Forsíða  > Fagaðilar  > Auglýsingar  > Rikisskattstjóra  > 2007  > auglysing_2007_01
Veftré   A- A+

Rikisskattstjóra



Auglýsing ríkisskattstjóra nr. 1/2007
um skil á upplýsingum á árinu 2007 samkvæmt 92. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt vegna framtalsgerðar o.fl.

5. janúar 2007 nr. 2007 - 1

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að eftirtöldum upplýsingum og gögnum vegna ársins 2006 skuli skilað eigi síðar en 6. febrúar 2007. Upplýsingum þessum skal, ef unnt er, skilað á tölvutæku formi, annað hvort í gagnaskilakerfi ríkisskattstjóra eða samkvæmt færslulýsingu, sem finna má á slóðinni www.rsk.is/fagadilar/hughus/wsgagnaskil

Sé upplýsingunum ekki skilað á tölvutæku formi skal þeim skilað til skattstjóra þess umdæmis, þar sem skilaskyldur aðili á lögheimili 31. desember 2006, eigi síðar en 26. janúar 2007 á tilgreindum eyðublöðum sem einnig má finna á vef ríkisskattstjóra, undir eyðublöð.

  1. Launamiðar og verktakamiðar (RSK 2.01)
    Skilaskyldir eru allir þeir sem innt hafa af hendi launagreiðslur, hlunnindi, lífeyri, bætur, styrki, happdrættis- og talnavinninga (skattskylda sem óskattskylda), greiðslur til verktaka fyrir þjónustu (efni eða vinnu) eða aðrar greiðslur sem framtalsskyldar eru og/eða skattskyldar skv. 7. gr. laga nr. 90/2003.
    Skilaform:
    • Rafrænt
      • Beinar skeytasendingar m.a. úr launakerfum með vefþjónustu.
      • Skráning upplýsinga í Gagnaskilakerfi RSK.
      • Innlestur textaskráa, sem útbúnar eru m.a. með launakerfum, í Gagnaskilakerfi RSK.
      • Sending textaskráa á diskum til skattstjóra ásamt samtöluupplýsingum á pappír.
      • Sjá nánar Gagnaskil  og færslulýsingu launamiða (pdf).
    • Pappír

    Tengiliður RSK:

    Skiladagur:

    • 6. febrúar ef skilað er á rafrænu formi, annars 26. janúar.
  2. Bifreiðahlunnindamiðar (RSK 2.035).
    Skilaskyldir eru allir þeir sem í rekstri sínum eða annarri starfsemi hafa haft kostnað af kaupum, leigu eða rekstri fólksbifreiðar og ekki fylla út RSK 4.03 vegna hennar.
    Skilaform:
    • Sjá orðsendingu sem send verður skilaskyldum aðilum í janúar.

    Tengiliður RSK:

  3. Hlutafjármiðar (RSK 2.045).
    Skilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög, samvinnuhlutafélög og sparisjóðir. Sé upplýsingunum ekki skilað á rafrænu formi skal jafnframt skila samtalningsblaði (RSK 2.04).
    Skilaform:
    • Rafrænt
      • Beinar skeytasendingar m.a. úr fjárhagskerfum með vefþjónustu.
      • Skráning upplýsinga í Gagnaskilakerfi RSK.
      • Innlestur textaskráa, sem útbúnar eru m.a. með launakerfum, í Gagnaskilakerfi RSK.
      • Sending textaskráa á diskum til skattstjóra ásamt samtöluupplýsingum á pappír.
      • Sjá nánar Gagnaskil og færslulýsingu launamiða (pdf).
    • Pappír

    Tengiliður RSK:

    Skiladagur:

    • 6. febrúar ef skilað er á rafrænu formi, annars 26. janúar.
  4. Launaframtal (RSK 1.05).

    Allir sem greiða laun eiga kost á að skila sundurliðun á launagreiðslum (stofn til tryggingagjalds) rafrænt og þurfa því ekki að skila Launaframtali RSK 1.05.

    Hjá einstaklingum með rekstur er launaframtalið hluti af samræmingarblaði RSK 4.05, hjá fyrirtækjum í atvinnurekstri er það hluti af skattframtali rekstraraðila RSK 1.04 og hjá félögum sem undanþegin eru tekjuskatti er það hluti af rafrænum gögnum sem nú er hægt að skila á þjónustusíðu, RSK 1.06

    Skilaform:

    Tengiliður RSK:

    Skiladagur:

    • 26. janúar ef framtalinu er skilað á pappír.
      Ef launaframtali er skilað rafrænt fylgir það skilafresti vegna framtala, þ.e. síðasti skiladagur er 21. mars hjá einstaklingum og 31. maí hjá öllum lögaðilum.
  5. Skýrsla um viðskipti með hlutabréf (RSK 2.08).
    Skilaskyldir eru bankar, verðbréfafyrirtæki og aðrir þeir aðilar sem annast kaup og sölu, umboðsviðskipti og aðra umsýslu með hlutabréf.
    Skilaform:
    • Rafrænt
      • Hægt er að skila skattyfirvöldum textaskrá á diski eða á XML sniði, sjá nánar.
    • Pappír

    Tengiliður RSK:

    Skiladagur:

    • 6. febrúar ef skilað er á rafrænu formi, annars 26. janúar.
  6. Lán til einstaklinga (fasteignaveðlán, bílalán og önnur lán).
    Skilaskyldar eru fjármálastofnanir (bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir, tryggingafélög, fjármögnunarleigur o.s.frv.) sem hafa lánað fé til einstaklinga.
    Skilaform:

    Tengiliður RSK:

    Skiladagur:

    • 6. febrúar.
  7. Stofnsjóðsmiðar (RSK 2.065).
    Skilaskyld eru öll samvinnufélög, þ.m.t. kaupfélög. Sé upplýsingunum ekki skilað á rafrænu formi skal jafnframt skila samtalningsblaði (RSK 2.06).
    Skilaform:
    • Rafrænt
      • Stofnsjóðsmiðum er hægt að skila í textaskrá, sjá færsluteikningu (pdf). Afhending fer fram með því að senda skattstjóra skránna á diski. Fljólega verður opnað fyrir innlestur og skráningu Stofnsjóðsmiða í Gagnaskilakerfinu (um Gagnaskil).
    • Pappír

    Tengiliður RSK:

    Skiladagur:

    • 6. febrúar ef skilað er á rafrænu formi, annars 26. janúar.
  8. Takmörkuð skattskylda - greiðsluyfirlit (RSK 2.025).
    Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur til erlendra aðila og annarra, sem bera takmarkaða skattskyldu hér á landi, og skattskyldar eru skv. 3. tölul. (þjónusta eða starfsemi innt af hendi hér á landi) og 6. tölul. (leiga og greiðslur fyrir afnot eða hagnýtingu einkaleyfa og hvers konar annarra leyfa, réttinda, sérþekkingar, o.fl.) 3. gr. laga nr. 90/2003.
    Skilaform:

    Tengiliður RSK:

    Skiladagur:

    • 26. janúar.
  9. Greiðslumiðar – leiga eða afnot (RSK 2.02).
    Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum, sbr. 1. og 2. tölulið C-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, svo og fyrir greiðslur fyrir sérhver önnur afnot af réttindum, s.s. aflaheimildum, einkaleyfum eða sérþekkingu, enda sé ekki gerð grein fyrir þessum greiðslum á öðrum skilagreinum sem taldar eru upp hér að framan.
    Skilaform:
    • Rafrænt
      • Greiðslumiði fylgir skattframtali einstaklinga á vefnum og er skilað með því sé það notað.
      • Einnig má senda greiðslumiða sem launamiða (sjá hér að ofan). Þá er notaður reitur 65 á launamiða. Launamiðum er hægt að skila; beint úr launakerfum, með innlestri á textaskrá í Gagnaskilakerfinu (sjá Gagnaskil) eða með skráningu í sama kerfi.
    • Pappír

    Tengiliður RSK:

    Skiladagur:

    • 6. febrúar ef skilað er á rafrænu formi sem launamiði.
      Sami skiladagur og skattframtal einstaklinga ef skilað er með því, annars 26. janúar ef skilað er á pappír.
  10. Hlutabréfakaup skv. kaupréttarsamningi (RSK 2.085).
    Skilaskyld eru öll hlutafélög sem gert hafa kaupréttarsamninga við starfsmenn sína samkvæmt staðfestri kaupréttaráætlun, sbr. 10. gr. laga nr. 90/2003.
    Skilaform:+

    Tengiliður RSK:

    Skiladagur:

    • 26. janúar.

Auglýsing þessi, sem sett er samkvæmt 92. og 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.

Reykjavík, 5. janúar 2007
Skúli Eggert Þórðarson
ríkisskattstjóri

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook