Forsíða  > Fagaðilar  > Auglýsingar  > Rikisskattstjóra  > 2000  > auglysing_2000_13.is.html
Veftré   A- A+

Rikisskattstjóra



Auglýsing nr. 13/2000, matsreglur um frádrátt fastrar fjárhæðar vegna ferðakostnaðar einstaklinga með atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi.

3. júlí 2000, nr. 2000 - 13

Matsreglur um frádrátt fastrar fjárhæðar vegna ferðakostnaðar einstaklinga með atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi.

1. gr.

Frá tekjum manna af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi er heimilt, í stað kostnaðar samkvæmt reikningi, að draga fasta fjárhæð vegna ferðakostnaðar erlendis, annars en gisti- og fæðiskostnaðar. Fjárhæð þessi getur hæst orðið 30% af þeim hluta dagpeninga samkvæmt gildandi skattmatsreglum ríkisskattstjóra sem er vegna annars kostnaðar en gistingar.

2. gr.

Reglur þessar, sem settar eru samkvæmt heimild í c-lið 6. gr. reglugerðar nr. 483/1984, um frádrátt frá tekjum manna af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi, öðlast þegar gildi.

Reykjavík, 3. júlí 2000

Ríkisskattstjóri

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook