Auglýsingar

Auglýsing ríkisskattstjóra nr. 1/2013

4.1.2013

(nr. 3/2013 í Stjórnartíðindum)
um skil á upplýsingum á árinu 2013, vegna framtalsgerðar o.fl., samkvæmt 92. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.


3. janúar 2013 nr. 2013 - 1


Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að eftirtöldum upplýsingum og gögnum vegna ársins 2012 skuli skilað eigi síðar en 10. febrúar 2013. Upplýsingum þessum skal skilað á tölvutæku formi og samkvæmt lýsingum á vef ríkisskattstjóra, á slóðinni www.rsk.is/fagadilar/hugbunadarhus.

Á árinu 2013 mun þó verða tekið við pappírsgögnum, ef ekki er unnt að skila á tölvutæku formi. Sé upplýsingunum ekki skilað á tölvutæku formi skal þeim skilað á næstu skattstofu eða til aðalskrifstofu ríkisskattstjóra Laugavegi 166, eigi síðar en 30. janúar 2013, á tilgreindum eyðublöðum sem einnig má finna á vef ríkisskattstjóra, www.rsk.is, undir eyðublöð.

  1. Launamiðar og verktakamiðar (RSK 2.01).
    Skilaskyldir eru allir þeir sem innt hafa af hendi launagreiðslur, hlunnindi, lífeyri, bætur, styrki, happdrættis- og talnavinninga (skattskylda sem óskattskylda), greiðslur til verktaka fyrir þjónustu (efni og vinnu) eða aðrar greiðslur sem framtalsskyldar eru og/eða skattskyldar skv. 7. gr. laga nr. 90/2003.
    Skilaform:
    • Rafrænt
      • Beinar skeytasendingar m.a. úr launakerfum með vefþjónustu.
      • Skráning upplýsinga í Gagnaskilakerfi RSK.
      • Innlestur skráa, sem útbúnar eru m.a. með launakerfum, í Gagnaskilakerfi RSK.
      • Sjá nánar um Gagnaskil.
    • Pappír
    Tengiliður RSK:
    Skiladagur:
    • 10. febrúar ef skilað er á rafrænu formi, annars 30. janúar.
  2. Bifreiðahlunnindamiðar (RSK 2.035).
    Skilaskyldir eru allir þeir sem í rekstri sínum eða annarri starfsemi hafa haft kostnað af kaupum, leigu eða rekstri fólksbifreiðar og ekki fylla út RSK 4.03 vegna hennar.
    Skilaform:
    • Rafrænt
      • Beinar skeytasendingar m.a. úr launakerfum með vefþjónustu.
      • Skráning upplýsinga í Gagnaskilakerfi RSK.
      • Innlestur skráa, sem útbúnar eru m.a. með launakerfum, í Gagnaskilakerfi RSK.
      • Sjá nánar um Gagnaskil.
    • Pappír
    Tengiliður RSK:
    Skiladagur:
    • 10. febrúar ef skilað er á rafrænu formi, annars 30. janúar.
  3. Hlutafjármiðar (RSK 2.045).
    Skilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög, samlagshlutafélög, samvinnuhlutafélög og sparisjóðir. Sé upplýsingunum ekki skilað á rafrænu formi skal jafnframt skila samtalningsblaði (RSK 2.04).
    Skilaform:
    • Rafrænt
      • Beinar skeytasendingar m.a. úr fjárhagskerfum með vefþjónustu.
      • Skráning upplýsinga í Gagnaskilakerfi RSK.
      • Innlestur skráa, sem útbúnar eru m.a. með launakerfum, í Gagnaskilakerfi RSK.
      • Sjá nánar um Gagnaskil.
    • Pappír
    Tengiliður RSK:
    Skiladagur:
    • 10. febrúar ef skilað er á rafrænu formi, annars 30. janúar.
  4. Launaframtal (RSK 1.05).
    Allir sem greiða laun eiga kost á að skila sundurliðun á launagreiðslum (stofn til tryggingagjalds) rafrænt sem hluta af almennum framtalsskilum og þurfa því ekki að skila Launaframtali RSK 1.05 á pappír. Hjá einstaklingum með rekstur er launaframtalið hluti af samræmingarblaði RSK 4.05, hjá fyrirtækjum í atvinnurekstri er það hluti af skattframtali rekstraraðila RSK 1.04 og hjá félögum sem undanþegin eru tekjuskatti er það hluti af skattframtali óskattskyldra lögaðila RSK 1.06 sem hægt er að skila á þjónustusíðu á skattur.is.
    Einstaklingar og óskattskyld félög, sem alls ekki telja sig geta skilað rafrænu launaframtali, skulu nota eyðublaðið RSK 1.05 og skila því með launamiðum eigi síðar en 30. janúar 2013.
    Skilaform:
    • Rafrænt, á þjónustusíðu á skattur.is, sbr. ofanritað.
    • Hægt að skila á pappír, sjá eyðublað RSK 1.05 og orðsendingu til launagreiðanda nr. 3/2012.
    Tengiliður RSK:
    Skiladagur:
    • 30. janúar ef framtalinu er skilað á pappír.
    • Ef launaframtali er skilað rafrænt fylgir það skilafresti vegna framtala, þ.e. síðasti skiladagur er 21. mars hjá einstaklingum og 31. maí hjá öllum lögaðilum.
  5. Viðskipti með hlutabréf.
    Skilaskyldir eru bankar, verðbréfafyrirtæki og aðrir þeir aðilar sem annast kaup og sölu, umboðsviðskipti og aðra umsýslu með hlutabréf. Sundurliða skal upplýsingar um hver viðskipti á kennitölu eða erlent skattauðkennisnúmer (TIN) viðskiptaaðila.
    Skilaform:
    Tengiliður RSK:
    Skiladagur:
    • 10. febrúar.
  6. Bankainnstæður.
    Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir og aðrir aðilar sem taka við fjármunum til ávöxtunar. Tilgreina skal, sundurliðað á kennitölu eða erlent skattauðkennisnúmer (TIN) viðskiptaaðila, upplýsingar um alla bankareikninga og vaxtatekjur, þ.m.t. verðbætur, afföll og gengishagnað, hvort heldur greitt hefur verið til erlendra eða innlendra aðila og afdregna staðgreiðslu af þeim, og stöðu reikninganna í árslok. Þá skal upplýsa um alla vexti af kröfum greiddum erlendum aðilum, sbr. 8. tölul. 3. gr. laga nr. 90/2003 og þann afdrátt staðgreiðslu, sem skilaskyldur er og stöðu þessara krafna í árslok.
    Skilaform:
    Tengiliður RSK:
    Skiladagur:
    • 10. febrúar.
  7. Viðskipti með verðbréf.
    Viðskipti með verðbréf önnur en hlutabréf. sbr. 5. tölul. hér að ofan. Tilgreina skal, sundurliðað á kennitölu eða erlent skattauðkennisnúmer (TIN) viðskiptaaðila, upplýsingar um öll verðbréf, s.s. kröfur, hlutdeildarskírteini og afleiðusamninga. Tilgreina skal vaxtatekjur, þ.m.t. verðbætur, afföll og gengishagnað, hvort heldur greitt hefur verið erlendum eða innlendum aðilum og afdregna staðgreiðslu af þeim, og stöðu í árslok.
    Flokka skal fjármálagerninga í almenna, sérstaka (kúlubréf, s.s. spariskírteini) og afleiður.  Vaxtatekjur af sérstökum verðbréfum, sem seld voru eða innleyst á árinu 2012, þarf að sundurliða eftir því sem þær hafa áunnist.
    Skilaform:
    Tengiliður RSK:
    Skiladagur:
    • 10. febrúar.
  8. Lánaupplýsingar (bankalán, fasteignaveðlán, bílalán og önnur lán).
    Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir (bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir, tryggingafélög, fjármögnunarleigur o.s.frv.) sem hafa lánað fé til einstaklinga og lögaðila. Jafnframt skal veita upplýsingar um fjárhæðir eftirgefinna eða afskrifaðra lána (krafna) að hluta eða öllu leyti.
    Skilaform:
    Tengiliður RSK:
    Skiladagur:
    • 10. febrúar.
  9. Stofnsjóðsmiðar (RSK 2.065). 
    Skilaskyld eru öll samvinnufélög, þ.m.t. kaupfélög. Sé upplýsingunum ekki skilað á rafrænu formi skal jafnframt skila samtalningsblaði (RSK 2.06).
    Skilaform:
    Tengiliður RSK:
    Skiladagur:
    • 10. febrúar ef skilað er á rafrænu formi, annars 30. janúar.
  10. Takmörkuð skattskylda - greiðsluyfirlit (RSK 2.025).
    Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur til erlendra aðila og annarra, sem bera takmarkaða skattskyldu hér á landi, og skattskyldar eru skv. 3. tölul. (þjónusta eða starfsemi innt af hendi hér á landi) og 6. tölul. (leiga og greiðslur fyrir afnot eða hagnýtingu einkaleyfa og hvers konar annarra leyfa, réttinda, sérþekkingar, o.fl.) 3. gr. laga nr. 90/2003.
    Skilaform:
    • Rafrænt, Hægt er að skila þessu eyðublaði með skattframtali í rafrænum framtalsskilum.
    • Pappír, sjá eyðublað RSK 2.025 (pdf).
    Tengiliður RSK:
    Skiladagur:
    • 30. janúar ef skilað er á pappír. Sami skiladagur og á skattframtali, ef skilað er með því.
  11. Greiðslumiðar – leiga eða afnot (RSK 2.02).
    Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum, sbr. 1. og 2. tölulið C-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, svo og fyrir greiðslur fyrir sérhver önnur afnot af réttindum, s.s. aflaheimildum, einkaleyfum eða sérþekkingu, enda sé ekki gerð grein fyrir þessum greiðslum á öðrum skilagreinum sem taldar eru upp hér að framan.
    Skilaform:
    • Rafrænt
      • Greiðslumiði fylgir skattframtali á vefnum og er skilað með því sé það notað.
      • Einnig má senda greiðslumiða sem launamiða (sjá hér að ofan). Þá er notaður reitur 65 á launamiða. Launamiðum er hægt að skila; beint úr launakerfum, með innlestri á textaskrá í Gagnaskilakerfinu (sjá Gagnaskil) eða með skráningu í sama kerfi.
    • Pappír
    Tengiliður RSK:
    Skiladagur:
    • 10. febrúar ef skilað er á rafrænu formi sem launamiði.
    • Sami skiladagur og skattframtal ef skilað er með því, annars 30. janúar ef skilað er á pappír.
  12. Hlutabréfakaup skv. kaupréttarsamningi (RSK 2.085).
    Skilaskyld eru öll hlutafélög sem gert hafa kaupréttarsamninga við starfsmenn sína samkvæmt staðfestri kaupréttaráætlun, sbr. 10. gr. laga nr. 90/2003. Sama á við um söluréttarsamninga.
    Skilaform:
    Tengiliður RSK:
    Skiladagur:
    • 30. janúar.
  13. Fjármagnstekjumiði.
    Þeir aðilar sem innheimt hafa vexti (þ.m.t. verðbætur og dráttarvexti) skulu skila fjármagnstekjumiða með sundurliðun á móttakendum og staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts sem haldið hefur verið eftir. Hér er einkum um að ræða smærri innheimtuaðila, t.d. lögfræðistofur. Þessum miða er eingöngu hægt að skila rafrænt (sjá www.rsk.is/fagadilar/hugbunadarhus/gagnaskil-vefthjonusta/).
    Skilaform:
    Tengiliður RSK:
    Skiladagur:
    • 10. febrúar.

Ef skilað er röngum eða gölluðum upplýsingum, eða ef þær eru á annan hátt ekki samkvæmt skilalýsingu, þarf skilaskyldur aðili, eftir atvikum, að greiða þann kostnað sem af því kann að hljótast.

Allar fyrirspurnir vegna gagnaskila má senda á netfangið gagnaskil@rsk.is.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt 92. og 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.

Reykjavík, 3. janúar 2013
Skúli Eggert Þórðarson
ríkisskattstjóri



Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum