Fjáröflun góðgerðarstarfsemi bygging á meðferðardeild
Vísað er til bréfs yðar, dags. 22. október sl., þar semóskað er eftir staðfestingu ríkisskattstjóra á því að fjáröflun X vegna byggingar á meðferðardeild fyrir ungt fólk sé undanþegin virðisaukaskatti auk þess sem beðið er um upplýsingar hvernig verslunum og öðrum sem taka á móti styrktarfé beri að meðhöndla greiðslur í bókhald.
Í bréfinu kemur fram að X mun efla til fjáröflunardagana 29. október til og með 8. nóvember nk. Fjáröflunin verður með þeim hætti að gegn greiðslu 300 kr. fær styrkveitandi afhent svokallað X-kort. Sú fjárhæð sem safnað verður með þessum hætti verður svo rennur síðan óskipt til styrktar byggingu á meðferðardeild fyrir ungt fólk á sjúkrahúsinu A. Verslanir og bensínstöðvar um land allt munu taka við styrkjum gegn afhendingu kortsins án sölulauna.
Það er álit ríkisskattstjóra að slíkgóðgerðarstarfsemi sem fjallað er um hér að framan sé undanþegin skattskyldu skv. 5. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, enda virðast skilyrði um ráðstöfun fjárhæðar auk annarra skilyrða uppfyllt að öllu leyti.
Að lokum skal tekið fram að í þessum tilvikum skalávallt sækja um staðfestingu skattstjóra um að skilyrði ákvæðisins séu uppfyllt og er slík staðfesting skattstjórans í Reykjavík væntanleg í dag.
Hvað varðar utanumhald "söluaðila" í bókhaldiþá ber þeim að aðgreina styrkgreiðslur sérstaklega í söluskráningarkerfi þannig að ef t.d. notuð er sjóðvél til tekjuskráningar þá skal koma sérstaklega fram á kassakvittun að salan sé án virðisaukaskatts. Þar sem hér er ekki um að ræða greiðslur vegna skattskyldrar sölu þá ber ekki að tilgreina þær með neinum hætti á virðisaukaskattsskýrslu.
Virðingarfyllst,
f. h. Ríkisskattstjóra
Vala Valtýsdóttir

