Forsíða  > Fagaðilar  > Auglýsingar  > Rikisskattstjóra  > 2005  > auglysing_2005_10.is.html
Veftré   A- A+

Rikisskattstjóra



Auglýsing nr. 10/2005

Um framlengingu á fresti skattstjóra til að úrskurða kærur vegna álagningar opinberra gjalda á menn 2005.

14. október 2005
nr. 2005 - 10

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið með vísan til 120. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt og eignarskatt, að framlengja þann tveggja mánaða frest, sbr. 99. gr. tilvitnaðra laga, sem skattstjórum er settur til að úrskurða þær kærur, er bárust fyrir lok kærufrests þann 29. ágúst s.l. vegna þeirrar álagningar á menn, sem auglýst var lokið 29. júlí 2005, sbr. auglýsingu í Lögbirtingablaðinu sem birt var þann dag.

Samkvæmt framansögðu framlengist ofangreindur frestur til 7. febrúar 2006.

Auglýsing þessi tekur þegar gildi.

Reykjavík 14. október 2005
Ingvar J. Rögnvaldsson
vararíkisskattstjóri

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook