Útleiga skips og áhafnar - virðisaukaskattur
Vísað er til bréfs yðar. dags. 20. júlí 1998, þar semþér óskið álit ríkisskattstjóra á því, hvort yður beri að innheimta og standa skil á virðisaukaskatti vegna leigu báts og áhafnar í yðar eigu.
Í bréfi yðar kemur fram að þér hafið leigt bát yðarásamt áhöfn og tækjum til sýnatöku á vegum Hafrannsóknarstofnunar.
Sala og útleiga loftfara og skipa er undanþeginskattskyldri veltu skv. 6. tölul. 12. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Er þá einungis átt við þegar skip er leigt sérstaklega ásamt föstu fylgifé, þ.e. án annarrar þjónustu.
Í yðar tilviki er ekki um það að ræða að báturinnsé leigður heldur er um sölu á þjónustu til Hafrannsóknarstofnunar að ræða, þ.e.a.s. þér takið að yður það verkefni að veiða sýni fyrir stofnunina undir stjórn manns frá þeim.
Umrædd þjónusta fellur því ekki undir umrættundanþáguákvæði né önnur undanþáguákvæði virðisaukaskattslaga og ber yður því að innheimta og standa skil á virðisaukaskatti vegna þeirrar þjónustu.
Virðingarfyllst,
f. h. Ríkisskattstjóra
Vala Valtýsdóttir.

