Forsíða  > Fagaðilar  > Ákvarðandi bréf  > Óbeinir skattar  > 1998  > gakv_1998_891.is.html
Veftré   A- A+

Óbeinir skattar



Innskattur vegna sameiginlegra innkaupa tveggja eða fleiri

24. nóvember 1998 G-Ákv. 98-891 is

Vísað er til bréfs yðar, dags. 29. október 1998, þarsem þér óskið álits embættisins á því hvernig húsfélag geti útbúið fylgiskjöl í hendur einstakra eigenda þannig að þeir geti nýtt sér innskattinn í sínum rekstri.

Í bréfi yðar kemur fram að um er að ræða svokallaðblandað húsnæði þ.e.a.s. að bæði eru íbúðir og atvinnurekstur í húsnæðinu. Hlutverk húsfélagsins er m.a. að jafna niður og innheimta vegna sameiginlegs kostnaðar.

Í 2. mgr. 15. gr. reglugerðar nr. 50/1993, um bókhald ogtekjuskráningu virðisauka-skattsskyldra aðila, segir að vegna sameiginlegra innkaupa tveggja eða fleiri rekstraraðila, sem einn sölureikningur er gefinn út fyrir, megi færsla á innskatti byggjast á sameiginlegri greinargerð þar sem fram komi nafn og kennitala allra kaupenda, svo og skipting verðs og virðisaukaskatts. Árita skal á frumrit sölureiknings hver varðveitir það. Ljósrit sölureiknings skal liggja fyrir í bókhaldi allra aðila ásamt greinargerð ef hún er gerð á sérstöku skjali.

Ríkisskattstjóri getur fallist á að þessi aðferð séviðhöfð ef reikningar sem um ræðir eru stílaðir á einhvern hinna virðisaukaskattsskyldu rekstraraðila, jafnvel þó sumir greiðendanna séu íbúðareigendur.

Virðingarfyllst,
f. h. Ríkisskattstjóra
Vala Valtýsdóttir

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook