Forsíða  > Fagaðilar  > Ákvarðandi bréf  > Óbeinir skattar  > 1998  > gakv_1998_870.is.html
Veftré   A- A+

Óbeinir skattar



Virðisaukaskattur - sala á fjarskiptaþjónustu til erlendra skipa

6. ágúst 1998 G-Ákv. 98-870 is

Vísað er til bréfs yðar, dags. 16. júlí sl., þar semóskað er eftir áliti ríkisskattstjóra á því hvort heimilt sé að fella niður virðisaukaskatt af sölu á fjarskiptaþjónustu til erlendra skipa.

Fjarskiptaþjónusta er þess eðlis að erfitt er að skeraúr um afhendingarstað með hefðbundnum hætti, enda má segja að afhending hefjist í einu landi og ljúki í öðru. Þess vegna er eðlilegt að líta fremur til þess hvar starfsstöð seljanda er til ákvörðunar um afhendingarstað. Þjónustan telst því vera nýtt á þeim stað sem hún er veitt.

Í ákvæði 10. töluliðar 1. mgr. 12. gr. laga nr.50/1988, um virðisaukaskatt, er fjallað um sölu á vissri þjónustu til erlendra aðila sem er undanþegin virðisaukaskattsskyldri veltu. Annars vegar er um að ræða þjónustu til aðila sem hvorki hafa búsetu né starfsstöð hér á landi enda sé hún að öllu leyti nýtt erlendis og hins vegar sölu á þjónustu til erlendra aðila þó að hún sé ekki nýtt að öllu leyti erlendis ef kaupandi gæti, væri starfsemi hans skráningarskyld hér á landi, talið virðisaukaskatt vegna kaupanna til innskatts. Í ákvæðinu er síðan talin upp sú þjónusta sem fellur undir ákvæðið og er fjarskiptaþjónusta tilgreind í i.-lið.

Undir ákvæðið falla kaup erlendra útgerðarfyrirtækjaá fjarskiptaþjónustu frá íslenskum aðilum enda væri starfsemi þeirra skráningarskyld hér á landi. Til frekari skýringa skal tekið fram að slík kaup af hálfu erlends fólksflutningafyrirtækis falla ekki undir ákvæðið.

Við útgáfu reikninga til kaupanda skal tekið fram hvortvirðisaukaskattur er innifalinn í heildarfjárhæðinni eða ekki sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 50/1993, um bókhald og tekjuskráningu virðisaukaskattsskylda aðila.

Með hliðsjón af framansögðu er ljóst að sala áfjarskiptaþjónustu til erlendra skipa er undanþegin virðisaukaskattsskyldri veltu ef ofangreind skilyrði 10. tölul. 1. mgr. 12. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt eru uppfyllt.

Virðingarfyllst,
f. h. Ríkisskattstjóra
Vala Valtýsdóttir.

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook