Forsíða  > Einstaklingar  > Skattar og gjöld  > Auðlegðarskattur
Veftré   A- A+

Auðlegðarskattur

Auðlegðarskattur

Auðlegðarskattur er lagður á nettóeign framteljanda, þ.e. allar eignir að frádregnum öllum skuldum. Af fyrstu 75.000.000 kr. eign einhleypings og fyrstu 100.000.000 kr. eign hjóna og samskattaðra er enginn skattur, en 1,5% af stofni umfram það. Skatturinn er lagður á gjaldárin 2010, 2011 og 2012.

(Gjaldárið 2010 voru eignamörkin 90 m.kr. og 120 m.kr. og skatthlutfallið 1,25%.)

Hlutabréfaeign er talin fram á nafnverði til auðlegðarskatts. Sé raunverð bréfanna hærra en nafnverð kemur viðbótin til skattlagningar ári síðar, sem Viðbótarauðlegðarskattur, sbr. þó um breytingar vegna 2012. Sama gildir um mun á raunvirði og framtöldu verðmæti erlendra hlutabréfa (sem er oftast kaupverð).

Viðbótarauðlegðarskattur

Viðbótarauðlegðarskattur er 1,25% í álagningu 2011. Stofninn er mismunur á nafnverði og raunvirði hlutabréfa í eigu framteljanda í lok árs 2009.

Ef raunvirði bréfanna er hærra en það nafnverð sem talið var fram í framtali 2010, myndar mismunurinn stofn að því marki sem hann, að viðbættum auðlegðarskattsstofni fyrra árs, er umfram 90.000.000 kr. hjá einhleypingi eða 120.000.000 kr. hjá hjónum og samsköttuðum. Við útreikninginn er miðað við fjölskyldustöðuna skv. framtali 2010.

Raunvirði er annars vegar markaðsvirði bréfa sem skráð eru á markaði og hins vegar hlutdeild í skattalegu eigin fé í öðrum félögum. Hlutdeildin, vegna íslenskra bréfa, er reiknuð samkvæmt upplýsingum úr framtali félagsins sem framteljandi á hlut í. Eins ber að tilgreina mismun á framtöldu verði og raunvirði erlendra bréfa á framtali.

(Við álagningu 2012 verða eignamörkin 75 m.kr. og 100 m.kr. og skatthlutfallið 1,5%.)

Breytingar gjaldárið 2012

Reglum um auðlegðarskatt hefur verið breytt frá því sem að ofan greinir og tekur breytingin til gjaldársins 2012. Þá verður allur stofninn skattlagður í einu lagi og viðbótarauðlegðarskattur ekki lagður á 2013. Breyting þessi verður kynnt nánar síðar.

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook