Forsíða  > Fagaðilar  > Hugbúnaðarhús  > Staðgreiðsla, vefþjónusta
Veftré   A- A+

Vefþjónusta fyrir rafræn skil staðgreiðslu

Lýsing fyrir hugbúnaðarhús -- Útgáfa 2.1

Yfirlit

Almennt

Hér er að finna lýsingu á vefþjónustu RSK sem tekur við staðgreiðslu skilagreinum á XML formi. Vefþjónustan getur tekið við skeytum sem eru rafrænt undirrituð með skilríkjum og skeytum sem eru ekki rafrænt undirrituð. Þessi vefþjónusta kemur til með að taka við af eldri vefþjónustu sem er enn í notkun. Gert er ráð fyrir að hægt sé að nota öll x509 skilríki frá viðurkenndum aðilum t.d. Verisign, Globalsign og Thawte.

Högun

Biðlari

Biðlari sendir SOAP/XML skeyti á vefþjónustu sem er staðsett á Vefmiðlara. Sent er yfir SSL sem tryggir öryggi gagnanna. Hægt er að senda skeyti sem er rafrænt undirritað eða ekki. Biðlarinn getur verið í hvaða umhverfi sem er, unix, macintosh, windows skrifaður í hvaða forritunarmáli sem er. Forritunarumhverfið sem biðlarinn er skrifaður í þarf að styðja SOAP, og ef það á að nota rafrænar undirritanir þá þarf að vera stuðningur við WS-Security 1.0 staðalinn.

Rafrænt undirritað skeyti

Notaður er WS-Security 1.0 staðallinn við að rafrænt undirrita SOAP skeytið (sem hjúpar XML skjalið) með rafrænu skilríki. WS-Security er staðall sem sér um almennt öryggi fyrir vefþjónustur, einungis undirritunarhluturinn er notaður í þessu tilfelli. WS-Security notar XML Signature staðalinn frá w3c (World wide web consortium) við rafrænar undirritanir. Ekki er þörf á að nota rafræn skilríki til að dulrita SOAP skeytið þar sem notað er SSL sem sér um dulritunina. WS-Security staðallinn var hannaður í samvinnu Microsoft, IBM og Verisign og er frekar nýr. Stuðningur er við hann í .NET og Java. IBM og Verisign eru með sínar eigin útfærslur í Java ásamt nokkrum fyrirtækjum í viðbót. Microsoft er með stuðning við þetta í WSE (Web services enhancement) fyrir .NET umhverfið.

Vefþjónusta

Vefþjónustan notast við SOAP staðalinn við sendingu XML skjala en SOAP staðalinn hjúpar XML-ið. Það fyrsta sem vefþjónustan gerir er að athuga hvort hún sé ekki örugglega að fá SOAP skeyti. Ef um rafræna undirritun er að ræða þá athugar hún einnig hvort að skeytið sé ekki undirritað með x509 skilríki og hvort að skilríkið sé löglegt (athugar trusted root og revocation list). Ef skeytið er ekki í lagi eða einhver óeðlileg villa kemur upp þá eru send villuboð um að óvænt villa hafi komið upp, tölvupóstur er síðan sendur á ákveðinn hóp manna þ.a. hægt sé að bregðast við villunni. Ef að skýrslan stenst ekki villuprófun þá er sent SOAP/XML svar tilbaka með villuboðunum annars er sent SOAP/XML svar tilbaka sem segir að skýrslan hafi verið móttekin.

Vefaðgerðir

Skilgreining á xml skeytum er hægt að sjá þegar farið er inn á vefþjónustuna í gegnum vefinn. Þar kemur fram nákvæm lýsing á öllum vefaðgerðunum í wsdl (Web Service Description Language) skrá.

Tvær aðferðir við að kalla á vefþjónustuna:

  1. Rafrænt undirrita með skilríki stofnunar/fyrirtækis sem sent er í gegnum t.d. banka.
  2. Senda inn án þess að rafrænt undirrita.

Gert er ráð fyrir að hægt verði að sækja um veflykil með vefaðgerð innan skamms. Sú vefaðgerð gerir kröfu um að vera rafrænt undirritað með skilríki stofnunar/fyrirtækis sem hefur leyfi til þess að stofna veflykil.

AthugaSkilriki

Kallað er á þessa vefaðgerð til að athuga hvort að sé í lagi með skilríkið sem er verið að nota. Þessi vefaðgerð er einungis notuð þegar verið er að þróa kerfið sem kemur til með að nota þjónustuna. Athugað er hvort að rafræna undirritunin sé í lagi og hvort að skilríkinu sé treyst (athugar trusted root og revocation list) . Ef einhver villa kemur upp þá er send SOAP exception til baka. Vefaðgerðin tekur engan parameter

AthugaSkilrikiResponse

Skilar true ef allt er í lagi annars skilar hún SOAP exception.

SendaSkilagrein

Kallað er á þessa vefaðgerð þegar senda inn skilagrein. Sjá lýsingu á skilagreininni sem er send inn í viðauka A.

SendaSkilagreinResponse

Hvort sem verið er að senda rafrænt undirritaða skýrslu eða ekki þá er svarið eins. Svæðið <PDFKvittun> inniheldur pdf kvittun sem RSK sér um að útbúa. Mikilvægt er að notandi geti skoðað hana og vistað. Sjá villuboð og athugasemdir í viðauka B.

<Svar> <Skilagildi>long</Skilagildi> <!--Hvort sending tókst eða ekki (0=tókst, -1=tókst ekki) --> <Villubod>string</Villubod> <!--Villuboð ef upp kom villa (-1 í Skilagildi) --> <Abendingskilagrein>string</Abendingskilagrein> <!--Ábending ef eitthvað er athugavert við skilagreinina --> <Abendingkrafa>string</Abendingkrafa> <!--Ábending varðandi kröfuna--> <Villubodkrafa>string</Villubodkrafa> <!--Villuboð ef tókst ekki að stofna kröfu--> <ReiturA>long</ReiturA> <!--Staðgreiðsla og tryggingagjald samtals--> <ReiturB>long</ReiturB> <!--Staðgreiðsla af greiddum launum--> <ReiturC>long</ReiturC> <!--Staðgreiðsla af reiknuðu endurgjaldi--> <ReiturD>long</ReiturD> <!--Tryggingagjald--> <ReiturE>long</ReiturE> <!--Heildarfjárhæð greiddra launa--> <ReiturF>long</ReiturF> <!--Reiknað endurgjald greiðanda --> <Vanskil>long</Vanskil> <!--Vanskil ef greitt er of seint--> <Tilgreidslu>long</Tilgreidslu> <!--Upphæð til greiðslu --> <Tokstadstofnakrofu>boolean</Tokstadstofnakrofu> <!--Hvort tókst að stofna kröfu eða ekki --> <Ocr>string</Ocr> <!--Ocr rönd sem notuð er til að greiða kröfuna--> <KtEigandaKrofu>string</KtEigandaKrofu> <!--Kennitala eiganda kröfu --> <Krofunumer>string</Krofunumer> <!--Kröfunúmer (notað í greiðsluseðli) --> <Bankanumer>string</Bankanumer> <!--Bankanúmer sem er notað þegar krafa er greidd með greiðsluseðli --> <Hofudbok>string</Hofudbok> <!--Höfuðbók sem er notuð þegar krafa er greidd með greiðsluseðli --> <Gjalddagi>dateTime</Gjalddagi> <!--Gjalddagi kröfu --> <Vidmidunardagskrofu>string</Vidmidunardagskrofu> <!--Dagsetningin sem notuð er til að reikna út álag ef skilað er of seint ásamt því að vera niðurfellingadagur kröfu--> <BankanumerOCR>string</BankanumerOCR> <!--Bankanúmer sem er notað þegar krafa er greidd með AB-Gíró --> <HofudbokOCR>string</HofudbokOCR> <!--Höfuðbók sem notuð er þegar krafa er greidd er með AB-Gíró --> <Reikningsnumer>string</Reikningsnumer> <!--Reikningsnúmer sem er notað þegar krafa er greidd með AB-Gíró --> <Tilvisun>string</Tilvisun> <!--Tilvísunarnúmer --> <Sedilnumer>string</Sedilnumer> <!--Seðilnúmer --> <Faerslulykill>string</Faerslulykill> <!--Færslulykill --> <Numer>long</Numer> <!--Einkvæmt númer skilagreinar --> <PDFKvittun>base64Binary</PDFKvittun> <!--Base64 encode-aður strengur sem inniheldur kvittun á PDF formi--> </Svar>

SendaIVilluprofun

Sendir skilagrein í villuprófun. Athugað er hvort skilagreinin sé í lagi og skilað svari til baka. Sjá lýsingu á skilagreininni sem er send inn í viðauka A.

SendaIVilluprofunResponse

Skilar niðurstöðu skilagreinar ef hún er send óbreytt yfir. Sjá villuboð og athugasemdir í viðauka B.

<SvarVilluprofun> <Skilagildi>long</Skilagildi> <!--Hvort sending tókst eða ekki (0=tókst, -1=tókst ekki) --> <Villubod>string</Villubod> <!--Villuboð ef upp kom villa (-1 í Skilagildi) --> <Abendingskilagrein>string</Abendingskilagrein> <!--Ábending ef eitthvað er athugavert við skilagreinina --> <ReiturA>long</ReiturA> <!--Staðgreiðsla og tryggingagjald samtals--> <ReiturB>long</ReiturB> <!--Staðgreiðsla af greiddum launum--> <ReiturC>long</ReiturC> <!--Staðgreiðsla af reiknuðu endurgjaldi--> <ReiturD>long</ReiturD> <!--Tryggingagjald--> <ReiturE>long</ReiturE> <!--Heildarfjárhæð greiddra launa--> <ReiturF>long</ReiturF> <!--Reiknað endurgjald greiðanda --> <Vanskil>long</Vanskil> <!--Vanskil ef greitt er of seint--> </SvarVilluprofun>

NaITimabilOgForsendur

Kallað er á þessa vefaðgerð til þess að fá upplýsingar um leyfileg tímabil og forsendur fyrir þau tímabil. Forsendurnar eru notaðar til þess að reikna út hluti eins og tryggingagjald. Vefaðgerðin tekur engan parameter.

NaITimabilOgForsendurResponse

Skilar upplýsingum um leyfileg tímabil og forsendur fyrir þau tímabil.

<Ar id="string"> <!--Árið á forminu AAAA (Ár geta verið fleiri en 1)--> <Personuafslattur>decimal</Personuafslattur> <!--Persónuafsláttur--> <Stadgreidsluprosenta>decimal</Stadgreidsluprosenta> <!--Staðgreiðsluprósenta--> <Manudur id="string"> // <!--Mánuður á forminu MM (Mánuður getur verið fleiri en 1)--> <Tryggingagjald>decimal</Tryggingagjald> <!--Tryggingagjald per mánuð--> <TryggingagjaldVegnaSjomanna>decimal</TryggingagjaldVegnaSjomanna> <!--Tryggingagjald vegna sjómanns per mánuð--> </Manudur> </Ar>

SaekjaUmVeflykil (Aðgerð ekki tilbúin ennþá)

Aðgerð þar sem aðili sækir um veflykil. Veflykillinn verður strax virkur ef aðgerðin tekst og aðili fær veflykilinn. Ath. að send er inn yfirlýsing rsk og sameiningartexti sem sótt er með vefaðgerðinni SaekjaYfirlysinguRSK einnig er send inn yfirlýsing banka/stofnunar. Aðgerðin athugar hvort að YfirlysingRSK og SameiningarTexti hafi nokkuð breyst. Ef svo er þá kemur upp villa.

<KennitalaRekstraradila>string</ KennitalaRekstraradila> <!--Kennitala fyrirtækis --> <KennitalaUndirritar>string</KennitalaUndirritar> <!--Kennitala aðila sem undirritar umsóknina --> <Tolvupostfang>string</Tolvupostfang> <!--Tölvupóstfang umsóknaraðila --> <KerfiUtgafa>string</KerfiUtgafa> <!---Nafn kerfis og útgáfa sem sendir skeytið --> <YfirlysingRSK>base64Binary</YfirlysingRSK> <!--YfirlýsingRSK sem send er með--> <SameiningarTexti>base64Binary</SameiningarTexti > <!--Sameiningartexti--> <YfirlysingStofnunar>base64Binary</YfirlysingStofnunar> <!--Yfirlýsing banka/stofnunar-->

SaekjaUmVeflykilResponse (Aðgerð ekki tilbúin ennþá)

Skilar tilbaka nýjum veflykli.

<Tokst>boolean</Tokst> <NyrVeflykill>string</NyrVeflykill> <!--Nýr veflykill sem hægt er að nota strax--> <Villubod>string</Villubod>

SaekjaYfirlysinguRSK (Aðgerð ekki tilbúin ennþá)

Sækir yfirlýsingu RSK á pdf formi. Vefaðgerðin tekur engan parameter.

SaekjaYfirlysinguRSKResponse (Aðgerð ekki tilbúin ennþá)

Skilar tilbaka yfirlýsingur RSK og sameiningartexta á pdf formati.

<YfirlysingRSK>base64Binary</YfirlysingRSK> <!--YfirlýsingRSK á pdf formi--> <SameiningarTexti>base64Binary</SameiningarTexti> <!--Texti á pdf formi sem er notaður til þess að tengja saman yfirlýsingur RSK og yfirlýsingu stofnunar.-->

Uppsetning og umhverfi

Uppsetning

Hvað þarf til þess að geta tengst og byrjað að nota vefþjónustuna í prófun.

  1. Fá prófunarslóðina fyrir vefþjónustuna frá RSK.
  2. Fá kennitölu og veflykil í prófun frá RSK.
  3. Skrá útgáfu kerfisins sem sendir inn xml skeytin hjá RSK.

Ef á að nota rafrænar undirritanir

  1. Setja upp rafrænt skilríki til þess að undirrita.
  2. Senda upplýsingar um skilríki sem verður notað til RSK til að hægt sé að treysta því.

Ef á að vera hægt að sækja um veflykil

  1. Útbúa þarf yfirlýsingu sem notandi les áður en hann sækir um veflykil. Þessi yfirlýsing er send með skeytinu þegar sótt er um veflykilinn.

Nánari upplýsingar er að finna hjá RSK.

Umhverfi

Vefmiðlarinn keyrir vefþjónustuna í Internet Information Services 6.0, notar stýrikerfið Microsoft Windows Server 2003 umhverfi og upsetur með .NET Framework 2.0. Gagnagrunnurinn er Oracle 9i sem keyrir á aðskildri vél frá vefmiðlarnum. Vefþjónustan er smíðuð í Visual Studio .NET 2005 og skrifuð í C#. Notað er Web Service Enhancements (WSE) 2.0 SP3 frá Microsoft til að útfæra WS-Security staðalinn fyrir .NET.

Viðauki A - Skilagrein

<Stadgreidsla xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance"> <KennitalaLaunagr>1210841231</KennitalaLaunagr> <!-- Kennitala launagreiðanda. Verður að vera útfyllt og 10 stafir --> <Timabil>200206</Timabil> <!-- Greiðslutímabil á forminu AAAAMM Verður að skila og verður að vera 6 stafir--> <Veflykill>1234</Veflykill> <!-- Veflykill sem fengin er hjá RSK notaður til að auðkenna notanda--> <Tegund>1</Tegund> <!-- Sett 1 fyrir skil beint frá launakerfi--> <Forrit_Utgafa>Vefur 1b</Forrit_Utgafa> <!-- 60 stafa strengur sem segir til um auðkenni(nafn) forrits og útgáfu þess t.d LaunakerfiX 1.0 --> <Sundurlidun> <Launamenn id="1"> <!-- id er hlaupandi númer fyrir launamann, verður að vera útfyllt--> <Kennitala>1112311111</Kennitala> <!-- Kennitala launagreiðanda. Verður að vera útfyllt og 10 stafir --> <Starfshlutfall>100</Starfshlutfall> <!-- Má vera autt en ef það er tala þá verður hún að vera á bilinu 0 - 100 --> <Isat95>82301</Isat95> <!-- Má vera autt eða 5 stafir --> <Istarf95>1234</Istarf95> <!-- Má vera autt eða 1 - 4 stafir --> <Reiknadendurgjald>1</Reiknadendurgjald> <!-- 1 eða 0. Sett 1 ef launamaður er með reiknað endurgjald annars 0 --> <Laun>100000</Laun> <!-- Verður að vera tala, má ekki vera autt --> <Tharaf_gr_sereignarsparnadur>40000</Tharaf_gr_sereignarsparnadur> <!--Ef stakið er til staðar verður það að vera tala og má ekki vera autt. Þar af upphæð séreignarsparnaðar. Talan er innifalin í stakinu Laun og má ekki vera hærri --> <Stadgr_dagpen>1000</Stadgr_dagpen> <!-- Verður að vera tala, má ekki vera autt --> <Stadgr_okut>1000</Stadgr_okut> <!-- Verður að vera tala, má ekki vera autt --> <Greitt_i_lifeyrissjod>6000</Greitt_i_lifeyrissjod> <!-- Verður að vera tala, má ekki vera autt --> <StadgreidslaLaunam>30000</StadgreidslaLaunam> <!-- Verður að vera tala, má ekki vera autt --> <Bifreidahlunnindi>1000</Bifreidahlunnindi> <!-- Verður að vera tala má ekki vera autt--> </Launamenn> <Launamenn id="2"> <Kennitala>2212123349</Kennitala> <Starfshlutfall>100</Starfshlutfall> <Isat95>72001</Isat95> <Istarf95>930</Istarf95> <Reiknadendurgjald>1</Reiknadendurgjald> <Laun>25000000</Laun> <Stadgr_dagpen>0</Stadgr_dagpen> <Stadgr_okut>0</Stadgr_okut> <Greitt_i_lifeyrissjod>12000</Greitt_i_lifeyrissjod> <StadgreidslaLaunam>40000</StadgreidslaLaunam> <Bifreidahlunnindi>0</Bifreidahlunnindi> </Launamenn> </Sundurlidun> <Skilagrein id="2"> <!-- id er Fjöldi launamanna --> <Stadgreidsla_heild>152105</Stadgreidsla_heild> <!--Staðgreiðsla + tryggingagjald. Verður að vera tala, má ekki vera autt --> <Stadgreidsla_laun>103000</Stadgreidsla_laun> <!--Staðgreiðsla af greiddum launum. Verður að vera tala, má ekki vera autt --> <Stadgreidsla_endurgj>30000</Stadgreidsla_endurgj> <!--Staðgreiðsla af reiknuðu endurgjaldi. Verður að vera tala, má ekki vera autt --> <Tryggingagjald>22105</Tryggingagjald> <!--Tryggingagjald. Verður að vera tala, má ekki vera autt --> <Heildar_laun>250000</Heildar_laun> <!--Heildarfjárhæð greiddra launa. Verður að vera tala, má ekki vera autt --> <Reiknad_endurgj>100000</Reiknad_endurgj> <!--Heildarfjárhæð reiknað endurgjalds. Verður að vera tala, má ekki vera autt --> <Engin_laun>0</Engin_laun> <!-- Getur verið einungis 1 eða 0. Sett 1 ef engin laun eru greidd annars 0--> </Skilagrein> </Stadgreidsla>

Viðauki B - Villuboð og athugasemdir

Grunnvilluprófun
Nr.VilluboðÁstæða
001 Útgáfa forrits hefur ekki fengið staðfestingu ríkisskattstjóra.
002 Veflykill ekki í lagi
005 Tímabil ekki á réttu formi Ef tímabil (úr XML-inu) er ekki 6 stafir
006 Ártal ekki á réttu formi Ef ártal er ekki 4 stafa tala
007 Mánuður ekki á réttu formi Ef tala er ekki á bilinu 1 - 12
Skilagrein
Nr.VilluboðÁstæða
008 Ekki hægt að skila núllskýrslu nema að merkja við engin laun Ef heildarfjárhæð greiddra launa er 0 en ekki merkt við engin laun rofan
009 Það má ekki merkja við engin laun ef um launagreiðslur er að ræða Ef heildarfjárhæð greiddra launa er > 0 og merkt við engin laun
010 Ekki hægt að skila fyrir árið {0} eða fyrr Eftir 1 júní má einungis skila fyrir árið í ár, fyrir 1 júní má skila líka fyrir árið á undan
011 Ekki má skila fyrir tímabil fyrr en eftir {0} dag mánaðar XMLSkil mega byrja að skila fyrir tímabil á 1 degi tímabils en Vefskil mega ekki byrja að skila fyrr en á 20 degi tímabils
012 Tegund skilagreinar ekki í lagi Tegund verður að vera annað hvort XMLSkil eða Vefskil
031 Staðgreiðsla af greiddum launum má ekki vera hærri en {0} Svæði má ekki vera hærri en 9.999.999.999 (10 stafir)
032 Staðgreiðsla af reiknuðu endurgjaldi má ekki vera hærri en {0} XSvæði má ekki vera hærri en 9.999.999.999 (10 stafir)
033 Tryggingagjald má ekki vera hærri en {0} Svæði má ekki vera hærri en 9.999.999.999 (10 stafir)
034 Heildarfjárhæð greiddra launa má ekki vera hærri en {0} Svæði má ekki vera hærri en 9.999.999.999.999 (13 stafir)
035 Reiknað endurgjald má ekki vera hærri en {0} Svæði má ekki vera hærri en 9.999.999.999.999 (13 stafir)
036 Samtala má ekki vera hærri en {0} Svæði má ekki vera hærri en 9.999.999.999.999 (13 stafir)
Sundurliðun
Nr.VilluboðÁstæða
013 Kennitala {0}. Lína {1}. Kennitala má ekki vera tóm
014 Kennitala {0}. Lína {1}. Kennitala stenst ekki vartölupróf
015 Kennitala {0}. Lína {1}. Launamaður verður að vera einstaklingur Ef lögaðilakennitala þ.e. Fyrsti stafur kt > 3
016 Kennitala {0}. Lína {1}. Kennitala finnst ekki í þjóðskrá
017 Kennitala {0}. Lína {1}. Starfshlutfall ekki rétt Starfshlutfall verður að vera á bilinu 0 - 100
018 Kennitala {0}. Lína {1}. Isat95 númerið ekki rétt. {0} Isat95 verður að vera tómt eða 5 stafir
019 Kennitala {0}. Lína {1}. Istarf95 númerið ekki rétt Istarf95 verður að vera tómt eða 4 stafir
020 Kennitala {0}. Lína {1}. Aðili er ekki með rétt merkt við reiknað endurgjald
022 Heildarfjárhæð greiddra launa má ekki vera hærri en {0} Á bara við um ef kennitala launagreiðanda er sú sama og kennitala launamanns. Aðili verður að skila reiknuðu endurgjaldi nema hann sé merktur með "Launagreiðslur utan atvinnurekstur" í Launagreiðandaskrá
037 Kennitala {0}. Lína {1}. Laun mega ekki vera hærri en {0} Svæði má ekki vera hærri en 999.999.999.999 (12 stafir)
038 Kennitala {0}. Lína {1}. Staðgreiðsla má ekki vera hærri en {0} Svæði má ekki vera hærri en 9.999.999.999 (10 stafir)
039 Kennitala {0}. Lína {1}. Staðgreiðsla dagpeninga má ekki vera hærri en {0} Svæði má ekki vera hærri en 9.999.999.999 (10 stafir)
040 Kennitala {0}. Lína {1}. Staðgreiðsla ökutækjastyrks má ekki vera hærri en {0} Svæði má ekki vera hærri en 9.999.999.999 (10 stafir)
041 Kennitala {0}. Lína {1}. Greitt í lífeyrissjóð má ekki vera hærra en {0} Svæði má ekki vera hærri en 9.999.999.999 (10 stafir)
043 Kennitala {0}. Lína {1}. Bifreiðahlunnindi mega ekki vera hærri en {0} Svæði má ekki vera hærri en 9.999.999.999 (10 stafir)
Samtölur
Nr.VilluboðÁstæða
023 Fjöldi launamanna í sundurliðun({0}) stemmir ekki við fjölda launamanna í skilagrein({1})
024 Heildarlaun í sundurliðun({0}) stemma ekki við heildarlaun í skilagrein ({1})
025 Staðgreiðsla í sundurliðun ({0}) stemmir ekki við staðgreiðslu í skilagrein ({1})
026 Staðgreiðsla af reiknuðu endurgjaldi í sundurliðun({0}) stemmir ekki við upphæð í skilagrein({
Annað
Nr.VilluboðÁstæða
028 Athugið. Ekki hægt að skila inn eins skilagrein tvisvar. Ef búið er að skila eins skilagrein áður
029 Leiðrétting/bakfærsla er of há. Heildarstaða skilagreinar má ekki vera neikvæð Ef leiðrétting (neikvæð skilagrein) er þá há að heildarstaða skilagreinar fer í mínus. Ef einhver reitur (A,B,C,D,E,F) fer í mínus.
030 Búið að skila inn eins skilagrein. Athugað er í staðgreiðslukerfinu hvort eins skilagrein hafi verið skilað (á ekki að geta komið upp)
042 Upphæð til greiðslu má ekki vera hærri en {0} en er {1} Svæði má ekki vera hærri en 999.999.999 (9 stafir)
Athugasemdir
Nr.VilluboðÁstæða
021 Kennitala {0}. Lína {1}. Greiðsla í Lífeyrissjóð er hærri en 8% af launum

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook