Forsíða  > Einstaklingar  > Skattskylda  > Námsmenn erlendis
Veftré   A- A+

Námsmenn erlendis – skattaleg heimilisfesti

Hvað er skattaleg heimilisfesti?

Með skattalegri heimilisfesti eru námsmanni tryggð réttindi til að vera skattlagður eins og hann hefði verið heimilisfastur hér á landi allt árið. Þetta þýðir að við skattlagningu er tekið tillit til þess skattafsláttar og bóta sem hann ætti rétt á ef lögheimili hans hefði verið hér á landi. Tekjur og eignir erlendis hafa áhrif á skattlagninguna og barnabætur eða hliðstæðar greiðslur erlendis koma til lækkunar á barnabótum hér á landi.

Hverjir eiga rétt á skattalegri heimilisfesti?

Þeir sem dveljast erlendis við nám geta sótt um að fá að halda hér á landi skattalegri heimilisfesti, hafi þeir verið búsettir hér síðustu 5 árin áður en nám erlendis hófst. Nám verður að hefjast innan þriggja mánaða frá flutningi. Dvelji maki námsmannsins eða börn hans eldri en 16 ára einnig erlendis og dvöl þeirra er bein afleiðing af námi hans, geta þau einnig sótt um að halda hér á landi skattalegri heimilisfesti. Óvígð sambúð er lögð að jöfnu við hjúskap að því tilskildu að uppfyllt séu skilyrði skattalaga um samsköttun.

Nám erlendis sem uppfyllir skilyrði fyrir skattalegri heimilisfesti

Þau skilyrði sem námið þarf að uppfylla eru eftirfarandi:

  • að stundað sé reglulegt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á framhalds- eða háskólastigi
  • að námið sé ætlað sem aðalstarf
  • að námstími sé eigi skemmri en 6 mánuðir eða sem svarar til 624 klst. á ári, þó að undanskildu skiptinámi, sbr. eftirfarandi.

Til náms í þessu sambandi telst starfsþjálfun, sérhæfing eða öflun sérfræðiréttinda, enda séu skilyrði þau sem sett eru að öðru leyti uppfyllt. Skiptinám við erlenda háskóla telst til náms, sé nemandi skráður við íslenskan háskóla, þótt skiptinámið sé styttra en sex mánuðir.Nám í grunnskólum, menntaskólum eða sambærilegum menntastofnunum telst ekki til náms í þessu sambandi nema nám að loknum grunnskóla veiti formleg starfsréttindi eða heimild til að bera starfsheiti.

Fjarnám við íslenskan háskóla skapar ekki rétt til skattalegrar heimilisfesti þrátt fyrir búsetu erlendis.

Umsókn um skattalega heimilisfesti

Sækja þarf um skattalega heimilisfesti á framtali. Ekki er gerð krafa um sérstakt eyðublað heldur nægir að haka í viðeigandi rétt á forsíðu framtals og láta viðeigandi gögn fylgja. Berist gögn ekki er umsögn hafnað.

Vottorð um nám erlendis

Árlega þarf að leggja fram staðfestingu frá skóla þar sem fram kemur:

  • hvaða nám var stundað og hve lengi á tekjuárinu
  • hvenær nám hófst
  • áætluð námslok

Upplýsingar um tekjur erlendis

Námsmaður og maki hans þurfa að leggja fram staðfestingu um tekjur eða tekjuleysi erlendis frá viðkomandi skattyfirvöldum. Nægilegt er að leggja fram:

  • staðfest ljósrit af erlendum framtölum ef tekjur koma þar fram eða
  • skriflegt tekjuvottorð frá erlendum skattyfirvöldum eða
  • erlenda álagningarseðla eða staðfestingu á skattauppgjöri.

Einnig skal fylgja með framtali staðfesting á barnabótum eða sambærilegum greiðslum, fengnum erlendis á tekjuárinu.

Námsmenn erlendis fá ekki sent áritað framtal. Fyrir þá er því afar hentugt að telja fram á vefnum. Upplýsingar um vefframtalið og veflykla eru á bls. 4. Vilji þeir skila á pappír er hægt að prenta út öll fylgiskjöl með framtali á rsk.is eða snúa sér til skattstjóra til að fá nauðsynleg eyðublöð. Á framtali þarf að koma fram póstfang námsmannsins erlendis eða umboðsmanns hér á landi og hvert hafi verið síðasta lögheimili námsmanns hér á landi.

Réttindi veitt í eitt ár í senn

Námsmaður sem óskar eftir að halda hér á landi skattalegri heimilisfesti þarf að sækja um það á framtali á hverju ári sem námið er stundað. Leggja þarf fram nýjar upplýsingar um námið á hverju ári ásamt staðfestingu frá skóla, tekjuvottorði frá skattyfirvöldum erlendis og staðfestingu um barnabætur erlendis.

Ríkisskattstjóri annast ákvörðun

Ríkisskattstjóri tekur ákvörðun um rétt námsmanns til að halda skattalegri heimilisfesti á Íslandi. Almennar reglur um kærur til skattyfirvalda gilda í þessum tilvikum. Ef ríkisskattstjóri fellst ekki á að veita skattalega heimilisfesti er skattlagning miðuð við takmarkaða skattskyldu, þ.e. námsmaðurinn er einungis skattlagður hafi hann haft tekjur hér á landi eftir að lögheimili hefur verið flutt frá landinu.

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook