Forsíða  > Fagaðilar  > Auglýsingar  > Rikisskattstjóra  > 2011  > auglysing_2011_03.is.html
Veftré   A- A+

Rikisskattstjóra



Auglýsing um álagningu opinberra gjalda á lögaðila 2011.


Álagningu opinberra gjalda er lokið á lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla, og 4. mgr. 71. gr. af fjármagnstekjum, og aðra þá sem lagt skal á vegna tekjuársins 2010 skv. VIII.-XIV. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra á www.rsk.is og www.skattur.is.

Álagningarskrár, sem sýna álagða skatta á lögaðila í viðkomandi sveitarfélagi, liggja frammi á skattstofum eða sérstaklega auglýstum stöðum dagana 27. október til 10. nóvember að báðum dögum meðtöldum.

Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur mánudaginn 28. nóvember 2011.

Auglýsing þessi er birt, sbr. 98. gr. framgreindra laga.


27. október 2011

Skúli Eggert Þórðarson
ríkisskattstjóri

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook