Skattskylda einstaklinga
Með skattskyldu einstaklinga er átt við skyldu til að greiða tekjuskatt hér á landi samkvæmt lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt með síðari breytingum. Fjallar 1. gr. þeirra um ótakmarkaða skattskyldu manna, sem heimilisfastir eru hér á landi, en samkvæmt lagagreininni hvílir skattskyldan á eftirtöldum mönnum:
- Þeim sem heimilisfastir eru hér á landi.
- Þeim sem heimilisfastir hafa verið hér á landi en flutt úr landi og fellt hafa niður heimilisfesti sitt hér, nema þeir sanni að þeir séu skattskyldir í öðru ríki á sama hátt og menn heimilisfastir þar og hafi fullnægt þeim skattskyldum sínum. Skattskylda þessi gildir þó aðeins í þrjú ár frá næstu áramótum eftir brottflutningsdag.
- Þeim sem dvelja hér á landi lengur en samtals 183 daga á sérhverju 12 mánaða tímabili, þar með talin eðlileg fjarvera héðan af landi vegna orlofs og þess háttar.
- Þeim sem eigi falla undir ákvæði 1.–3. tölul. þessarar greinar en starfa samtals lengur en 183 daga á sérhverju 12 mánaða tímabili, þar með talin eðlileg fjarvera frá starfi vegna orlofs og þess háttar, um borð í loftfari eða skipi sem skráð er hér á landi.
Við ákvörðun á skyldu manna til að greiða tekjuskatt þarf að taka tillit til þeirra samninga sem ríkisstjórnin hefur gert við stjórnir annarra ríkja til að koma í veg fyrir tvísköttun á tekjur og eignir, sbr. þær heimildir sem fram koma í 119. gr. skattalaga.

