Lán - skattmat 2012
Lán.
Telja skal til skattskyldra tekna mismun á vöxtum af lánum sem fengin eru hjá launagreiðanda, eða fyrir milligöngu hans, ef þeir eru lægri en þeir vextir sem birtir eru af Seðlabanka Íslands í samræmi við 10. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu. Miða skal við stöðu láns í byrjun hvers mánaðar og almenna vexti þess mánaðar eins og þeir eru birtir í töflu á heimasíðu Seðlabanka Íslands, „bankavextir og dráttarvextir“, og reikna staðgreiðslu opinberra gjalda á þann hátt mánaðarlega. Eftir atvikum skal miða við almenna vexti af verðtryggðum eða óverðtryggðum lánum. Sama á við um greiðslufresti og afborganir af kaupum á hlutabréfum eða öðrum eignum.

