Forsíða  > Einstaklingar  > Skattmat  > Íbúðarhús og orlofshús
Veftré   A- A+

Íbúðarhúsnæði og orlofshús - skattmat 2012

Íbúðarhúsnæði og orlofshús.

Endurgjaldslaus afnot af íbúðarhúsnæði og orlofshúsnæði sem launagreiðandi lætur starfsmanni í té til umráða skulu metin starfsmanninum til tekna. Skal matið vera sem hér segir:

Árleg afnot skulu metin til tekna sem jafngildi 5% af fasteignamati íbúðarhúsnæðisins (þ.m.t. bílskúr og önnur sérstaklega metin mannvirki á lóð íbúðarhúsnæðis) og lóðar og margfölduð með gildistölu þess svæðis þar sem húsnæðið er sbr. eftirfarandi:

Gildistala Staðsetning (sveitarfélagsnúmer innan sviga)
1,0 Reykjavíkurborg (0000), Seltjarnarneskaupstaður (1100), Mosfellsbær (1604), Kópavogsbær (1000), Garðabær (1300), Sveitarfélagið Álftanes (1603), Hafnarfjarðarkaupstaður (1400).
0,80 Grindavíkurbær (2300), Sandgerðisbær (2503), Sveitarfélagið Garður (2504), Reykjanesbær (2000), Sveitarfélagið Vogar (2506), Akraneskaupstaður (3000), Akureyrarkaupstaður (6000), Sveitarfélagið Árborg (8200), Hveragerðisbær (8716), Sveitarfélagið Ölfus (8717).
0,70 Önnur sveitarfélög.


Endurgjaldslausa orkunotkun (rafmagn og hita) skal telja til tekna á kostnaðarverði.

Fylgi starfi launamanns kvöð um búsetu í húsnæði, sem launagreiðandi lætur honum í té, er ríkisskattstjóra heimilt að lækka mat húsnæðishlunninda við álagningu opinberra gjalda ef launþegi telst ekki nýta húsnæðið að fullu. Íbúðarhúsnæði allt að 150 m² að viðbættum 5 m² fyrir hvern íbúa umfram 6 telst fullnýtt.

Eigi skal meta til tekna afnot af húsnæði í verbúðum eða vinnubúðum þar sem launamaður dvelur um takmarkaðan tíma í þjónustu launagreiðanda.

Endurgjaldslaus afnot starfsmanns af orlofshúsnæði frá launagreiðanda skulu talin til tekna með 2.000 kr. fyrir hvern dag, sem starfsmaður eða fjölskyldumeðlimir hans hafa húsnæðið til afnota, umfram 10 daga á ári. Afnot í allt að 10 daga á ári teljast ekki til tekna.

Með orlofshúsnæði er í þessu sambandi átt við sumarbústaði og annað það húsnæði sem ætlað er til slíkrar notkunar, þ.m.t. íbúðir í þéttbýli, sem og hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagnar og aðrir tengivagnar.

Ekki skal telja til tekna starfsmanns greiðslu frá launagreiðanda, eða eftir atvikum stéttarfélagi, sem ætlað er að standa straum af kostnaði við leigu á orlofshúsnæði eða með öðrum hætti til greiðslu á orlofsdvöl, að því marki sem slík greiðsla fer ekki yfir 40.000 kr. á ári. Skilyrði er að starfsmaður leggi fram fullgilda og óvefengjanlega reikninga fyrir greiðslu á kostnaði vegna orlofsdvalar þessarar.

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook