Vsk - leiðbeiningar
Almennar leiðbeiningar um virðisaukaskatt hafa veriðendurútgefnar. Leiðbeiningar þessar (Virðisaukaskattur - leiðbeiningar og dæmi (RSK 11.19)) eru endurútgáfa fyrri leiðbeininga um sama efni (Virðisaukaskattur - leiðbeiningar (RSK 11.19)) frá árinu 1995. Leiðbeiningarnar eru byggðar upp með svipuðu móti og áður, en eru þó nokkuð ítarlegri. Leiðbeiningarnar miðast við gildandi rétt í desember 1998 og eru prentaðar í janúar 1999.
Uns prentað eintak liggur fyrir má fá leiðbeiningarnar íljósriti hjá virðisaukaskattsskrifstofu ríkisskattstjóra. Einnig má ávallt nálgast þær á upplýsingavef ríkisskattstjóra (www.rsk.is)
Virðingarfyllst,
f. h. Ríkisskattstjóra
Ingibjörg Ingvadóttir

