Flutningsmiðlarar - greiðsluskjöl í tolli - útlagður kostnaður.
Að gefnu tilefni þykir ríkisskattstjóra rétt að geragrein fyrir því hvernig haga skal uppgjöri milli miðlara og innflytjanda.
Flutningsmiðlari fær greiðsluskjal í tolli þar sem framkemur nafn innflytjanda og miðlara. Greiðsluskjalið er innskattsskjal innflytjanda en ekki flutningsmiðlara og þarf því að vera í bókhaldi innflytjandans. Flutningsmiðlarinn gerir upp við innflytjandann skv. 21. gr. reglugerðar nr. 50/1993, um bókhald og tekjuskráningu virðisaukaskattsskyldra aðila, þar sem um útlagðan kostnað er að ræða. Uppgjör aðila má ekki fara fram á sölureikningi, heldur á sérstöku skjali. Á uppgjörinu skal tilgreina fjárhæðir allra greiðsluskjala eða greiðsluskjals, ásamt tegundum kostnaðar og nöfnum seljanda. Frumrit uppgjörsins skal vera í bókhaldi innflytjanda en áritað samrit skal vera bókhaldsskjal flutningsmiðlarans.
Hins vegar innheimtir flutningsmiðlarinn virðisaukaskattvegna þóknunar sinnar á sölureikningi, samkvæmt 20. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.
Virðingarfyllst,
f. h. Ríkisskattstjóra
Harpa Kristjánsdóttir
Ingibjörg Ingvadóttir

