Forsíða  > Fagaðilar  > Ákvarðandi bréf  > Óbeinir skattar  > 1998  > gakv_1998_885.is.html
Veftré   A- A+

Óbeinir skattar



Kennsla við Sjávarútvegsskóla

21. október 1998 G-Ákv. 98-885 is

Vísað er til bréfs yðar, dags. 23. september 1998, þarsem þér óskið staðfestingar á þeirri túlkun yðar, að kennsla verktaka við skólann sé undanþegin virðisaukaskatti.

Í bréfi yðar segir um skólann:

Sjávarútvegsskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna tók til starfa fyrr á þessu ári, skv. samningi milli ríkisstjórnar Íslands og Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Starfsemin fer fram innan Hafrannsóknarstofnunarinnar og í samvinnu við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, rannsóknarstofnun Fiskiðnaðarins og fleiri aðila. Starfsemin er fjármögnuð með sérstakri fjárveitingu frá utanríkisráðuneytinu, auk þess sem Háskóli S.þ. ber hluta kostnaðar.

Til svars erindinu skal tekið fram að skv. 3.tölul. 3.mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, er rekstur skóla og menntastofnana undanþegin virðisaukaskatti. Í greinargerð með frumvarpi til laganna kemur fram að með orðalaginu

rekstur skóla og menntastofnana

sé átt við alla venjulega skóla- og háskólakennslu, faglega menntun, endurmenntun og aðra kennslu- og menntastarfsemi sem unnið hefur sér fastan og almennan sess í skólakerfinu. Sérstaklega skal bent á að fagleg menntun og endurmenntun er undanþegin virðisaukaskatti ef kennslan miðar að því að viðhalda eða auka þekkingu vegna atvinnu eða menntunar þátttakenda.

Með tilliti til ofanritaðs er það mat ríkisskattstjóraað kennsla við Sjávarútvegsskólann sé undanþegin virðisaukaskatti.

Virðingarfyllst,
f. h. Ríkisskattstjóra
Vala Valtýsdóttir.

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook