Breytingasaga
Breytingar á árinu 2012 | ||
| 8. febrúar | Takmörkuð skattskylda | Ný vefþjónusta vegna takmarkaðrar skattskyldu hefur verið gangsett. Frá og með janúar 2012 skal skila staðgreiðslu vegna takmarkaðrar skattskyldu í gegnum þessa vefþjónustu. Einnig hefur verið bætt við aðgerðum í vefskil á skattur.is sem gefa möguleika á handskráningu. Við skil á staðgreiðslu vegna takmarkaðrar skattskyldu skal nota sama veflykil og við skil á hefðbundinni staðgreiðslu (staðgreiðslulykil). Sendur hefur verið tölvupóstur til allra launagreiðenda með kynningu á þessum staðgreiðsluskilum. |
Breytingar á árinu 2011 | ||
| 23. desember | Staðgreiðsla | Vegna fyrirspurna um fjársýsluskatt sem tekur gildi 1. janúar 2012 þykir rétt að upplýsa þá
sem málið varðar um fyrstu drög að breytingum á vefþjónustu staðgreiðslu: Í kaflann Launamenn verður bætt við valkvæmu svæði: StofnTilFjarsysluskatts. Í kaflann Skilagrein verður bætt við tveim valkvæmum svæðum: HeildStofnTilFjarsysluskatts og Fjarsysluskattur. Vonast er til að testumhverfi verði tilbúið fyrir lok janúar en að lýsingar verði tilbúnar eitthvað fyrr. |
| 21. desember | Gagnaskil | Opnað hefur verið fyrir gagnaskil vegna framtals 2012, tekjuárs 2011. Helstu breytingar eru
þessar: Bætt hefur verið við tveim reitum á launamiða, reit 210 og 220. Í reit 210 skal tilgreina arð af hlutafé sem er greiddur sem laun og í reit 220 skal tilgreina stjórnarlaun. Tekinn hefur verið í notkun nýr miði, fjármagnstekjumiði. Þeir aðilar sem hafa greitt fjármagnstekjur skulu skila þessum miða og tilgreina þar sundurliðun fyrir þá aðila sem hafa móttekið þær og þá staðgreiðslu sem haldið hefur verið eftir. Reitum 210 og 220 og fjármagnstekjumiða er ekki hægt að skila í textaskrá. |
| 28. nóvember | Framtalsgögn | Breytingar vegna framtals 2012 hafa verið settar í leiðbeiningarnar. Helstu breytingar eru: Nota skal greidda vexti sem stofn til vaxtabóta. Vegna breytinga á meðhöndlun gengismunar hefur verið bætt inn tveim svæðum í kaflann InnstaedurInnlendar. Bætt hefur verið inn nýjum kafla í lýsinguna: Breytingar og ábendingar vegna framtals 2012. Þar eru tíundaðar helstu breytingar ásamt ábendingum um nokkur atriði sem ástæða þykir til að árétta. |
| 26. október | Takmörkuð skattskylda | Ný vefþjónusta vegna takmarkaðrar skattskyldu verður tekin upp frá og með janúar 2012. Sett hefur verið upp testumhverfi fyrir þá aðila sem munu nýta sér þennan skilamáta. Ekki verður tekið við csv skrám frá 2012. Tekið verður við skrám samkvæmt núgildandi XML sniði eitthvað fram eftir árinu 2012 frá þeim aðilum sem þurfa á því að halda. |
| 2. febrúar | Framtalsgögn | Leiðbeiningar vegna afskrifta á lánum endurskrifaðar og gerðar skýrari. Nú þarf að skila fjárhæðum afskrifta/lækkana allra lána óháð forsendum lækkunarinnar eða tilefni lántökunnar. |
Breytingar á árinu 2010 | ||
| 20. desember | Framtalsgögn | Endanlegur frágangur vegna framtalsárs 2011: Bætt inn svæðunum EigandiGreidslu og OECDkodi í yfirkaflann ErlendurAdili ásamt viðeigandi villuprófunum. Gert ráð fyrir að upplýsingum um erlenda aðila sem ekki hafa íslenska kennitölu sé skilað með því að tilgreina undirkaflann ErlendurAdili í yfirkafla Vidskiptamadur. |
| 15. desember | Gagnaskil | Viðbót í villuprófun hlutafjármiða: Ef arður er skráður verður að skrá dagsetningu arðgreiðslu, annars er sendingu hafnað. |
| 2. desember | Gagnaskil | Lýsingar uppfærðar vegna breytingar á hlutafjármiða frá tekjuárinu 2010: Bætt hefur verið inn reit númer 75, þar af arður greiddur sem laun. |
| 1. desember | Framtalsgögn | Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar: 1. Í kaflann SkuldirOgVaxtagjöld hefur verið bætt nýju svæði, EndurreiknadLan. 2. Í Kaflanum EydubladRSK315 má nú sleppa upplýsingum um stofnverð þegar það er ekki þekkt. 3. Bætt hefur verið inn nýjum yfirkafla, AdrarUpplysingar. Í honum er einn undirkafli, FasteignalanAfskrift. 4. Nýju dæmi um XML skjal hefur verið bætt við. |
| 9. nóvember | Framtalsgögn | Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar: 1. Villur í lýsingum hafa verið leiðréttar. 2. Bætt hefur verið inn kaflanum ErlendurAdili í yfirkaflan Vidskiptamadur. 3. Bætt hefur verið við svæðunum Banki, Hb, Numer og UpprunaAudkenni í kaflana VerdbrefOgKrofur og EydubladRSK315. 4. Nú gert ráð fyrir að sendandi fylli út svæðið UpprunaAudkenni. Gert er ráð fyrir að UpprunaAudkenni verði einkvæmt auðkenni til að auðvelda hugsanlegar leiðréttingar á gögnum eftir að þeim hefur verið skilað. |
| 20. október | Framtalsgögn | Gefin hefur verið út ný lýsing vegna skila á framtalsgögnum. Nú er gert ráð fyrir því að öll skil skil verði á XML formi og að skilað verði rafrænt.
Þá er gerð krafa um að notuð verði rafræn skilríki. Að öðru leyti eru helstu breytingar þessar: Kafli Vidskiptastofnun: Bætt hefur verið inn stakinu Athugasemdir og undirkaflanum Afstemming. Kafli EydubladRSK315: Bætt hefur verið við kröfu um að stökin HverjumSelt, KennitalaKaupanda, Stadgreidsla, HvenaerKeypt, AfHverjumKeypt og Stofnverd séu alltaf fyllt út. Ekki er skylda að skila þrepi vegna breytilegrar vaxtaprósentu fjármagnstekjuskatts. |
| 19. október | Staðgreiðsla | Ákveðið hefur verið að loka eldri vefþjónustu staðgreiðslu frá 1. nóvember 2010. Áður er það verður gert munu þeir launagreiðendur sem skiluðu í gegnum hana fyrir september fá tölvupóst þar sem þeim er tilkynnt að þeir þurfi að uppfæra launakefið hjá sér. Verður þeim ráðlagt að hafa samband við hlutaðeigandi hugbúnaðarhús til að fá nánari upplýsingar. |
| 1. júní | Staðgreiðsla | Þann 14. Desember 2009 var send tilkynning til hugbúnaðarhúsa þar sem tilkynnt var að
eldri vefþjónusta vegna staðgreiðsluskila yrði lögð niður frá 1. Mars 2010. Í framhaldi af þessari tilkynningu óskuðu nokkrir aðilar eftir að eldri þjónustunni yrði haldið opinni lengur en til 1. mars. Hugbúnaðardeild ríkisskattstjóra varð við þessari beiðni með þeim fyrirvara að eldri vefþjónustan yrði ekki uppfærð ef af einhverjum ástæðum þyrfti að gera breytingar á staðgreiðslukerfinu. Nú hefur komið í ljós að allmörg kerfi eru enn að nota eldri vefþjónustu þrátt fyrir ofangreinda tilkynningu. Í ljósi þessa hefur verið ákveðið að loka endanlega fyrir þjónustuna þann 1. ágúst 2010. Áður en það verður gert munu þeir launagreiðendur sem nota eldri vefþjónustu fá tilkynningu um lokun hennar og þeim bent á að hafa samband við hlutaðeigandi hugbúnaðarhús. Nánari upplýsingar veita Friðjón Bjarnason, fridjon.bjarnason@rsk.is og Ævar Ísberg, aevar.isberg@rsk.is |
| 29. janúar | Framtalsgögn | Breytingar gerðar á kaflanum ErlendHlutabref: Öll svæðin nema Lysing og Land gerð valkvæm. Bætt inn nýju svæði: ErlendStadgreidsla. |
| 28. janúar | Framtalsgögn | Svæði sem voru hámark 40 stafir lengd í 60 stafi. Leiðrétt villa í heiti kafla SkuldirOgVaxtagjöld. Kaflinn hét áður SkuldirogVaxtagjold (lítið o í og). Tveim svæðum bætt í kaflann SkuldirOgVaxtagjold: Rekstrarleiga og UpprunaAudkenni. Farið yfir lýsingar og leiðréttar nokkrar stafsetningarvillur. |
| 20. janúar | Villuprófun | Breyting á lágmarkslengd veflykils. Lágmarkslengd veflykils breytt úr 6 í 5. Heiti svæðisins er óbreytt: TegString_6_20. |
Breytingar á árinu 2009 | ||
| 15. desember | Framtalsgögn | Helstu breytingar frá eldri skjölum eru þessar: Í skjölunum OnnurLan og Fasteignalan var kennitala viðskiptamanns hluti af kaflanum sem tilgreindi upplýsingar um lánin. Nú eru upplýsingar um viðskiptamann í sérstökum kafla sem inniheldur upplýsingar um lánin í sérstökum undirkafla. Í eldri skjölum voru upplýsingar um lánsnúmer og númer bankareikninga í einu textasvæði. Nú er þessum upplýsingum skipt í 3 svæði, bankanúmer, höfuðbók númer og reiknings- eða lánsnúmer. Bætt hefur verið inn nýjum undirkafla ,Threp vegna tveggja þrepa fjármagnstekjuskatts á árinu 2009. |
| 1. desember | Gagnaskil | Lýsingar uppfærðar vegna breytinga á tekjuárinu 2009: Bætt við reitum 10 og 31 á lífeyrissjóðamiða vegna útborgunar séreignarsparnaðar . Bætt við reit 36, dagsetningu arðgreiðslu á hlutafjármiða, stofnfjármiða og stofnsjóðsmiða. Bætt við reit 68, þar af vextir fyrir 1. júlí á stofnsjóðsmiða. |
| 1. október | Staðgreiðsla | Lýsing á vefþjónustu staðgreiðsluskila flutt á nýjan vef. |
| 1. október | Vsk | Lýsing á vefþjónustu virðisaukaskattsskila flutt á nýjan vef. |
Vantar þig aðstoð?
- Senda fyrirspurn á rsk@rsk.is
-
Hringdu í þjónustuver 442-1000
Opið 9:30 - 15:30 virka daga
- Yfirlit yfir símavaktir á næstunni
- Hvar er næsta skattstofa?
- Skoða spurt og svarað
Efnisstraumur
- Þessi síða er líka aðgengileg sem Atom straumur

