Forsíða  > Fagaðilar  > Hugbúnaðarhús  > Framtalsgögn
Veftré   A- A+

Framtalsgögn vegna áritunar á skattframtöl.

Lýsing fyrir hugbúnaðarhús

Yfirlit

Þessi lýsing er gerð fyrir tæknifólk sem sér um skil upplýsinga frá fjármála- og lánastofnunum til ríkisskattstjóra. Hér er átt við banka, sparisjóði, lífeyrissjóði, fjármögnunarfyrirtæki og aðra þá aðila sem skila upplýsingum til áritunar á skattframtöl.

Upplýsingum sem skilað er samkvæmt þessari lýsingu skulu hafa borist ríkisskattstjóra eigi síðar en 10. febrúar ár hvert.

Frá og með tekjuárinu 2010 (framtalsári 2011) er gerð krafa um að allir skili gögnum á XML formi samkvæmt þessari lýsingu. Til þess að senda gögnin þarf að sækja sérstakan biðlara (client) á vef ríkisskattstjóra. Biðlarinn gefur kost á að sannreyna XML skjöl á móti XML sniði (schema) og senda þau til ríkisskattstjóra. Þegar gögnin eru send þurfa að vera til staðar rafræn skilríki hjá sendanda. Áður en biðlarinn er sóttur þarf ríkisskattstjóri að úthluta sendanda auðkennislykli.
Sækja biðlara á vef ríkisskattstjóra.

Sækja skal um auðkennislykilinn í tölvupósti: fridjon.bjarnason@rsk.is Tilgreina þarf kennitölu sendanda ásamt tillögu að fjögurra stafa auðkennislykli. Þegar um er að ræða lífeyrissjóð er hann venjulega Lxxx þar sem xxx er númer lífeyrissjóðs.

Tekið skal fram að hér er fyrst og fremst um að ræða tæknilega lýsingu þó að leitast hafi verið við að hafa lýsingar einstakra svæða eins nákvæmar og unnt er. Í framtalsleiðbeiningum hvers árs má finna nánari skýringar og reglur um hvernig einstök svæði skulu útfyllt.

Í breytingasögu má finna upplýsingar um breytingar sem gerðar hafa verið á þessari lýsingu. Breytingasagan er aðgengileg sem efnisstraumur (Atom) sem hægt er að tengjast og fá skilaboð þegar henni er breytt.

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá fridjon.bjarnason@rsk.is

Kerfislýsing.

Eftirtalin skjöl innhalda nauðsynlegar tæknilegar upplýsingar:
XML snið (schema) fyrir framtalsgögn.
Lýsing á villuprófunum.
XML snið fyrir villuprófanir.

Neðst á síðunni er yfirlitsmynd sem sýnir uppbyggingu þeirra upplýsinga sem skila þarf. Allir kaflarnir eru valkvæmir (optional) þannig að hver stofnun skilar einungis þeim köflum sem við á.
Meðfylgjandi eru nokkur dæmi um XML skjöl:

Allir kaflar eru útfylltir.
Fasteignalán frá lífeyrissjóði.
Bílalán frá fjármögnunarfyrirtæki
Erlendur aðili skráður í stað kennitölu.
Endurreiknað lán og aðrar upplýsingar útfylltar.

Prófanir.

Þeim sem á þurfa að halda geta sótt test biðlara hér. Þegar biðlarinn er sóttur skal skrá eftirfarandi:
Kennitala stofnunar: 5402696029
Auðkennisnúmer: RSK2
Auðkennislykill RSK: Test1234
Þessa auðkenningu má einnig nota við test á sendingum. Æskilegt er að stærð testsendinga sé stillt í hóf. Þeir sem þess óska geta fengið sína eigin auðkenningu í testumhverfi. Gera má ráð fyrir að ofangreindri auðkenningu verði breytt fyrirvaralaust og þurfa þá þeir sem þurfa á testumhvefinu að halda að samband við ríkisskattstjóra.
Til að senda inn gögn í raunumhverfi þarf að sækja nýjan biðlara og fá auðkenningu fyrir raunumhverfið.

Ábendingar.

Í prófunum og í fyrri skilum hafa komið upp nokkur atriði sem þykir rétt að benda sérstaklega á hérna:
Mínus tölur eru aldrei leyfðar.
Kaflarnir verða að vera í sömu röð og tilgreint er í sniðinu (schema). Dæmi: Kaflinn HlutabrefKaup verður að koma á undan kaflanum HlutabrefSala.
Framtalsár á vera það ár sem framtal og álagning á sér stað. Dæmi: Tilgreina skal framtalsár 2012 vegna tekna ársins 2011.

Fyrst kemur yfirkafli fyrir viðskiptastofnun, þá viðskiptamann og að lokum einstakir undirkaflar innan viðskiptamanns.




Breytingar og ábendingar vegna framtals 2012

Frá og með tekjuárinu 2011 eru einungis greiddir vextir notaðir við útreikning vaxtabóta, en ekki áfallnir vextir. Þetta hefur í för með sér breytingu í kafla Fasteignalan. Þar skal nú einungis tilgreina summur greiddra gjalddaga í svæðunum Heildargreidslur, AfborgunNafnverds og Vaxtagjold. Gjaldfallnar afborganir frá árinu 2010 og fyrr sem eru greiddar á árinu 2011 skulu ekki vera með í þessum fjárhæðum.

Í kaflann InnstaedurInnlendar hefur verið bætt við svæðunum Gengishagnadur og GengishagnadurStgr. Sjá nánar lýsingu á kaflanum InnstaedurInnlendar.

Við skil framtalsgagna vegna áritunar á framtal 2011 var eitthvað um að ekki var ljóst hvaðan upplýsingarnar komu. Í flestum köflum framtalsins eru einungis sýndar upplýsingar úr 60 stafa svæðinu Lysing auk fjárhæða. Ríkisskattstjóri hefur tekið þá stefnu að láta sendendur upplýsinga ákveða alfarið sjálfa hvað sett er í þessi svæði en það verður þá að vera alveg skýrt hvaðan upplýsingarnar koma og hvað um er að ræða. Til dæmis segir textinn Innlán framteljandanum ekki neitt, en ef bankanúmer, höfuðbók og númer reiknings er sýnt, er þetta alveg skýrt.

Lögð er áhersla á að svæðið UpprunaAudkenni sé tilgreint í öllum köflum. Þetta svæði er einkvæm tilvísun sendanda og auðveldar afstemmingar og leiðréttingar. Svæðið er einnig notað til að tengja fasteignalán við framtal fyrra árs til þess að þau séu árituð í réttan kafla.

Vidskiptastofnun

SvæðisheitiLýsing svæðisVilluprófun
Framtalsar Árið sem framtalið er gert. Dæmi: 2010 vegna tekna á árinu 2009. Svæðið verður að vera 4 tölustafir. TegNum_4. Athugað er hvort svæðið sé 4 á lengd og að það innihaldi ekki annað en tölustafi. Stakið verður að vera til staðar.
Audkennisnumer Auðkennisnúmer viðskiptastofnunar: 4 stafir. Fyrir bankastofnun er þetta bankanúmer. Lífeyrissjóðir hafa auðkennið Lnnn þar sem nnn er númer lífeyrissjóðs. TegString_4. Athugað er hvort svæðið sé 4 á lengd. Stakið verður að vera til staðar. Ríkisskattstjóri úthlutar auðkennisnúmeri til annarra stofnana í samráði við þær.
AudkennislykillRSK AudkennislykillRSK: Auðkennislykill úthlutaður af RSK sem notaður er til þess að auðkenna sendanda. TegNum_1_12. Athugað er hvort svæðið sé 1 til 12 stafir á lengd. Stakið verður að vera til staðar.
KennitalaStofnunar Kennitala viðskiptastofnunar: 10 stafa kennitala. TegKennitala. Stakið verður að vera til staðar. Kennitalan er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK.
Afstemming Undirkafli sem inniheldur texta og fjárhæð til afstemmingar. Sjá nánar lýsingu á stökum kaflans. Þessi undirkafli er valkvæmur og þarf ekki að vera til staðar. Ef hann er tilgreindur verða stökin AfstemmingTexti og AfstemmingFjarhaed að vera til staðar.
Það er leyfilegt að tilgreina þennan undirkafla oft (maxOccurs="unbounded").
Athugasemdir Allt að 200 stafa texti sem getur innihaldið upplýsingar sem sendandi vill koma á framfæri við RSK. Hér er æskilegt að tilgreina nafn, símanúmer og tölvupóstfang sendanda. Dæmi um texta:
Tengliður: Jón Jónsson, sími: 6677889, tölvupóstfang: jon.jonsson@stofnun.is.
TegString_1_200. Athugað er hvort svæðið sé 1 til 200 stafir á lengd. Stakinu má sleppa.
Það er leyfilegt að tilgreina þetta stak oft (maxOccurs="unbounded").
Hér eru tilgreind þau tvö stök sem tilheyra yfirkafla Afstemming:
AfstemmingTexti Allt að 60 stafa texti sem skal innihalda lýsingu á þeirri fjárhæð sem tilgreind er í stakinu AfstemmingFjarhaed Dæmi:
Heildarfjárhæð innstæðna í kafla 3.1.
TegString_1_60. Athugað er hvort svæðið sé 1 til 60 stafir á lengd. Stakið verður að vera til staðar ef yfirkafli þess er tilgreindur.
AfstemmingFjarhaed Fjárhæð afstemmingar. TegUpphaed. Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar ef yfirkafli þess er tilgreindur.

Vidskiptamaður

SvæðisheitiLýsing svæðisVilluprófun
KennitalaVidskiptamanns 10 stafa kennitala framteljanda/viðskiptamanns. TegKennitala. Kennitalan er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Annaðhvort þetta stak eða undirkaflinn ErlendurAdili verður að vera til staðar (XML choice).
ErlendurAdili Undirkafli með upplýsingum um erlendan aðila. Þennan undirkafla skal einungis tilgreina fyrir aðila sem ekki hafa íslenska kennitölu. TegKennitala. Annaðhvort verður þessi undirkafli að vera til staðar eða stakið KennitalaVidskiptamanns(XML choice).
Hér koma stök undirkaflans ErlendurAdili. Athugið að undirkaflinn er einungis tilgreindur þegar viðskiptamaður er erlendur og á ekki íslenska kennitölu. Þegar þessi kafli er tilgreindur má ekki tilgreina kennitölu.
Nafn Nafn erlends aðila. TegString_1_70. Athugað er hvort svæðið sé 1 til 70 stafir á lengd. Stakið verður að vera til staðar ef yfirkafli þess er tilgreindur.
EigandiGreidslu Hér skal setja J ef viðtakandi greiðslu er raunverulegur eigandi (benficial owner). Ef viðtakandi er milligönguaðili er sett N í svæðið. TegString_J_N. Athugað er hvort svæðið innihaldi J eða N. Stakið verður að vera til staðar ef yfirkafli þess er tilgreindur.
Tin Skattkennitala, TIN (Tax Identification Number) eins og hún er gefin út í heimalandi viðskiptamanns. TegString_1_20. Athugað er hvort svæðið sé 1 til 20 stafir á lengd. Stakinu má sleppa.
OECDkodi OECD kóði viðtakanda greiðslu:
01: Einstaklingur.
02: Hlutafélag eða einkahlutafélag.
03: Sameignarfélag.
04: Samtök önnur en tilgreind eru í 02 eða 03.
05: Ríkis- eða alþjóðastofnun.
06: Annað.
07: Óþekkt.
TegString_OECD. Athugað er hvort svæðið innihaldi eitt af gildunum sem tilgreind eru í dálkinum hér við hliðina. Stakið verður að vera til staðar ef yfirkafli þess er tilgreindur.
Gata Heiti götu og húsnúmer og/eða heiti húss. TegString_1_70. Athugað er hvort svæðið sé 1 til 70 stafir á lengd. Stakið verður að vera til staðar ef yfirkafli þess er tilgreindur.
Borg Borg eða bær ásamt póstnúmeri. Póstnúmer kemur ýmist á undan eða eftir borg eða bæ. Gert er ráð fyrir að það sé skrá með sama hætti og tíðkast í heimalandinu. Dæmi: Bristol BS9 3BH, 21228 Malmö. TegString_1_35. Athugað er hvort svæðið sé 1 til 35 stafir á lengd. Stakið verður að vera til staðar ef yfirkafli þess er tilgreindur.
Fylki Hér má tilgreina hérað, sýslu eða fylki eða nýta þetta svæði ef heimilisfang er mjög langt. TegString_1_35. Athugað er hvort svæðið sé 1 til 35 stafir á lengd. Stakinu má sleppa.
Land Hér skal setja tveggja stafa landkóða heimilisfesturíkis viðskiptamanns samkvæmt staðli ISO 3166. TegLandKodi:Stakið verður að innihalda gildan landkóða. Stakið verður að vera til staðar.

InnstaedurInnlendar

Kafli 3.1 í framtali: Innstæður í innlendum bönkum og sparisjóðum. Þegar um er að ræða bankareikninga sem eru í skuld en hafa gefið vexti á árinu kemur 0 í stakið Innstaeda en stökin Vaxtatekjur og Stadgreiðsla eru fyllt út. Reikningur sem er í skuld eða hefur borið vaxtagjöld á árinu er tilgreindur í undirkaflanum SkuldirOgVaxtagjold. Reikningar sem eru með vaxtatekjur og vaxtagjöld skulu tilgreindir í báðum köflunum.
Gengismunur og staðgreiðsla af gengismun eru ný svæði á framtali 2012. Þau eru notuð til að tilgreina gengishagnað ársins og afdregna staðgreiðslu af reikningum í erlendri mynt. Ef reikningur er með gengishagnað, staðgreiðslu, vaxtatekjur eða inneign fer hann í kaflann InnstadurInnlendar. Ef um er að ræða skuld í árslok eða gengistap eða vaxtagjöld eru þau tilgreind í kaflanum SkuldirOgVaxtagjold. Halda verður sérstaklega utanum vaxtagjöld og gengishagnað vegna þess að ekki má nýta gengistap til lækkunar á vaxtatekjum og öfugt.

SvæðisheitiLýsing svæðisVilluprófun
Banki Bankanúmer eins og það er skilgreint af Reiknistofu bankanna, 4 stafir. Ef stofnun notar ekki númerakerfi RB skal setja 0000 í svæðið. TegString_4: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 4 stafir. Stakið verður að vera til staðar.
Hb Höfuðbók númer eins og hún er skilgreind af Reiknistofu bankanna, 2 stafir. Ef stofnun notar ekki númerakerfi RB skal setja 00 í svæðið. TegString_2: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 2 stafir. Stakið verður að vera til staðar.
ReikningurNumer Númer bankareiknings. Ef stofnun notar ekki reikningsnúmer skal setja 000000 í svæðið. TegString_1_6: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 6 stafir. Stakið verður að vera til staðar.
Lysing Lýsing bankareiknings: Allt að 60 stafa texti sem færður verður á skattframtal. Gert er ráð fyrir að hér komi fram nægar upplýsingar til að framteljandi geti áttað sig á hvaða bankareikning um er að ræða. Algengt er að setja hér heiti reiknings (til dæmis: Gjaldeyrisreikningur USD) og BBBB-HH-XXXXXX þar sem BBBB er bankanúmer, HH er höfuðbók númer og XXXXXX er númer reiknings. TegString_1_60: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 60 stafir. Stakið verður að vera til staðar.
Innstaeda Löng heiltala. Ef innstæða er á reikningi í lok tekjuárs er sú upphæð tilgreind hér. Ef reikningur er í skuld í árslok skal setja 0 í svæðið og tilgreina tilgreina upphæðina í kafla 5.5. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar.
Vaxtatekjur Löng heiltala. Hér skal tilgreina heildar vaxtatekjur ársins. Vaxtagjöld skulu tilgreind í kafla SkuldirOgVaxtagjold. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar.
Stadgreidsla Staðgreiðsla af vaxtatekjum: Löng heiltala. Hér skal tilgreina heildar afdregna staðgreiðslu af vaxtatekjum ársins. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar.
Gengishagnadur Löng heiltala. Hér skal tilgreina heildar gengishagnað ársins. Ef um er að ræða gengistap (mínus gengishagnað) skal setja 0 í svæðið og tilgreina hann í kaflanum SkuldirOgVaxtagjold. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakinu má sleppa.
GengishagnadurStgr Afdregin staðgreiðsla af gengishagnaði: Löng heiltala. Hér skal tilgreina heildar afdregna staðgreiðslu af gengishagnaði ársins. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakinu má sleppa.
UpprunaAudkenni Auðkenni bankareikningsins eins og hann er skráður hjá sendanda. Hér er gert ráð fyrir einkvæmu auðkenni bankareikningsins. Ef hægt er að auðkenna hann með banka, höfuðbók og reikningsnúmeri skal setja hér banka, höfuðbók og reikningsnúmer í forminu BBBBHHNNNNNN. Annars skal tilgreina hér númer bankareiknings eða hverja þá auðkenningu sem gefur láninu einkvæmt númer eða auðkenni. TegString_1_30: Stakið skal vera 1 til 30 stafir á lengd, því má sleppa.

Hér kemur lýsing á undirkaflanum Threp. Hér skal tilgreina þann hluta vaxtatekna og staðgreiðslu sem tilheyra öðru skattþrepi. Á tekjuárinu 2009 eru tvö þrep í gildi og skal setja vaxtatekjur og staðgreiðslu síðari hluta ársins (júlí til desember) í undirkaflann Threp. Ef sama skattþrep gildir allt árið þarf ekki að tilgreina þennan kafla. Á tekjuárinu 2009 verður þessi kafli að vera með. Á tekjuárinu 2010 og síðar er einungis eitt skattþrep í gildi þannig að oftast er þessum kafla sleppt. Athugið að hér er um að ræða upphæðir sem eru "þar af" og eru innifaldar í heildarupphæðunum.

SvæðisheitiLýsing svæðisVilluprófun
HeitiThreps Setja textann TharAf10 eða TharAf15 í þetta svæði. TegThrep: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 8 og það innihaldi textann TharAf10 eða TharAf15. Stakinu má sleppa.
Vaxtatekjur Löng heiltala. Hér skal tilgreina vaxtatekjur þrepsins. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar.
Stadgreidsla Löng heiltala. Hér skal tilgreina staðgreiðslu þrepsins. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar.


Fasteignalan:

SvæðisheitiLýsing svæðisVilluprófun
KennitalaLanseiganda 10 stafa kennitala. TegKennitala. Stakinu má sleppa. Kennitalan er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Ef stakið er haft með er þessi kennitala notuð sem kennitala lánveitanda á sundurliðunarblaði og til að sækja nafn lánveitanda í kafla 5.2 á skattframtali, annars er notuð kennitala stofnunar úr kaflanum "Vidskiptastofnun".
Banki Bankanúmer eins og það er skilgreint af Reiknistofu bankanna, 4 stafir. Ef stofnun notar ekki númerakerfi RB skal setja 0000 í svæðið. TegString_4: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 4 stafir. Stakið verður að vera til staðar.
Hb Höfuðbók númer eins og hún er skilgreind af Reiknistofu bankanna, 2 stafir. Ef stofnun notar ekki númerakerfi RB skal setja 00 í svæðið. TegString_2: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 2 stafir. Stakið verður að vera til staðar.
LanNumer Númer láns. TegString_1_6: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 6 stafir. Stakið verður að vera til staðar.
Lantokudagur Útgáfudagur láns, átta stafa dagsetning á forminu ÁÁÁÁMMDD. Dæmi: 20051201. TegDagsetning: Dagsetninging er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar.
TegundVisitolu Tegund vísitölu: Lengd: 1 stafur, textasvæði.
L: Lánskjaravísitala 1. jún.75 = 100.
B: Byggingavísitala 1. okt.75 = 100.
E: Byggingavísitala 1. nóv.55 = 100.
T: Sérstök vísitala byggingasjóðs.
N: Neysluverðsvísitala. 
A: Önnur vísitölutrygging (t.d. erl. Gjaldm.)
TegString_1: Svæðið verður að vera einn á lengd. Stakinu skal sleppa ef lánið er ekki verðtryggt.
Grunnvisitala Grunnvísitala: 7 stafa rauntala með einum aukastaf.Dæmi: 1002.5. TegNum_7_1: Verður að vera allt að 7 stafa númer með einum aukastaf. Stakinu skal sleppa ef lánið er ekki verðtryggt.
HlutfallVerdtryggingar Hlutfall verðtryggingar: 3 stafa rauntala. Dæmi: 60. Þetta á eingöngu við gömul byggingasjóðslán sem voru verðtryggð að hluta. Stakinu skal sleppa fyrir öll önnur lán. Decimal: Svæðið verður að innihalda tölustafi.
Vaxtaprosenta Vaxtaprósenta lánsins: 7 stafa rauntala með 4 aukastöfum. Dæmi: 4.1500. TegNum_7_4: Verður að vera allt að 7 stafa númer með fjórum aukastöfum. Stakið verður að vera til staðar.
Greidslumanudir Greiðslumánuðir: textasvæði. Mánuðir með gjalddaga láns. Dæmi: 3,6,9,12, Mánaðarl. TegString_1_15:  Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 15 stafir. Stakið verður að vera til staðar.
UpphaflegurLanstimi Upphaflegur lánstími: 3 stafa tölusvæði með einum eða engum aukastaf. Lengd láns í árum. Dæmi: 40, 2,5. Decimal: Svæðið verður að innihalda tölustafi. Þessu staki má sleppa ef ekki eru til upplýsingar um upphaflegan lánstíma. 
UpphaflegLansupphaed Upphafleg lánsfjárhæð í heilum krónum: Löng heiltala. Upphafleg fjárhæð láns við útgáfu skuldabréfs. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi. Stakið verður að vera til staðar. 
Lantokukostnadur Lántökukostnaður í heilum krónum: Löng heiltala. Heildar lántökukostnaður þar með talin stimpilgjöld. Hér skal tilgreina uppgreiðslugjald og gjald vegna yfirtöku. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi. Stakinu má sleppa.
Heildargreidslur Heildargreiðslur tekjuárs í heilum krónum: Löng heiltala. Vextir, verðbætur og dráttarvextir. Ef enginn gjalddagi er á tekjuári skal setja 0 í svæðið. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi. Stakið verður að vera til staðar.
AfborgunNafnverds Afborgun nafnverðs í heilum krónum: Löng heiltala. Ef enginn gjalddagi er á tekjuári skal setja 0 í svæðið. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi. Stakið verður að vera til staðar.
UppreiknadarEftirstodvar Uppreiknaðar eftirstöðvar láns í lok tekjuárs í heilum krónum: Löng heiltala. Vanskil eiga ekki að vera með í þessari tölu. Ef lán er uppgreitt á tekjuári skal setja 0 í svæðið. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi. Stakið verður að vera til staðar.
Vanskil Vanskil í heilum krónum: Löng heiltala. Hér skal setja heildarupphæð vanskila eins og þau eru í lok tekjuárs. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi. Stakinu má sleppa.
Drattarvextir Dráttarvextir í heilum krónum: Löng heiltala. Samtala dráttavaxta í lok tekjuárs. Dráttarvextir skulu vera innifaldir í heildargreiðslu ársins. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi. Stakinu má sleppa.
Vaxtagjold Vaxtagjöld tekjuárs í heilum krónum: Löng heiltala. Heildargreiðslur - uppreiknuð afborgun af nafnverði. Ef lánið er ekki lán vegna kaupa eða byggingar íbúðarhúsnæðis til eigin nota er þetta sú upphæð sem fer í vaxtagjöld í kafla 5.5. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi. Stakið verður að vera til staðar.
FastanumerVedstadar Fastnúmer veðstaðar: 7 stafa textasvæði. Auðkennisnúmer Fasteignamats ríkisins. TegString_1_7: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 7 stafir. Stakinu má sleppa.
Vedheiti Veðheiti: Allt að 30 stafa textasvæði. Heiti fasteignar t.d. Götuheiti og númer. Dæmi: Laugavegur 166. Ef ekki er um að ræða fasteignaveð skal setja hér textann: "Ekki fasteignaveð". TegString_1_30:  Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 30 stafir. Stakinu má sleppa.
UpprunaAudkenni Auðkenni lánsins eins og það er skráð hjá sendanda. Hér er gert ráð fyrir einkvæmu auðkenni lánsins. Ef hægt er að auðkenna það með banka, höfuðbók og reikningsnúmeri skal setja hér banka, höfuðbók og reikningsnúmer í forminu BBBBHHNNNNNN. Annars skal tilgreina hér númer láns eða hverja þá auðkenningu sem gefur láninu einkvæmt númer eða auðkenni. TegString_1_30: Stakið skal vera 1 til 30 stafir á lengd, því má sleppa.

Eftirfarandi 4 svæði eru aðeins höfð með ef lán hefur verið yfirtekið:

Þegar lán er yfirtekið þarf að uppreikna afborgun af nafnverði samkvæmt vísitölu við dagsetningu yfirtöku. Það er að segja uppreiknaðar afborganir = vísitala yfirtökudagsetningar / grunnvísitölu * afborgun af nafnverði. Í þessum tilvikum verður að fylla út stakið UppreiknadarAfborganir og er það síðan sett í reitinn afborgun í  kafla 5.2 á framtali í stað staksins AfborgunNafnverds hér að ofan.

SvæðisheitiLýsing svæðisVilluprófun
DagsetningYfirtoku Dagsetning yfirtöku: 8 stafa dagsetning á forminu ÁÁÁÁMMDD. Dæmi: 20051201. TegDagsetning: Dagsetninging er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakinu má sleppa.
UppruniDagsetningar Uppruni dagsetningar yfirtöku láns: Einn stafur, textasvæði. Sé uppruni dagsetningar yfirtöku láns ekki kunnur má geta þess hér. Möguleg gildi:
U: Lánið ekki yfirtekið (sama og ef svæðinu er sleppt).
K: Dagsetning samkvæmt kaupsamningi
A: Dagsetning áætluð.
O: Dagsetning ókunn.
TegString_1: Svæðið verður að vera einn á lengd. Þetta stak hefur verið notað sem viðbótarupplýsingar fyrir eldri lán frá Íbúðalánasjóði og því má sleppa.
Yfirtokuvisitala Vísitala við yfirtöku láns: 7 stafa rauntala með einum aukastaf. Dæmi: 1002.5. TegNum_7_1: Verður að vera allt að 7 stafa númer með einum aukastaf. Stakinu má sleppa.
UppreiknadarAfborganir Löng heiltala. Afborganir af höfuðstól uppreiknaðar samkvæmt vísitölu yfirtökudags. TegUpphaed: Svæðiðverður að innihalda tölustafi. Stakinu má sleppa. Ef þetta stak er til staðar og inniheldur ekki 0 er stakið AfborgunNafnverðs ekki notað.

SkuldirOgVaxtagjold:

Kafli 5.5 á framtali: Skuldir og vaxtagjöld. Kaflinn hér á undan á við þau lán sem koma til greina í kafla 5.2 í framtali, lán vegna kaupa eða byggingar íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Þessi kafli á við kafla 5.5 í framtali: Aðrar skuldir og vaxtagjöld, það er lán sem ekki koma til greina við útreikning á vaxtabótum. Hér skal einnig tilgreina bankareikninga sem eru í skuld í árslok og/eða hafa borið vaxtagjöld eða gengistap á árinu.

SvæðisheitiLýsing svæðisVilluprófun
Banki Bankanúmer eins og það er skilgreint af Reiknistofu bankanna, 4 stafir. Ef stofnun notar ekki númerakerfi RB skal setja 0000 í svæðið. TegString_4: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 4 stafir. Stakið verður að vera til staðar.
Hb Höfuðbók númer eins og hún er skilgreind af Reiknistofu bankanna, 2 stafir. Ef stofnun notar ekki númerakerfi RB skal setja 00 í svæðið. TegString_2: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 2 stafir. Stakið verður að vera til staðar.
Numer Númer láns. TegString_1_6: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 6 stafir. Stakið verður að vera til staðar.
Lysing Lýsing láns: Allt að 60 stafa texti sem færður verður á skattframtal. Gert er ráð fyrir að hér komi fram nægar upplýsingar til að framteljandi geti áttað sig á því hvaða lán eða bankareikning um er að ræða. TegString_1_60: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé ekki á bilinu 1 til 60 stafir. Stakið verður að vera til staðar.
Vaxtagjold Vaxtagjöld tekjuárs í heilum krónum, löng heiltala: Vextir, verðbætur og dráttarvextir.Þegar um er að ræða gjaldeyrisreikninga með vaxtagjöldum og/eða gengistapi skal setja hér summu vaxtagjalda og gengistaps. TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar.
Eftirstodvar Eftirstöðvar láns eða skuld á reikningi í heilum krónum, löng heiltala. TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar.
Fastanumer Fastanúmer ökutækis: 5 stafa textasvæði. Þetta svæði er einungis fyllt út fyrir ökutækjalán. TegString_5: Svæðið verður að vera 5 á lengd. Stakinu má sleppa.
Rekstrarleiga Setja skal J í þetta svæði ef um er að ræða ökutæki á rekstraleigu. Ekki skal setja J í svæðið þegar um er að ræða venjulega kaupleigu. TegString_1: Stakið verður að vera 1 stafur á lengd ef það er tilgreint. Stakinu má sleppa. Ef því er skilað með einhverju öðru gildi en J (til dæmis N), eða því er sleppt, er það meðhöndlað eins og ekki sé um rekstrarleigu að ræða.
UpprunaAudkenni Auðkenni lánsins eins og það er skráð hjá sendanda. Hér er gert ráð fyrir einkvæmu auðkenni lánsins. Ef hægt er að auðkenna það með banka, höfuðbók og reikningsnúmeri skal setja hér banka, höfuðbók og reikningsnúmer í forminu BBBBHHNNNNNN. Annars skal tilgreina hér númer láns eða hverja þá auðkenningu sem gefur láninu einkvæmt númer eða auðkenni. TegString_1_30: Stakið skal vera 1 til 30 stafir á lengd, því má sleppa.
EndurreiknadLan Setja skal J í þetta svæði ef lánið hefur verið endurreiknað á tekjuárinu. TegString_1: Stakið verður að vera 1 stafur á lengd ef það er tilgreint. Stakinu má sleppa. Ef því er skilað með einhverju öðru gildi en J (til dæmis N), eða því er sleppt, er það meðhöndlað eins og það hafi ekki verið endurreiknað. Athugið að þetta stak er úrelt (2.2.2011) - sjá nánar kaflann AdrarUpplysingar.

VerdbrefOgKrofur:

Kafli 3.3 á framtali: Innlend og erlend verðbréf og kröfur. Stofnsjóðsinneign.

SvæðisheitiLýsing svæðisVilluprófun
Banki Bankanúmer eins og það er skilgreint af Reiknistofu bankanna, 4 stafir. Ef stofnun notar ekki númerakerfi RB skal setja 0000 í svæðið. TegString_4: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 4 stafir. Stakinu má sleppa.
Hb Höfuðbók númer eins og hún er skilgreind af Reiknistofu bankanna, 2 stafir. Ef stofnun notar ekki númerakerfi RB skal setja 00 í svæðið. TegString_2: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 2 stafir. Stakinu má sleppa.
Numer Númer verðbréfs, kröfu eða stofnsjóðsinneignar. TegString_1_6: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 6 stafir. Stakinu má sleppa.
Lysing Lýsing verðbréfs, kröfu eða stofnsjóðsinneignar. Allt að 60 stafa texti sem færður verður á skattframtal. Gert er ráð fyrir að hér komi fram nægar upplýsingar til að framteljandi geti áttað sig á því hvaða verðbréf, kröfu eða stofnsjóðsinneign um er að ræða. TegString_1_60: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 60 stafir. Stakið verður að vera til staðar.
Vaxtatekjur Heildar vaxtekjur tekjuárs í heilum krónum, löng heiltala: Vaxtatekjur áður en fjármagnstekjuskattur er dregin frá. TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar.
Eign Verðgildi eignar í lok tekjuárs í heilum krónum, löng heiltala. TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar.
Stadgreidsla Heildar staðgreiðsla af fjármagnstekjum: Löng heiltala. Hér skal tilgreina afdregna staðgreiðslu af fjármagnstekjum. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar.
UpprunaAudkenni Auðkenni verðbréfsins eins og það er skráð hjá sendanda. Hér er gert ráð fyrir einkvæmu auðkenni verðbréfsins. Ef hægt er að auðkenna það með banka, höfuðbók og reikningsnúmeri skal setja hér banka, höfuðbók og reikningsnúmer í forminu BBBBHHNNNNNN. Annars skal tilgreina hér númer verðbréfs eða kröfu eða hverja þá auðkenningu sem gefur verðbréfinu einkvæmt númer eða auðkenni. TegString_1_30: Stakið skal vera 1 til 30 stafir á lengd, því má sleppa.

Hér kemur lýsing á undirkaflanum Threp. Hér skal tilgreina þann hluta vaxtatekna og staðgreiðslu sem tilheyra öðru skattþrepi. Á tekjuárinu 2009 eru tvö þrep í gildi og skal setja vaxtatekjur og staðgreiðslu síðari hluta ársins (júlí til desember) í undirkaflann Threp. Ef sama skattþrep gildir allt árið þarf ekki að tilgreina þennan kafla. Á tekjuárinu 2009 verður þessi kafli að vera með. Á tekjuárinu 2009 verður þessi kafli að vera með. Á tekjuárinu 2010 var einungis eitt skattþrep í gildi þannig að þessi kafli er einungis hafður með ef um er að ræða vexti frá fyrra ári. Athugið að hér er um að ræða upphæðir sem eru "þar af" og eru innifaldar í heildarupphæðunum.

SvæðisheitiLýsing svæðisVilluprófun
HeitiThreps Setja textann TharAf10 eða TharAf15 í þetta svæði. TegThrep: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 8 og það innihaldi textan TharAf10 eða TharAf15. Stakið verður að vera til staðar.
Vaxtatekjur Löng heiltala. Hér skal tilgreina vaxtatekjur þrepsins. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar.
Stadgreidsla Löng heiltala. Hér skal tilgreina staðgreiðslu þrepsins. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar.


Hlutabref:

Sundurliðunarblað 3.19: Hlutabréf. Upplýsingar samkvæmt þessum kafla um hlutafjáreign í árslok eru færðar á sundurliðunarblað til hagræðis fyrir framteljanda. Þessi kafli getur innihaldið undirkaflana HlutabrefSala og/eða HlutabrefKaup.

SvæðisheitiLýsing svæðisVilluprófun
KennitalaFelags 10 stafa kennitala hlutafélags eða sparisjóðs. TegKennitala. Kennitalan er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar.
Hér á eftir eru listuð þau stök sem tilheyra hlutafjáreign í árslok og arðgreiðslum ársins. Ef kaup og sala eru send í sérstöku skjali má sleppa þeim, annars verða þau öll að vera til staðar.
Eign Verðgildi hlutabréfa eða stofnfjárbréfa í lok tekjuárs í heilum krónum, löng heiltala. TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar.
Ardur Arður af hlutabréfum á  tekjuári í heilum krónum, löng heiltala. TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar.
Stadgreidsla Staðgreiðsla af arði eða sölu hlutabréfa: Löng heiltala. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar.
DagsArdgreidslu Dagsetning greiðslu arðs: Átta stafa dagsetning á forminu ÁÁÁÁMMDD. Dæmi: 20051201. TegDagsetning: Dagsetningin er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar.

HlutabrefKaup:

Þessi undirkafli er undirkafli kaflans Hlutabref. Sundurliðunarblað 3.19: Hlutabréf. Upplýsingar samkvæmt þessum kafla eru færðar á sundurliðunarblað til hagræðis fyrir framteljanda.

SvæðisheitiLýsing svæðisVilluprófun
Kaupdagur Kaupdagur hlutabréfa: Átta stafa dagsetning á forminu ÁÁÁÁMMDD. Dæmi: 20051201. TegDagsetning: Dagsetninging er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar.
Nafnverd Nafnverð keyptra hlutabréfa í heilum krónum, löng heiltala: TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar.
KaupGengi Kaupgengi hlutabréfa: Tvínákvæm tala (double precision). TegUpphaedTvi: Notaðir eru allt að 4 aukastöfum í úrvinnslu þessa svæðis. Stakinu má sleppa.
Kaupverd Kaupverð keyptra hlutabréfa í heilum krónum, löng heiltala. TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar.
KennitalaSeljanda 10 stafa kennitala seljanda hlutabréfa. TegKennitala. Kennitalan er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar.

HlutabrefSala:

Þessi undirkafli er undirkafli kaflans Hlutabref. Sundurliðunarblað 3.19: Hlutabréf. Upplýsingar samkvæmt þessum kafla eru færðar á sundurliðunarblað til hagræðis fyrir framteljanda.

SvæðisheitiLýsing svæðisVilluprófun
Soludagur Söludagur hlutabréfa: Átta stafa dagsetning á forminu ÁÁÁÁMMDD. Dæmi: 20051201. TegDagsetning: Dagsetningin er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar.
Nafnverd Nafnverð seldra hlutabréfa í heilum krónum, löng heiltala. TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar.
SoluGengi Sölugengi hlutabréfa: Tvínákvæm tala (double precision). TegUpphaedTvi: Notaðir eru allt að 4 aukastöfum í úrvinnslu þessa svæðis. Stakinu má sleppa.
Soluverd Söluverð seldra hlutabréfa í heilum krónum, löng heiltala. TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar.
KennitalaKaupanda 10 stafa kennitala kaupanda hlutabréfa. TegKennitala. Kennitalan er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar.
Kaupar Kaupár seldra hlutabréfa. Svæðið verður að vera 4 tölustafir. TegNum_4. Athugað er hvort svæðið sé 4 á lengd og að það innihaldi ekki annað en tölustafi. Stakinu má sleppa.

ErlendHlutabref:

Sundurliðunarblað RSK 3.19: Hlutabréf. Upplýsingar samkvæmt þessum kafla um hlutafjáreign í árslok eru færðar á sundurliðunarblað til hagræðis fyrir framteljanda. Þessi kafli getur innihaldið undirkaflana ErlendHlutabrefSala og/eða ErlendHlutabrefKaup.

SvæðisheitiLýsing svæðisVilluprófun
Lysing Frjáls texti sem tilgreinir hvaða hlutabréf um er að ræða (til dæmis nafn hlutafélags), allt að 60 stafa texti. TegString_1_60: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 60 stafir. Stakið verður að vera til staðar.
Land Hér skal setja tveggja stafa landkóða heimilisfesturíkis hlutafélags samkvæmt staðli ISO 3166. TegLandKodi:Stakið verður að innihalda gildan landkóða. Stakið verður að vera til staðar.
Nafnverd Nafnverð hlutabréfa í íslenskum krónum eins og það var við kaup. Nafnverð í íslenskum krónum breytist ekki á milli ára. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Annað stakanna "Nafnverd" og "FjoldiHluta" verður að vera til staðar en ekki bæði. Sú villuprófun fer fram við innlestur í gagnagrunn RSK.
FjoldiHluta Hér skal setja fjölda hluta. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Annað stakanna "Nafnverd" og "FjoldiHluta" verður að vera til staðar en ekki bæði. Sú villuprófun fer fram við innlestur í gagnagrunn RSK.
Kaupverd Verðgildi hlutabréfa í lok tekjuárs í íslenskum krónum, löng heiltala. Færa skal kaupverð hlutabréfa sem útgefin eru í erlendum gjaldmiðli á gengi eins og það var þegar hlutabréfin voru keypt. Kaupverð er því óbreytt í krónutölu á milli ára. TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakinu má sleppa.
Ardur Arður af hlutabréfum á tekjuári í íslenskum krónum, löng heiltala. Arð skal færa á kaupgengi þess tíma þegar hann var greiddur út. TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakinu má sleppa.
DagsArdgreidslu Dagsetning útborgunar arðs: Átta stafa dagsetning á forminu ÁÁÁÁMMDD. Dæmi: 20051201. TegDagsetning: Dagsetninging er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakinu má sleppa.
ErlendStadgreidsla Staðgreiðsla sem dregin er af arðgreiðslunni í heimalandi félags. Þessi fjárhæð er einungis til upplýsinga. Framteljandi getur sett þessa fjárhæð í athugasemdir á eyðublaði 3.19. TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakinu má sleppa.

ErlendHlutabrefKaup:

Þessi undirkafli er undirkafli kaflans ErlendHlutabref. Sundurliðunarblað 3.19: Hlutabréf. Upplýsingar samkvæmt þessum kafla eru færðar á sundurliðunarblað til hagræðis fyrir framteljanda.

SvæðisheitiLýsing svæðisVilluprófun
Seljandi 10 stafa kennitala seljanda. Ef seljandi er erlendur aðili sem ekki hefur íslenska kennitölu skal setja "9999999999" í svæðið. TegKennitala. Kennitalan er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar.
Vidskiptadagur Viðskiptadagur hlutabréfa: 8 stafa dagsetning: AAAAMMDD. Hér er tilgreindur sá dagur sem viðskiptin áttu sér stað. TegDagsetning: Dagsetningin er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar.
Nafnverd Nafnverð hlutabréfa í íslenskum krónum. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Annað stakanna "Nafnverd" og "FjoldiHluta" verður að vera til staðar en ekki bæði. Sú villuprófun fer fram við innlestur í gagnagrunn RSK.
FjoldiHluta Hér skal setja fjölda keyptra hluta. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Annað stakanna "Nafnverd" og "FjoldiHluta" verður að vera til staðar en ekki bæði. Sú villuprófun fer fram við innlestur í gagnagrunn RSK.
Gengi Hér skal skrá gengi þeirra hlutabréfa sem viðskiptin eiga sér stað með: Tvínákvæm tala (double precision). TegUpphaedTvi: Notaðir eru allt að 4 aukastöfum í úrvinnslu þessa svæðis. Stakinu má sleppa.
ErlentKaupverd Kaupverð í erlendri mynt. Ef viðskiptin eru í erlendri mynt skal færa erlent kaupverð hér. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar.
MyntKodi Ef um er að ræða viðskipti með erlend hlutafélög skal skrá þriggja bókstafa myntkóða hér samkvæmt staðli ISO 4217. TegMyntKodi: Stakið verður að innihalda gildan myntkóða. Stakið verður að vera til staðar.
Myntgengi Ef um er að ræða viðskipti með erlend hlutabréf skal setja myntgengi hér: Tvínákvæm tala (double precision). TegUpphaedTvi: Notaðir eru allt að 6 aukastöfum í úrvinnslu þessa svæðis. Stakinu má sleppa.
Kaupverd Verð hlutabréfa í íslenskum krónum. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar.

ErlendHlutabrefSala:

Þessi undirkafli er undirkafli kaflans ErlendHlutabref. Sundurliðunarblað 3.19: Hlutabréf. Upplýsingar samkvæmt þessum kafla eru færðar á sundurliðunarblað til hagræðis fyrir framteljanda.

SvæðisheitiLýsing svæðisVilluprófun
Kaupandi 10 stafa kennitala kaupanda. Ef kaupandi er erlendur aðili sem ekki hefur íslenska kennitölu skal setja "9999999999" í svæðið. TegKennitala. Kennitalan er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar.
Vidskiptadagur Viðskiptadagur hlutabréfa: 8 stafa dagsetning: AAAAMMDD. Hér er tilgreindur sá dagur sem viðskiptin áttu sér stað. TegDagsetning: Dagsetningin er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar.
Nafnverd Nafnverð hlutabréfa í íslenskum krónum. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Annað stakanna "Nafnverd" og "FjoldiHluta" verður að vera til staðar en ekki bæði. Sú villuprófun fer fram við innlestur í gagnagrunn RSK.
FjoldiHluta Hér skal setja fjölda seldra hluta. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Annað stakanna "Nafnverd" og "FjoldiHluta" verður að vera til staðar en ekki bæði. Sú villuprófun fer fram við innlestur í gagnagrunn RSK.
Soluverd Verð hlutabréfa í íslenskum krónum. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar.
Kaupar Kaupár seldra hlutabréfa. Svæðið verður að vera 4 tölustafir. TegNum_4. Athugað er hvort svæðið sé örugglega 4 á lengd og að það innihaldi ekki annað en tölustafi. Stakinu má sleppa.

EydubladRSK315:

Eyðublað 3.15: Sala/innlausn verðbréfa. Sjá nánar leiðbeiningar fyrir eyðublað 3.15 þar sem fram kemur nákvæm lýsing á einstökum upphæðarreitum ásamt upplýsingum um upphafsverð markaðsverðbréfa og gengi hlutdeildarskírteina.
Þegar þessum kafla er skilað þarf að gæta vel að því að tilgreina ekki vaxtatekjur og staðgreiðslu líka í kaflanum VerdbrefOgKrofur. Upplýsingum samkvæmt eyðublaði 3.15 er summerað upp í kafla 3.3 á framtali og þar af leiðandi má ekki tilgreina þær þar.

SvæðisheitiLýsing svæðisVilluprófun
Banki Bankanúmer eins og það er skilgreint af Reiknistofu bankanna, 4 stafir. Ef stofnun notar ekki númerakerfi RB skal setja 0000 í svæðið. TegString_4: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 4 stafir. Stakinu má sleppa.
Hb Höfuðbók númer eins og hún er skilgreind af Reiknistofu bankanna, 2 stafir. Ef stofnun notar ekki númerakerfi RB skal setja 00 í svæðið. TegString_2: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 2 stafir. Stakinu má sleppa.
Numer Númer verðbréfs. TegString_1_6: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 6 stafir. Stakinu má sleppa.
LysingBrefs Lýsing selds bréfs/Hvaða bréf var selt? Allt að 60 stafa textasvæði þar sem fram komi tegund bréfs eða nafn sjóðs. TegString_1_60: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 60 stafir. Stakið verður að vera til staðar.
AdurVextirAArinu Áður fengnir vextir á árinu, löng heiltala. TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakinu má sleppa.
HvenaerSelt Dagsetning sölu verðbréfs: Átta stafa dagsetning á forminu ÁÁÁÁMMDD. Dæmi: 20051201. TegDagsetning: Dagsetningin er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar.
HverjumSelt Hverjum selt: Allt að 60 stafa textasvæði þar sem fram komi nafn kaupanda. TegString_1_60: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 60 stafir. Stakið verður að vera til staðar.
KennitalaKaupanda 10 stafa kennitala kaupanda verðbréfa. TegKennitala. Kennitalan er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar.
Soluverd Söluverð verðbréfs, löng heiltala. TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar.
Stadgreidsla Afdregin staðgreiðsla af söluhagnaði verðbréfs, löng heiltala. Ef enginn söluhagnaður er af verðbréfinu skal setja 0 í svæðið, því má ekki sleppa. TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar.
HvenaerKeypt Dagsetning kaupa verðbréfs. Átta stafa dagsetning á forminu ÁÁÁÁMMDD. Dæmi: 20051201. Ef kaupdagsetning er ekki þekkt má setja hér 1.1. kaupárs eða 1.1. tekjuárs ef kaupár er ekki þekkt. TegDagsetning: Dagsetningin er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar.
AfHverjumKeypt Af hverjum keypt: Allt að 60 stafa textasvæði þar sem fram komi nafn þess sem verðbréfið var upphaflega keypt af. Ef ekki er vitað af hverjum bréfið var keypt má setja hér textan "Óþekktur seljandi" TegString_1_60: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 60 stafir. Stakið verður að vera til staðar.
KennitalaSeljanda 10 stafa kennitala upphaflegs seljanda verðbréfs. TegKennitala. Kennitalan er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakinu má sleppa.
Stofnverd Upphaflegt kaupverð verðbréfs, löng heiltala. Ef kaupverð er 0 skal setja 0 í svæðið. Ef kaupverð er ekki þekkt skal sleppa þessu staki, þá verður gerð krafa um að framteljandi skrái stofnverðið. TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakinu skal sleppa þegar kaupverð er ekki þekkt.
UpprunaAudkenni Auðkenni verðbréfsins eins og það er skráð hjá sendanda. Hér er gert ráð fyrir einkvæmu auðkenni verðbréfsins. Ef hægt er að auðkenna það með banka, höfuðbók og reikningsnúmeri skal setja hér banka, höfuðbók og reikningsnúmer í forminu BBBBHHNNNNNN. Annars skal tilgreina hér númer verðbréfs eða hverja þá auðkenningu sem gefur verðbréfinu einkvæmt númer eða auðkenni. TegString_1_30: Stakið skal vera 1 til 30 stafir á lengd, því má sleppa.

Hér kemur lýsing á undirkaflanum Threp. Hér skal tilgreina þann hluta vaxtatekna og staðgreiðslu sem tilheyra öðru skattþrepi. Á tekjuárinu 2009 eru tvö þrep í gildi og skal setja vaxtatekjur og staðgreiðslu síðari hluta ársins (júlí til desember) í undirkaflann Threp. Ef sama skattþrep gildir allt árið þarf ekki að tilgreina þennan kafla. Á tekjuárinu 2009 verður þessi kafli að vera með. Á tekjuárinu 2009 verður þessi kafli að vera með. Á tekjuárinu 2010 var einungis eitt skattþrep í gildi þannig þessi kafli er einungis hafður með þegar um er að ræða vaxtatekjur frá fyrri árum. Athugið að hér er um að ræða upphæðir sem eru "þar af" og eru innifaldar í heildarupphæðunum.

SvæðisheitiLýsing svæðisVilluprófun
HeitiThreps Setja textann TharAf15 í þetta svæði. TegThrep: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 8 og það innihaldi textan TharAf10 eða TharAf15. Stakið verður að vera til staðar.
Vaxtatekjur Löng heiltala. Hér skal tilgreina vaxtatekjur þrepsins. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar.
Stadgreidsla Löng heiltala. Hér skal tilgreina staðgreiðslu þrepsins. TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar.


Aðrar upplýsingar:

Þessi yfirkafli er notaður til að skila upplýsingum sem ekki falla beint undir neinn ofangreindra kafla ásamt upplýsingum sem skila þarf vegna sérstakra aðstæðna og þá einungis tímabundið.

Afskrifir lána.

Lýsingunni hér fyrir neðan var breytt 2.2.2011 vegna ábendingar frá Samtökum fjármálafyrirtækja.

Undirkaflinn FasteignalanAfskrift er notaður til að skila upplýsingum um fjárhæð afskriftar af lánum. Hér er gert ráð fyrir að allar afskriftir/lækkanir á árinu séu tilgreindar óháð forsendum lækkunarinnar eða tilefni lántökunnar. Afskriftir sem hafa verið ákveðnar en ekki framkvæmdar fyrir lok tekjuárs (2011 vegna framtals 2012) skal ekki tilgreina hér. Þær tilheyra næsta ári. Þrátt fyrir að kaflinn heiti FasteignalanAfskrift skal tilgreina hér lán sem ekki eru með veð í fasteign og eru tilgreind í kaflanum SkuldirOgVaxtagjold.

Með afskriftum er átt við niðurfærslu/lækkun skuldar samkvæmt lögum og/eða sérstakra aðstæðna þar sem skuldareigandi gefur skuldara eftir alla eða hluta skuldarinnar.
Svæðið EndurreiknadLan í kaflanum SkuldirOgVaxtagjold er óþarft eftir þessa breytingu en hefir ekki verið tekið út úr sniðinu.
Í upphæð afskriftar skal tilgreina fjárhæð allra lækkana/afskrifta sem orðið hafa á láninu án tillits til þess hvernig þær eru samsettar (höfuðstóll, vanskil, dráttarvextir). Miða skal við stöðu lánsins (uppgreiðsluverð) fyrir og eftir lækkun. Gert er ráð fyrir að undirkaflinn FasteignalanAfskrift sé tilgreindur sérstaklega fyrir hvert lán.

SvæðisheitiLýsing svæðisVilluprófun
Banki Bankanúmer eins og það er skilgreint af Reiknistofu bankanna, 4 stafir. Ef stofnun notar ekki númerakerfi RB skal setja 0000 í svæðið. TegString_4: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 4 stafir. Stakið verður að vera til staðar.
Hb Höfuðbók númer eins og hún er skilgreind af Reiknistofu bankanna, 2 stafir. Ef stofnun notar ekki númerakerfi RB skal setja 00 í svæðið. TegString_2: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 2 stafir. Stakið verður að vera til staðar.
Numer Númer láns. TegString_1_6: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 6 stafir. Stakið verður að vera til staðar.
UpprunaAudkenni Auðkenni lánsins eins og það er skráð hjá sendanda. Hér er gert ráð fyrir einkvæmu auðkenni lánsins. Ef hægt er að auðkenna það með banka, höfuðbók og reikningsnúmeri skal setja hér banka, höfuðbók og reikningsnúmer í forminu BBBBHHNNNNNN. Annars skal tilgreina hér númer láns eða hverja þá auðkenningu sem gefur láninu einkvæmt númer eða auðkenni. TegString_1_30: Stakið skal vera 1 til 30 stafir á lengd, því má sleppa.
UpphaedAfskriftar Upphæð afskriftar í heilum krónum, löng heiltala. TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar.

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook