Persónuafsláttur: kr. 530.466, 100% af ónýttum afslætti millifæranlegur hjá hjónum og sambúðarfólki.
Sjómannaafsláttur: kr. 987 á dag.
Hámarksívilnun vegna framfærslu námsmanns/ungmennis: kr. 301.000.
Gjaldfærsla á eignasamstæðum: Hámark kr. 250.000.
Árleg afskrift bifreiðar (v/rekstrarkostnaðar): kr. 675.000.
Tryggingagjald (almennt): 8,65%
Tryggingagjald v/launa sjómanna á fiskiskipum: 9,3%
Búnaðargjald: 1,2%
Jöfnunargjald alþjónustu: 0,10% af veltu af fjarskiptastarfsemi.

Þar sem talað er um sambúðarfólk er bæði átt við tvo einstaklinga í óvígðri sambúð og par í staðfestri samvist. Skattlagning samskattaðs sambúðarfólks fer eftir sömu reglum og gilda um hjón.

Barnabætur og vaxtabætur

Sjá dæmi um útreikning barnabóta eða útreikning vaxtabóta.

Fyrri ár

  • Forsendur

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook