Virðisaukaskattur af óefnislegum réttindum/sala á afsetningarétti
Vísað er til bréfs yðar, dags. 26. ágúst 1998, þar semspurst er fyrir um, hvort innheimta beri virðisaukaskatt af afsetningarrétti.
Til svars erindinu skal tekið fram að skattskylda samkvæmtlögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, nær til hvers konar vöru og verðmæta, svo og vinnu og þjónustu, nema hún sé sérstaklega undanþegin í lögunum. Framsal óefnislegra réttinda er meðal þeirra viðskipta sem sem skattskyld eru samkvæmt þessum meginreglum. Gildir það að mati ríkisskattstjóra m.a um sölu á framleiðslurétti, sem er ákveðinn eftir verðmæti eða magni framleiddra eininga (t.d framleiðslurétti í landbúnaði), á hagnýtingu einkaleyfa og viðskiptavild.
Samkvæmt ofanrituðu er því sala áafsetningarrétti,þ.e. sölurétti eða loforði um sölu á ákveðnu magni af afurðum, skattskyld skv. virðisaukaskattslögum.
Virðingarfyllst,
f. h. Ríkisskattstjóra
Vala Valtýsdóttir

