Kílómetragjald
Almennt
Af bifreiðum og eftirvögnum sem eru 10.000 kg eða meira að leyfðri heildarþyngd, þó ekki bifreiðum ætluðum til fólksflutninga, skal greiða kílómetragjald. Gjaldskyldan er óháð eldsneytisnotkun og greiða skal kílómetragjald af ökutækjum sem eru undanþegin olíugjaldi. Þá skal greitt kílómetragjald af bifreiðum og eftir vögnum sem skráð eru erlendis og flutt hingað til lands. Einnig skal greitt kílómetragjald af ökutækjum sem eru 5.000 kg eða meira að leyfðri heildarþyngd og skráð til sérstakra nota í ökutækjaskrá.
Gjaldið er ákvarðað sem tiltekin fjárhæð á hvern ekinn kílómetra. Kílómetragjaldið er óháð orkugjafa og leggst því jafnt á bifreiðar sem knúnar eru bensíni, dísilolíu eða öðrum orkugjafa. Ökutæki þessi skulu vera útbúin löggiltum ökumælum.
Sé kílómetragjaldsskylt ökutæki með bilaðan eða engan ökumæli hefur ríkisskattstjóri heimildir til að ákvarða, eða endurákvarða, vantalinn akstur og leggja á kílómetragjald, og að auki að beita sektum allt að kr. 100.000.- samkvæmt lögum. Ríkisskattstjóri hefur sett sér verklagsreglur um beitingu sekta í ofangreindum tilvikum og eru þær eftirfarandi:
- Ef enginn ökumælir er í ökutæki er beitt hámarkssekt eða kr. 100.000.-.
- Ef ökumælir í ökutæki er bilaður er sektarfjárhæð kr. 75.000.-.
Sérstök not
Af ökutækjum sem skráð eru til sérstakra nota skal greiða sérstakt kílómetragjald. Eigendur bifreiða sem óska eftir skráningu til sérstakra nota skulu beina umsókn til skoðunarstöðva. Með umsókn skal fylgja álestur af ökumæli bifreiðarinnar.
Eftirvagnar dregnir af dráttarvélum, sem ekið er í almennri umferð, og eru 5.000 kg eða meira að leyfðri heildarþyngd, skulu greiða sérstakt kílómetragjald. Áður en akstur hefst skal fara fram álestur af ökumæli eftirvagns hjá álestraraðila.
Fjárhæð kílómetragjalds
Ákvörðun um fjárhæð almenns og sérstaks kílómetragjalds fer eftir leyfðri heildarþyngd ökutækis (gjaldþyngd) og er fjárhæðin ákveðin með lögum, sjá nánar II kafla laga nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald. Í reglugerð nr. 688/2005, um stærð og þyngd ökutækja, ásamt viðaukum I og II við þá reglugerð, er að finna reglur um leyfða heildarþyngd ökutækja.
Ef heildarþyngd ökutækis með farmi mælist vera meiri en sem nemur gjaldþyngd þess varðar það sektum allt að kr. 100.000.- samkvæmt lögum. Ríkisskattstjóri hefur sett sér verklagsreglur um beitingu sekta í þeim tilvikum þegar heildarþyngd öktækis með farmi er meiri en gjaldþyngd þess og eru þær eftirfarandi:
- Ökutæki er einum gjaldþyngdarflokk umfram gjaldþyngd kr. 25.000.-
- Ökutæki er tveimur gjaldþyngdarflokkum umfram gjaldþyngd kr. 50.000.-
- Ökutæki er þremur gjaldþyngdarflokkum umfram gjaldþyngd kr. 75.000.-
- Ökutæki er fjórum eða fleiri gjaldþyngdarflokkum umfram gjaldþyngd kr. 100.000.-
Gjaldtímabil og gjalddagar
Greiða skal kílómetragjald tvisvar á ári og eru gjalddagar 1. janúar og 1. júlí ár hvert og eru eindagar 15. febrúar og 15. ágúst.
Álestur af ökumælum
Eigandi eða umráðamaður ökutækis á kílómetragjaldi skal mæta með ökutækið til álesturs á álestrartímabilum en þau eru frá 1.–15. júní og 1.–15. desember. Álestraraðilar eru allar skoðunarstöðvar auk þess sem Vegagerðin sinnir álestrum víðsvegar um landið og lögreglan á nokkrum stöðum. Ef ökutæki er óökufært og því ekki mögulegt að mæta með það til álestraraðila er hægt að óska eftir álestri frá álestraraðila eða Vegagerð. Slíkt þarf að gera tímanlega. Ekki er þörf á álestri á álestrartímabili hafi álestur farið fram vegna innlagnar númera eða afskráningu ökutækis.
Áætlanir og kærur
Ef ekki er mætt með ökutæki í álestur á álestrartímabili er kílómetragjald áætlað sem a.m.k. 8.000 km á mánuði. Komi gjaldandi, sem sætt hefur áætlun, með ökutæki til álestrar er álestur tekinn sem kæra og sendur ríkisskattstjóra til ákvörðunar.
Akstursbók
Ríkisskattstjóri gefur út sérstaka akstursbók sem eiganda eða umráðamanni ökutækis, á kílómetragjaldi, er skylt að hafa ávallt í ökutækinu. Í akstursbókina skal ökumaður ökutækis skrá stöðu ökumælis skv. ákveðnum reglum auk þess sem í bókina skulu m.a. álestraraðilar skrá álestra og gjaldþyngdarbreytingar og mælaverkstæði skulu m.a. skrá þar upplýsingar varðandi ísetningu og úrtöku ökumælis. Eiganda eða umráðamanni ökutækis ber að varðveita akstursbók í sjö ár frá lokum gjaldárs.
Komi í ljós við skráningu í akstursbók að ökumælir telur rangt eða telur ekki skal ökumaður þá svo fljótt sem honum er unnt tilkynna bilun mælis til Vegagerðarinnar. Jafnframt skal hann, innan tveggja virkra daga frá því að bilun í mæli kom fram, fara með hann á löggilt verkstæði til viðgerðar.
Hafi akstur verið ranglega færður eða ekki færður í akstursbók varðar það sektum allt að kr. 100.000.- samkvæmt lögum. Ríkisskattstjóri hefur sett sér verklagsreglur um beitingu sekta í ofangreindum tilvikum og eru þær eftirfarandi:
- Vegna ranglega færðs aksturs, kr. 10.000.-
- Ef akstur er ekki færður eða akstursbók glatast er sekt kr. 20.000.-
- Fyrir ítrekuð brot hækkar sektin um kr. 5.000.- í hvert sinn, í allt að kr. 50.000.-
Eigendaskipti
Óheimilt er að umskrá ökutæki nema lesið hafi verið af ökumæli og kílómetragjald vegna þess álestrar greitt. Ef tilkynnt er um eigendaskipti án álesturs og greiðslu lenda eigendaskiptin í bið. Til þess að eigendaskipti geti farið fram þarf að láta lesa af mæli og greiða áfallið kílómetragjald m.a. fyrir ekna kílómetra frá síðustu álagningu.
Seljandi sem lætur af hendi ökutæki til kaupanda án þess að láta lesa af ökumæli vegna eigendaskipta verður ábyrgur fyrir þeim akstri sem á sér stað allt þar til lesið hefur verið af ökumæli og eigendaskipti ganga í gegn.
Akstur erlendis
Tollverðir lesa af ökumæli við útflutning og innflutning (eigendur/umráðamenn ökutækis þurfa að hafa varann á að álestur fari fram). Sá akstur sem á sér stað þar á milli reiknast ekki með við næstu álagningu kílómetragjalds.
Lög og reglugerðir
- Lög nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald.
- Reglugerð nr. 599/2005, um ökumæla, verkstæði, álestraraðila og eftirlitsaðila kílómetragjalds.
- Reglugerð nr. 627/2005, um ákvörðun kílómetragjalds og skyldur ökumanna.
- Reglugerð nr. 274/2006, skilyrði undanþágu frá greiðslu olíugjalds og um greiðslu sérstaks kílómetragjalds.

