Forsíða  > Einstaklingar  > Skattar og gjöld  > Tekjuskattur og útsvar  > Tekjuskattur og útsvar 2008
Veftré   A- A+

Tekjuskattur og útsvar 2008

Gjaldárið 2008 vegna tekna á árinu 2007

Við útreikning tekjuskatts og útsvars hjá hjónum og sambúðarfólki þarf alltaf að reikna fyrst út gjöld þess sem hefur lægri tekjur, vegna millifærslu á persónuafslætti.

Tekjuskatts- og útsvarsstofn1) 2.500.000

Reiknaður tekjuskattur 22,75%

+

568.750

Sjómannaafsláttur 2) - 0
Persónuafsláttur 3) - 385.800 4)
Tekjuskattur = 182.950 5)

Útsvar - 12,97% af stofni 6)

+

324.250

Persónuafsláttur tilgreiðslu útsvars - 0 7)
Útsvar til innheimtu = 324.250
  1. Samkvæmt tölulið 2.7 á skattframtali.
  2. Sjómannaafsláttur 2007 var kr. 834 á dag.
  3. Persónuafsláttur vegna tekna á árinu 2007 var kr. 385.800.
  4. Til viðbótar venjulegum persónuafslætti getur komið millifærður persónuafsláttur frá maka, sbr. 7).
  5. Ef reiknaður tekjuskattur er lægri en persónuafsláttur verður tekjuskatturinn 0 en ónýttur afsláttur færist niður í reitinn: Persónuafsláttur til greiðslu útsvars.
  6. Útsvar er mismunandi eftir sveitarfélögum.
  7. Ónýttur persónuafsláttur gengur til greiðslu útsvars. Sé þá enn ónýttur afsláttur færist hann (100%) til maka hjá samsköttuðum einstaklingum. Sé enn eftir ónýttur afsláttur ganga 10/38 af því sem ónýtt er til greiðslu á skatti á fjármagnstekjur.

Skattur á fjármagnstekjur

Skattur á tekjur samkvæmt 3. kafla skattframtals er 10%. Af þeim persónuafslætti sem ekki nýtist vegna tekjuskatts eða til greiðslu útsvars ganga 10/38 til greiðslu skatts á fjármagnstekjur.

Ítarefni

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook