Virðisaukaskattur af viðskiptum varnarliðsins við innlenda aðila.
Að gefnu tilefni hefur ríkisskattstjóri tekið tilathugunar þær verklagsreglur sem gilt hafa um framkvæmd 48. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt. Eftirfarandi er sent til viðeigandi meðferðar.
Sala til varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli telst salaúr landi í skilningi 1. tölul. 1. mgr. 12. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 48. gr. sömu laga. Sala til umrædds aðila telst því ekki til skattskyldrar veltu.
Í bréfi ríkisskattstjóra, dags. 6. desember 1990(tilvísun 177/90), segir eftirfarandi:
Með heimild í 1. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 501/1989, um bókhald og tekjuskráningu virðisaukaskattsskyldra aðila, hefur ríkisskattstjóri ákveðið að til grundvallar í bókhaldi innlends seljanda skuli liggja pöntun frá innkaupaskrifstofu varnarliðsins eða áritun tollvarða á afrit sölureiknings um að vara hafi verið flutt inn á varnarsvæðið.
Með heimild í 20. gr. reglugerðar nr. 50/1993, um bókhaldog tekjuskráningu virðisaukaskattsskyldra aðila, hefur ríkisskattstjóri ákveðið að einnig sé heimilt að fyrir liggi í bókhaldi innlends seljanda ljósrit af strimli úr greiðslukortavél sem sýni að Bandaríkjaher hafi greitt fyrir vöru eða þjónustu með greiðslukorti á nafni hersins, þ.e. korti á nafni U.S. Navy, U.S. Airforce, U.S. Army, U.S. Marines eða U.S. Coastguard.
Þetta á einungis við um greiðslukort sem gefin eru út ánafn Bandaríkjahers. Skráðum aðilum ber ætíð að innheimta virðisaukaskatt af sölu til einstakra varnarliðsmanna og aðila sem vinna í þágu varnarliðsins.
Virðingarfyllst,
f. h. Ríkisskattstjóra
Jón H. Steingrímsson.
