Forsíða  > Fagaðilar  > Frestir fagmanna
Veftré   A- A+

Frestir þeirra sem hafa atvinnu af framtalsgerð til að skila framtölum 2010

Reykjavík, 30. janúar 2010

Ríkisskattstjóri hefur sett eftirfarandi reglur og skilmála, sem raktir eru í bréfi þessu og jafnframt birtir á vef RSK; rsk.is. Frestir þessir eru umfram almenna framtalsfresti (sbr. auglýsingu ríkisskattstjóra dags. 29. janúar 2010) og eru því háðir skilmálum þeim, er að neðan greinir.

Sérstakir skilmálar:

Framlengingu á almennum skilafresti vegna einstakra framtalsskyldra aðila samkvæmt reglum þessum fá þeir er hafa atvinnu af framtalsgerð og fallast á skilmála þessa. Frestveiting miðast við rafræn skil á framtölum, nema í skilgreindum undantekningartilfellum. Þetta þýðir að skattframtali 2010, sem skilað er í framlengdum framtalsfresti, skal skilað á rafrænu formi. Jafnframt skal undantekningalaust einnig skila viðkomandi fylgiblöðum framtalsins, þar með talið ársreikningi ef við á, á rafrænu formi.

  1. Atvinnumaður skal skila lista yfir alla þá sem hann hyggst skila framtölum fyrir, flokkaðan í neðangreinda flokka:
    1. Einstaklingar utan rekstrar.
    2. Einstaklingar með rekstur.
    3. Lögaðilar.
  2. Frestur miðast við að framtölum sé skilað hlutfallslega sem hér segir:
    1. Einstaklingar utan rekstrar:
      • 15. apríl   35%
      • 30. apríl   75%
      • 15. maí   100%
    2. Einstaklingar með rekstur:
      • 15. apríl   35%
      • 30. apríl   60%
      • 15. maí   80%
      • 25. maí   100%
    3. Lögaðilar:
      • 31. maí   30%
      • 30. júní   60%
      • 15. ágúst   80%
      • 10. sept.   100%
  3. Skil skulu vera jöfn og eiga sér stað a.m.k. vikulega í hverjum áfanga.
  4. Almennar reglur X. - XIV. kafla laga nr. 90/2003 gilda þegar frestum sleppir.

Almennir skilmálar:

Almennt skal gæta eftirfarandi atriða við skil á framtölum, ársreikningum og öðrum framtalsgögnum:

  • Skattframtali manns í atvinnurekstri skal fylgja ársreikningur auk tilskilinna fylgiskjala. Réttilega útfyllt eyðublað RSK 4.11, sem uppfyllir jafnframt öll skilyrði III. kafla laga um bókhald, telst fullnægjandi ársreikningur í þessu tilliti. Sé eðli starfseminnar hins vegar þannig að sundurliðun á tekjum, gjöldum, eignum og skuldum samkvæmt RSK 4.11 gefi ekki skýra mynd af henni skal sérstakur ársreikningur fylgja framtali ásamt RSK 4.11.
  • Framtali hvers lögaðila, skal undantekningarlaust fylgja undirritaður (sjá þó næstu málsgr.) ósamandreginn ársreikningur þess félags ásamt skýringum. Fjárhæðir á RSK 1.04 skulu þannig grundvallast á ársreikningi hvers einstaks félags vegna rekstrar þess – óháð því, hvort framteljandi hefur stöðu móður- eða dótturfélags innan fyrirtækjasamstæðu. Í þeim tilfellum, þegar ríkisskattstjóri hefur heimilað samsköttun, skv. 55. gr. laga nr. 90/2003, skal að auki fylgja samstæðureikningur.
  • Sé ekki sent rafrænt skannað og undirritað afrit ársreiknings skal sendandi tilgreina í ársreikningi nöfn stjórnarmanna og staðfesta jafnframt við sendingu hins rafræna afrits að undirritað frumeintak sé til staðar.
  • Ársreikningi og öðrum tilskildum fylgiskjölum lögaðila skal skila rafrænt (nema í skilgreindum undantekningartilvikum) á sama tíma og skattframtali.
  • Rafrænum ársreikningum er skilað annað hvort samhliða sendingu skattframtals úr framtalsforriti eða á þjónustuvefnum, skattur.is og á það jafnt við um ársreikninga lögaðila sem og ársreikninga manna í atvinnurekstri.
  • Í þeim undantekningartilvikum, þegar ekki er boðið upp á rafræn skil, skal nota árituð eyðublöð framteljenda eins og frekast er kostur. Í þessum undantekningartilvikum er þó jafnframt heimilt að skila framtölum á eyðublöðum, sem prentuð eru með litarasta úr framtalsforritum, sem vottuð hafa verið af ríkisskattstjóra.
  • Framtalsgögn verði í öllum ofangreindum undantekningartilfellum einnig merkt þeim sem framtalsgerð annast.
  • Ársreikningar og önnur gögn, sem send kunna að vera á pappír, skulu auðkennd á forsíðu með kennitölu (fjölskyldunúmeri), nafni og sveitarfélagi skattaðila.

Umsóknir um frest til skila á skattframtölum 2010, sbr. ofangreinda skilmála, skal senda rafrænt, sbr. neðanskráð, til ríkisskattstjóra í síðasta lagi:
Fimmtudaginn 1. apríl vegna manna.
Miðviðudaginn 2. júní vegna lögaðila.

Umsóknum skal skila:

  • Með sendingu frestlista úr því framtalsforriti, sem notað er til skila á framtalsgögnum, eða
  • Á vef ríkisskattstjóra, enda sé leið A ekki fyrir hendi; Frestumsóknir atvinnumanna 2010. Slóðin er: rsk.is/frestur. Þar skal í upphafi skrá inn kennitölu frestumsækjanda og veflykil/lykilorð og óska eftir aðgangi að innskráningarforriti frestlista.

Samkvæmt framansögðu teljast umsóknir í tölvupósti eða bréfapósti ófullnægjandi.

Virðingarfyllst
f. h. ríkisskattstjóra
Ingvar J. Rögnvaldsson
vararíkisskattstjóri

Ýmislegt

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook