Forsíða  > Einstaklingar  > Helstu tölur  > Staðgreiðsla opinberra gjalda 2007
Veftré   A- A+

Staðgreiðsla opinberra gjalda 2007

Staðgreiðsla
Staðgreiðsla 35,72%

Staðgreiðslan skiptist í:

Tekjuskatt 22,75%
Útsvar í staðgreiðslu 12,97%

Hlutfall útsvars er mismunandi eftir sveitarfélögum. Hlutfall útsvars í staðgreiðslu er þó það sama á öllu landinu. Um er að ræða bráðabirgðagreiðslu upp í útsvar í álagningu. Mismunur kann því að vera milli staðgreiðslu og álagningar. Við álagningu er gerð krafa um greiðslu mismunar eða hann endurgreiddur, eftir því sem við á.

Stofn til útreiknings tekjuskatts og útsvars er hvers kyns endurgjald fyrir vinnu að teknu tilliti til þess frádráttar sem heimilaður er með lögum. Sem dæmi um endurgjald fyrir vinnu eru laun, hlunnindi, styrkir og reiknað endurgjald sem og lífeyrisgreiðslur, bætur og styrkir sem ekki eru sérstaklega undanþegin með lögum. Heimilaður frádráttur frá tekjum er m.a. lífeyrissjóðsiðgjald og frádráttur á móti ökutækjastyrk og dagpeningum eða hliðstæðum endurgreiðslum á kostnaði sem sannað er að séu ferða- og dvalarkostnaður vegna atvinnurekanda og eru í samræmi við matsreglur fjármálaráðherra.

Staðgreiðsla manna með takmarkaða skattskyldu vegna launa 35,72%

Staðgreiðslan skiptist í:

Tekjuskatt 22,75%
Útsvar í staðgreiðslu 12,97%

Menn sem koma til Íslands til tímabundinna starfa, þ.e. skemur en 6 mánuði á 12 mánaða tímabili, bera takmarkaða skattskyldu vegna tekna sem þeir afla hér á landi.

Með tekjum er átt við laun, starfstengdar greiðslur, hlunnindi o.s.frv.

Við álagningu er tekið tillit til persónuafsláttar og sjómannaafsláttar hjá þeim sem stunda sjómannsstörf.

Einstaklingar sem búsettir eru á einhverju öðru Norðurlandanna greiða fullan tekjuskatt og útsvar hérlendis vegna eftirlauna eða lífeyrisgreiðslna frá Íslandi. Tekið er tillit til persónuafsláttar á móti slíkum greiðslum. Sama á við um einstaklinga sem búsettir eru í landi sem ekki hefur gert tvísköttunarsamning við Ísland. Ákvæði tvísköttunarsamninga gilda ef einstaklingur er búsettur í ríki sem gert hefur tvísköttunarsamning við Ísland.

Hlutfall útsvars er mismunandi eftir sveitarfélögum. Hlutfall útsvars í staðgreiðslu er þó það sama á öllu landinu. Um er að ræða bráðabirgðagreiðslu upp í útsvar í álagningu. Mismunur kann því að vera milli staðgreiðslu og álagningar. Við álagningu er gerð krafa um greiðslu mismunar eða hann endurgreiddur, eftir því sem við á.

Stofn til útreiknings tekjuskatts og útsvars er hvers kyns endurgjald fyrir vinnu að teknu tilliti til þess frádráttar sem heimilaður er með lögum. Sem dæmi um endurgjald fyrir vinnu eru laun, hlunnindi, styrkir og reiknað endurgjald sem og lífeyrisgreiðslur, bætur og styrkir sem ekki eru sérstaklega undanþegin með lögum. Heimilaður frádráttur frá tekjum er m.a. lífeyrissjóðsiðgjald og frádráttur á móti ökutækjastyrk og dagpeningum eða hliðstæðum endurgreiðslum á kostnaði sem sannað er að séu ferða- og dvalarkostnaður vegna atvinnurekanda og eru í samræmi við matsreglur fjármálaráðherra.

RSK 12.10 - Að starfa á Íslandi tímabundið (242 kb)

Staðgreiðsla manna með takmarkaða skattskyldu vegna þjónustu / starfsemi sem innt er af hendi hér á landi og launa manna sem ekki dvelja hér á landi 27,97%

Staðgreiðslan skiptist í:

Tekjuskatt 15,00%
Útsvar í staðgreiðslu 12,97%

Launatekjur sem skattlagðar eru með 15% tekjuskatti:

  • Laun eða hliðstæðar greiðslur frá íslenskum aðilum til manna sem ekki dvelja hér á landi.

Greiðslur og þóknanir sem skattlagðar eru með 15% tekjuskatti

  1. Greiðslur eða þóknanir til manna, listamanna eða annarra, sem koma fram í atvinnuskyni til skemmtunar og/eða í hvers konar keppni.
  2. Greiðslur eða þóknanir til lögaðila vegna listamanna eða annarra sem koma fram í atvinnuskyni til skemmtunar eða í hvers konar keppni.
  3. Greiðslur til sjálfstætt starfandi manna fyrir aðra þjónustu og starfsemi.
  4. Greiðslur til lögaðila fyrir aðra þjónustu og starfsemi.

Sérstakt skattkort er gefið út til þeirra sem greiða ekki fullan tekjuskatt hér á landi. Kortið veitir ekki rétt til persónuafsláttar. Á skattkorti eru upplýsingar um það skatthlutfall sem launagreiðanda ber að halda eftir sem staðgreiðslu.

Þeir sem eiga ekki lögheimili á Íslandi, en eiga þar eignir, greiða 10% fjármagnstekjuskatt af brúttóleigutekjum og söluhagnaði sem þeir hafa af þessum eignum.

Nánari upplýsingar um takmarkaða skattskyldu.

Staðgreiðsla barna af tekjum umfram 100.745 kr. 6,00%

Staðgreiðslan skiptist í:

Tekjuskatt 4,00%
Útsvar 2,00%

Með börnum er átt við einstaklinga yngri en 16 ára. Miðað er við almanaksár (börn fædd 1992 eða síðar).

Börn fá engan persónuafslátt og fá því ekki útgefið skattkort.

Fjármagnstekjuskattur 10,00%

Stofn til útreiknings skatts á fjármagnstekjur er m.a. vaxtatekjur, verðbætur, afföll, gengishagnaður, arður af hlutabréfum, leigutekjur og skattskyldur söluhagnaður.

Hvorki er lagt á útsvar né önnur gjöld á fjármagnstekjur.

Fjármálafyrirtækjum ber að draga staðgreiðslu af vaxtatekjum og afföllum. Félögum með takmarkaða ábyrgð og samvinnufélögum ber að draga staðgreiðslu af arði. Aðrar tekjur er mynda stofn til fjármagnstekjuskatts einstaklinga eru skattlagðar við álagningu opinberra gjalda næsta ár á eftir tekjuári.

Nánari upplýsingar um fjármagnstekjuskatt.

Persónuafsláttur og sjómannaafsláttur
Persónuafsláttur á ári 385.800 kr.

Heimilt er að yfirfæra ónýttan persónuafslátt að fullu til maka. Sama gildir um sambúðarfólk sem hefur heimild til samsköttunar og skilar sameiginlegu skattframtali. Skili sambúðar fólk ekki sameiginlegu skattframtali millifærist persónuafsláttur ekki.

Börn yngri 16 ára fá ekki persónuafslátt. Miðað er við almanaksár (börn fædd 1991 eða síðar).

Eftirlifandi maki getur nýtt persónuafslátt hins látna í níu mánuði eftir andlát að andlátsmánuðinum meðtöldum.

Til að menn geti nýtt sér persónuafslátt við ákvörðun á staðgreiðslu á tekjuárinu þurfa þeir að afhenda launagreiðanda skattkort sitt.

Persónuafsláttur reiknast eingöngu þann tíma sem einstaklingur er heimilisfastur hérlendis.

Nánari upplýsingar um persónuafslátt.

Persónuafsláttur ef launatímabil er einn mánuður 32.150 kr.
Persónuafsláttur ef launatímabil er hálfur mánuður 16.075 kr.
Persónuafsláttur ef launatímabil er fjórtán dagar 14.798 kr.
Persónuafsláttur ef launatímabil er ein vika 7.399 kr.
Sjómannaafsláttur á dag 834 kr.
Frádráttur frá tekjum
Iðgjald í lífeyrissjóð
Lífeyrissjóðsiðgjald 4,00%
Iðgjald vegna viðbótarlífeyrissparnaðar allt að 4,00%
Ökutækjastyrkur - hámarksfrádráttur

Ökutækjastyrkur er greiðsla launagreiðanda til launþega vegna afnota launþega á eigin bifreið í þágu rekstrar launagreiðanda.

Til frádráttar skal leyfa þann hluta af heildarrekstrarkostnaði bifreiðarinnar sem svarar til afnota hennar í þágu launagreiðanda, þó takmarkast frádráttur við leyfðan hámarksfrádrátt samkvæmt skattmati. Aldrei leyfist hærri fjárhæð til frádráttar en talin er til tekna sem ökutækjastyrkur.

Nánari upplýsingar um ökutækjastyrk.

Almennt kílómetragjald
jan.-maí 68,00 kr./km.
júní-sept. 69,50 kr./km.
okt.- 71,50 kr./km.
Sérstakt gjald

Greitt vegna aksturs á vegum fyrir almenna umferð þar sem ekki er bundið slitlag.

Gera verður fullnægjandi grein fyrir því að forsendur fyrir greiðslu sérstaks gjalds séu uppfylltar.

jan.-maí 78,20 kr./km.
júní-sept. 79,90 kr./km.
okt.- 79,90 kr./km.
Torfærugjald

Greitt vegna aksturs utan vega eða á vegaslóðum sem ekki eru færir fólksbílum.

Gera verður fullnægjandi grein fyrir því að forsendur fyrir greiðslu torfærugjalds séu uppfylltar.

jan.-maí 98,60 kr./km.
júní-sept. 100,80 kr./km.
okt.- 103,70 kr./km.
Dagpeningar

Frádráttur er heimill á móti þeim dagpeningum sem er ætlað að standa undir kostnaði launþegans vegna fjarveru frá heimili sínu, annars vegar vegna gistikostnaðar og hins vegar vegna fæðiskaupa og annars tilfallandi kostnaðar sem af ferðinni hlýst.

Heimild til að draga frá kostnað á móti dagpeningum er bundin eftirfarandi skilyrðum:

  1. Dagpeningarnir hafi verið greiddir vegna tilfallandi ferða á vegum launagreiðandans utan venjulegs vinnustaðar og launþeginn greitt gistingu og fæði og annan ferðatengdan kostnað, svo sem fargjöld að og frá flugvöllum.
  2. Gögn um tilefni ferðar og fjölda dvalardaga, fjárhæð ferðapeninga eða dagpeninga, svo og nafn og kennitala launþega, verða að liggja fyrir í bókhaldi launagreiðanda, sem og hjá launþega.

Nánari upplýsingar um dagpeninga.

Innanlands
Gisting og fæði í sólarhring
jan.-maí 15.100 kr.
júní-sept. 17.700 kr.
okt.- 15.300 kr.
Gisting í eina nótt
jan.-maí 8.700 kr.
júní-sept. 11.700 kr.
okt.- 9.300 kr.
Fæði hvern heilan dag (minnst 10 klst. ferðalag)
jan.-maí 6.400 kr.
júní-sept. 6.000 kr.
okt.- 6.000 kr.
Fæði hvern hálfan dag (minnst 6 klst. ferðalag)
jan.-maí 3.200 kr.
júní-sept. 3.000 kr.
okt.- 3.000 kr.
Erlendis (almennir)

Þegar dagpeningar eru umreiknaðir í íslenskar krónur skal miða við sölugengi eins og það var í lok ferðar.

SDR er gjaldmiðlakarfa ákvörðuð af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Karfan samanstendur af fjórum gjaldmiðlum, bandaríkjadal (USD), bresku pundi (GBP), evru (EUR) og japönsku yeni (JPY). Peningamálasvið Seðlabanka Íslands ákvarðar daglega gengi SDR gagnvart íslensku krónunni.

(Upplýsingar um SDR eru teknar af heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is)

Frá janúar til maí
Mexikóborg, New York, Washington DC og Tokyo SDR
Gisting 170
Annað 113
Aþena, Dublin, Hong Kong, Istanbúl, London, Lúxemborg, Moskva, Seúl, Singapúr
Gisting 149
Annað 100
Amsterdam, Barselóna, Brussel, Genf, Kaupmannahöfn, Osló, París, Stokkhólmur
Gisting 136
Annað 90
Annars staðar
Gisting 117
Annað 78
Frá júní -
Moskva, New York borg, Tókýó, Washington DC SDR
Gisting 189
Annað 126
Aþena, Dublin, Istanbúl, Japan (nema Tókýó), London, Lúxemborg, Mexíkóborg, Seúl, Singapúr
Gisting 161
Annað 107
Amsterdam, Bandaríkin (nema New York borg og Washington DC), Barselóna, Brussel, Genf, Hong Kong, Kanada, Kaupmannahöfn, Madrid, Osló, París, Róm, Stokkhólmur
Gisting 142
Annað 95
Annars staðar
Gisting 126
Annað 84
Erlendis (v. þjálfunar, náms og eftirlitsstarfa)

Þegar dagpeningar eru umreiknaðir í íslenskar krónur skal miða við sölugengi eins og það var í lok ferðar.

SDR er gjaldmiðlakarfa ákvörðuð af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Karfan samanstendur af fjórum gjaldmiðlum, bandaríkjadal (USD), bresku pundi (GBP), evru (EUR) og japönsku yeni (JPY). Peningamálasvið Seðlabanka Íslands ákvarðar daglega gengi SDR gagnvart íslensku krónunni.

(Upplýsingar um SDR eru teknar af heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is)

Frá janúar til maí
Mexikóborg, New York, Washington DC og Tokyo SDR
Gisting 109
Annað 72
Aþena, Dublin, Hong Kong, Istanbúl, London, Lúxemborg, Moskva, Seúl, Singapúr
Gisting 96
Annað 64
Amsterdam, Barselóna, Brussel, Genf, Kaupmannahöfn, Osló, París, Stokkhólmur
Gisting 87
Annað 58
Annars staðar
Gisting 75
Annað 50
Frá júní -
Moskva, New York borg, Tókýó, Washington DC SDR
Gisting 121
Annað 81
Aþena, Dublin, Istanbúl, Japan (nema Tókýó), London, Lúxemborg, Mexíkóborg, Seúl, Singapúr
Gisting 103
Annað 68
Amsterdam, Bandaríkin (nema New York borg og Washington DC), Barselóna, Brussel, Genf, Hong Kong, Kanada, Kaupmannahöfn, Madrid, Osló, París, Róm, Stokkhólmur
Gisting 91
Annað 61
Annars staðar
Gisting 81
Annað 54
Hlunnindamat í staðgreiðslu 2007
Bifreiðahlunnindi - full og ótakmörkuð afnot

Fólksbifreið er launagreiðandi lætur starfsmanni sínum í té til fullra og ótakmarkaðra umráða skal meta starfsmanni til tekna óháð notkun hans á bifreið.

Með fólksbifreið er jafnframt átt við skutbifreið, jeppabifreið eða aðra bifreið sem hægt er að hafa sambærileg not af.

Bifreiðahlunnindi í staðgreiðslu reiknast af verðmæti bifreiðar skv. bifreiðaskrá. Sækja skal verð bifreiðar í bifreiðaskrá þess árs þegar bifreiðin var tekin í notkun og margfalda með verðbreytingastuðli viðkomandi árs.

Bifreið telst tekin í notkun:

  1. á framleiðsluári ef notuð bifreið er flutt til landsins
  2. á fyrsta skráningardegi samkvæmt skráningu hjá umferðastofu ef ónotuð bifreið er flutt til landsins

Sé bifreiðar ekki getið í bifreiðaskrá og ekki er unnt að fá upplýsingar um verð hennar annars staðar, skal miða við verð á sambærilegum bifreiðum.

Verð á hvers konar auka- eða sérútbúnaði bifreiðar kemur EKKI til viðbótar verði bifreiðar.

Dæmi um útreikning á bifreiðahlunnindum:

Launþegi með ótakmörkuð afnot af bifreið er tekin var í notkun á árinu 2004. Launagreiðandi greiðir rekstrarkostnað. Verðmæti kr. 1.500.000 skv. bifreiðaskrá 2004.

1.500.000 x 0,9833 (verðbreytingastuðull) = 1.474.950
1.474.950 x 26% = 383.487 kr. á ári

Nánari upplýsingar um bifreiðahlunnindi.

Ef launagreiðandi greiðir rekstrarkostnað:

Greiði launamaður launagreiðanda sínum fyrir afnot og/eða rekstur bifreiðarinnar koma slíkar greiðslur til frádráttar tekjumatinu.

Bifreið tekin í notkun 2005 - 2007 26%
Verðbreytingastuðull
2005 1,0670
2006 1,1119
2007 1,0000
Bifreið tekin í notkun 2002 - 2004 21%
Verðbreytingastuðull
2002 1,0847
2003 1,1189
2004 1,0933
Bifreið tekin í notkun 2001 eða fyrr 18%
Verðbreytingastuðull
1998 1,2408
1999 1,2609
2000 1,2408
2001 1,2420
Ef launamaður greiðir rekstrarkostnað:
Bifreið tekin í notkun 2005 - 2007 20%
Verðbreytingastuðull
2005 1,0670
2006 1,1119
2007 1,0000
Bifreið tekin í notkun 2002 - 2004 15%
Verðbreytingastuðull
2002 1,0847
2003 1,1189
2004 1,0933
Bifreið tekin í notkun 2001 eða fyrr 12%
Verðbreytingastuðull
1998 1,2408
1999 1,2609
2000 1,2408
2001 1,2420
Bifreiðahlunnindi - takmörkuð afnot

Fólksbifreið er launagreiðandi lætur starfsmanni sínum í té til takmarkaðra afnota skal meta starfsmanni til tekna að svo miklu leyti sem hann notar bifreið í eigin þágu.

Með takmörkuðum afnotum er átt við að launamanni sé eingöngu heimilt að nota bifreið utan vinnutíma til aksturs milli heimilis og vinnustaðar og til einstakra tilfallandi afnota, enda sé hún að öðru leyti notuð í daglegum rekstri launagreiðanda.

Nánari upplýsingar um bifreiðahlunnindi.

Frá 1. janúar 2007 68 kr./km.
Önnur hlunnindi Meira
Einkennisfatnaður 25.000 kr.

Nái kostnaðarverð fatnaðar ekki framangreindu mati skal miða við kostnaðarverð.

Kveði lög eða stjórnvaldsfyrirmæli á um að launþegi skuli klæðast ákveðnum einkennisfatnaði við störf sín, til marks um handhöfn opinbers valds, eru slík afnot ekki metin til tekna.

Morgunverður 250 kr.
Hádegisverður eða kvöldverður 365 kr.
Fullt fæði á dag 980 kr.
Íbúðarhúsnæði og orlofshús Meira
Lán Meira

Einstaklingar

  • Helstu tölur

Eldri ár

  • Staðgreiðsla opinberra gjalda
  • Álagning

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook