Forsíða  > Fagaðilar  > Ákvarðandi bréf  > Óbeinir skattar  > 1999  > gakv_1999_915.is.html
Veftré   A- A+

Óbeinir skattar



Virðisaukaskattur - fjallskil - dagsverk

7. júlí 1999 G-Ákv. 99-915 is

Vísað er til bréfs yðar dags. 29. desember sl. þar semóskað er eftir áliti ríkisskattstjóra á að virðisaukaskattur sé lagður á unnið dagsverk sem ákveðið er af fjallskilanefnd samkvæmt fjallskilareglugerð. Með bréfinu fylgir samþykkt fjallskilanefndar A og B dags. 26. ágúst sl. þar sem fram kemur að dagsverkið reiknast á kr. 5.000. Einnig hefur verið lögð fram fjallskilareglugerð fyrir C austan vatna, sbr. símbréf dags. 17. desember sl.

Til svars við erindi yðar skal eftirfarandi tekið fram:

Meðal lögboðinna verkefna sveitarstjórna er að annaststjórn og framkvæmd fjallskila, sbr. 1. mgr. 7. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 og V. kafla laga nr. 6/1986, um afréttamálefni, fjallskil o.fl. Verkefni sveitarstjórnar er lúta að fjallskilum eru opinber starfsemi sem ekki verður talin rekin í samkeppni við atvinnufyrirtæki, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 248/1990, um virðisaukaskatt af skattskyldri starfsemi opinberra aðila. Sem slík eru verkefnin ekki virðisaukaskattsskyld, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Ákvörðuð framlög fjallskilaskyldra aðila, hvort heldur þau eru innt af hendi með vinnuframlagi eða með greiðslu fjár í fjallskilasjóð, bera því ekki virðisaukaskatt.

Rétt þykir að taka fram að sveitarstjórn skal greiðavirðisaukaskatt samkvæmt almennum reglum af aðföngum við rækslu hinna lögboðnu verkefna við fjallskil og á ekki rétt til endurgreiðslu þess skatts.

Beðist er velvirðingar á þeirri töf sem orðið hefur áað svara fyrirspurn yðar.

Virðingarfyllst,
f. h. Ríkisskattstjóra
Ingibjörg Ingvadóttir
Sigurjón Högnason

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook