Auglýsing um álagningu opinberra gjalda lögaðila árinu 2007.
Hér með er auglýst að álagningu opinberra gjalda á árinu 2007 er lokið á alla lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, með síðari breytingum, sem og aðra sem lagt er á í samræmi við VIII. – XIV. kafla tilvitnaðra laga. Jafnframt er lokið álagningu á lögaðila, sem skattskyldir eru af fjármagnstekjum samkvæmt ákvæði 4. mgr. 71. gr. laganna.
Álagningarskrár með gjöldum lögaðila verða lagðar fram í öllum skattumdæmum í dag miðvikudaginn 31. október 2007. Skrárnar liggja frammi til sýnis á skattstofu hvers skattumdæmis og hjá umboðsmönnum skattstjóra eða á sérstaklega auglýstum stöðum í hverju sveitarfélagi dagana 31. október til 14. nóvember nk. að báðum dögum meðtöldum.
Álagningarseðlar, er sýna álögð opinber gjöld lögaðila hafa verið póstlagðir.
Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda 2007 samkvæmt ofangreindu skulu hafa borist skattstjóra eigi síðar en fimmtudaginn 30. nóvember 2007.
Auglýsing þessi er birt samkvæmt ákvæði 1. mgr. 98. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt með síðari breytingum.
Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson.
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson.
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Guðrún Björg Bragadóttir.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra, Bogi Sigurbjörnsson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra, Gunnar Karlsson.
Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi, Karl S. Lauritzson.
Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Steinþór Haraldsson.
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi T. Björnsson.
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson.
Vantar þig aðstoð?
- Senda fyrirspurn á rsk@rsk.is
-
Hringdu í þjónustuver 442-1000
Opið 9:30 - 15:30 virka daga
- Yfirlit yfir símavaktir á næstunni
- Hvar er næsta skattstofa?
- Skoða spurt og svarað
