Forsíða  > Einstaklingar  > Staðgreiðsla  > Staðgreiðsla  > Staðgreiðsla 2012
Veftré   A- A+

Staðgreiðsla 2012

Skatthlutfall í staðgreiðslu

Skatthlutfall í staðgreiðslu er

  • 37,34% af tekjum 0 - 230.000 kr.
  • 40,24% af tekjum 230.001 - 704.367 kr.
  • 46,24% af tekjum yfir 704.367 kr.

Skatthlutfall barna, þ.e. þeirra sem fædd eru 1997 eða síðar er 6% af tekjum umfram frítekjumark barna sem er kr. 100.745

Persónuafsláttur

Persónuafsláttur er kr. 558.385 á ári, eða kr. 46.532 á mánuði.
Heimilt er að nýta allan (100%) ónýttan persónuafslátt maka á árinu 2012.

Einn mánuðurkr.46.532
Hálfur mánuðurkr.22.266
Fjórtán dagarkr.21.359
Ein vikakr.10.680

Ef launatímabil er annað en að ofan greinir skal ákvarða persónuafslátt þannig:
558.385 / 366 x dagafjöldi launatímabils

Sjá nánar um persónuafslátt

Sjómannaafsláttur

Sjómannaafsláttur á árinu 2012 er kr. 493 á dag. 

Frádráttarbært iðgjald í lífeyrissjóð

Lífeyrisiðgjald sem halda má utan staðgreiðslu er 4% af launum eða reiknuðu endurgjaldi. Heimilt er að auki að færa til frádráttar allt að 2% vegna iðgjalda samkvæmt samningi um viðbótartryggingavernd, enda séu iðgjöld greidd reglulega til aðila sem falla undir 3. mgr. 8. gr. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

Tryggingagjald er 7,79%.

Sérstök trygging (0,65%) bætist við vegna launa sjómanna á fiskiskipum.

Sundurliðun:
- Almennt tryggingagjald 4,99%
- Atvinnutryggingagjald 2,45%
- Gjald í Ábyrgðasjóð launa v/gjaldþrota 0,30%
- Markaðsgjald 0,05%
Samtals til staðgreiðslu 7,79%

- Viðbót vegna launa sjómanna

0,65%
Samtals af launum sjómanna 8,44%

Ítarefni

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook