Forsíða  > Fagaðilar  > Hugbúnaðarhús  > Takmörkuð skattskylda
Veftré   A- A+

Takmörkuð skattskylda.

Lýsing fyrir hugbúnaðarhús

Yfirlit

Lýsing og vefþjónusta fyrir skilagrein 5.44 er enn í vinnslu.

Eftirfarandi er lýsing á vefþjónustu sem tekur við skilagrein og sundurliðun vegna takmarkaðrar skattskyldu á Íslandi. Um er að ræða tvenns konar skil á staðgreiðslu:
a)Vegna þeirra aðila sem bera takmarkaða skattskyldu samkvæmt 3., 6. og 8. tölul. 3. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, og laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda. Nánari lýsingu má finna í leiðbeiningum með eyðublaði RSK 5.41
b)Vegna þeirra aðila sem bera takmarkaða skattskyldu samkvæmt 7. tl. 3. gr. laga nr. 90/2003 og skv. ákvæðum í lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda. Nánari lýsingu má finna í leiðbeiningum með eyðublaði RSK 5.44

Um staðgreiðslu skatta launþega sem falla undir 1. og 2. tölul. 3. gr. tekjuskattslaga gilda almennar reglur og skil á staðgreiðslu þeirra samkvæmt venjulegum staðgreiðsluskilum vegna launþega.

Lýsing þessi er aðallega ætluð tæknifólki sem sér um að setja upp sendingu upplýsinga til ríkisskattstjóra. Þó svo að hér sé um að ræða tæknilega lýsingu geta almennir notendur hugsanlega haft eitthvað gagn af henni.
Í breytingasögu má finna upplýsingar um breytingar sem gerðar hafa verið á þessari lýsingu ásam öðrum tæknilýsingum ríkisskattstjóra. Breytingasagan er aðgengileg sem efnisstraumur (Atom) sem hægt er að tengjast og fá skilaboð þegar henni er breytt.
Þeir aðilar sem ekki nýta sér vefþjónustuna geta skráð skilagrein og sundurliðun á þjónustusíðu ríkisskattstjóra. Nota skal veflykil staðgreiðslu við innskráningu.
Nánari upplýsingar veitir fridjon.bjarnason@rsk.is

Lýsing á vefþjónustu

Vefþjónustan tekur við XML skjali sem er sannreynt á móti XML sniði (schema). Ef það uppfyllir kröfur sniðsins eru gögnin villuprófuð. Eftirtaldar villur valda því að vinnslan er stöðvuð og einungis villuboðum er skilað:
XML villa.
Veflykill passar ekki við kennitölu sendanda.
Útgáfustrengur forrits (stak ForritHeiti) finnst ekki.

Ef engar af ofangreindum villum eru til staðar er hægt að vinna úr XML skjalinu. Þá er skilað XML skjali með villuboðum, ef einhver eru ásamt útreiknaðri staðgreiðslu. Eftirtaldar villur valda því að sendingunni er hafnað:
Skjalið inniheldur kennitölu sem ekki finnst í Þjóðskrá.
Heildarfjárhæð skilagreina tímabils er neikvæð (mínus).
Heildaupphæð greiðslu eða staðgreiðslu stemmir ekki við summu greiðslna.
Annars er skjalið móttekið og stofnuð krafa hjá Reiknistofu bankanna. Vinnslan reiknar staðgreiðslu fyrir allar greiðslur og skilar sérstöku staki fyrir hana í kafla Greidslur. Ef Mismunur er á skilaðri staðgreiðslu og reiknaðri staðgreiðslu koma villuboð í greiðslustakið. Í samtölustakið kemur einnig heildartala fyrir reiknaða staðgreiðslu ásamt villuboðum ef ekki stemmir. Heildarfjárhæð reiknaðrar staðgreiðslu er alltaf notuð þegar krafa er stofnuð.


Þessi skjöl innihalda lýsingar og snið fyrir villupróf:
Lýsing í mæltu máli.
XML snið.

Slóðin á vefþjónustuna er: https://secure.rsk.is/Stadgreidsla/StadgreidslaV1/Skilagrein.svc
Gerður hefur verið sérstakur kafli með lýsingu og dæmum til þess að auðvelda forritun á móti vefþjónustunni.

Eftirtaldar vefþjónustuaðgerðir eru í boði:

Heiti aðgerðarLýsing aðgerðar
SendaSkilagrein541 Sendir XML skjal samkvæmt lýsingu Skilagrein541, skilar skjali samkvæmt lýsingu Skilagrein541Svar og uppfærir hlutaðeigandi töflur. Einnig er skilað upplýsingum um kröfu ásamt kvittun fyrir móttöku.
ReiknaOgVilluprofa541 Sendir XML skjal samkvæmt lýsingu Skilagrein541 og skilar skjali samkvæmt lýsingu Skilagrein541Svar
SendaSkilagrein544 Sendir XML skjal samkvæmt lýsingu Skilagrein544, skilar skjali samkvæmt lýsingu Skilagrein544Svar og uppfærir hlutaðeigandi töflur. Einnig er skilað upplýsingum um kröfu ásamt kvittun fyrir móttöku.
ReiknaOgVilluprofa544 Sendir XML skjal samkvæmt lýsingu Skilagrein544 og skilar skjali samkvæmt lýsingu Skilagrein544Svar

Prófanir

Til þess að hefja prófanir þarf notandi að hafa veflykil staðgreiðslu í testumhverfi. Einnig þarf að skrá útgáfustreng ef hann er ekki þegar til staðar.
Slóðin á testþjónustuna er: https://securep.rsk.is/Stadgreidsla/StadgreidslaV1/Skilagrein.svc

Skilagrein RSK 5.41

Skilagrein RSK 5.41 er skilað fyrir þá aðila sem bera takmarkaða skattskyldu samkvæmt 3., 6. og 8. tölul. 3. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt.

Aðgerðin ReiknaOgVilluprofa541 skilar upphaflegu skjali ásamt villuboðum, athugasemdum og reiknaðri staðgreiðslu í stökunum XmlVillur, Villubod og ReiknudStadgreidsla. Hentugt getur verið að nota þess aðgerð til að reikna staðgreiðslu áður en skilagrein er send. Aðgerðin SendaSkilagrein541 skilar sömu gögnum auk upplýsinga um um kröfu og kvittun í stakinu Svar.

XML snið (schema) fyrir skil á staðgreiðslu.
XML snið (schema) fyrir svar með villuboðum og athugasemdum.

Dæmi um XML skjal með skilagrein og sundurliðun.
Dæmi 1 um svar.
Dæmi 2 um svar.

Yfirkafli Greidandi:

SvæðisheitiLýsing svæðisVilluprófun
Tekjuar Ártal skilagreinar. Ártalið á við það ár sem greiðslur hafa átt sér stað. TegNum_4. Svæðið skal vera 4 á lengd og innihalda einungis tölustafi. Stakið verður að vera til staðar.
Timabil Mánuður skilagreinar. Ártal og mánuður mynda tímabil. Hér er átt við það tímabil sem greiðslur hafa átt sér stað. TegManudur. Svæðið skal vera 2 á lengd og innihalda númer mánaðar.
Veflykill Veflykill frá RSK til aðgangsstýringar. Hér skal tilgreina veflykil staðgreiðslu. TegString_6_20. Svæðið skal vera 6 til 20 stafir á lengd. Stakið verður að vera til staðar.
ForritUtgafa Útgáfustrengur forrits sendanda. TegString_5_30. Nafn og útgáfunúmer upprunaforrits t.d. LaunakerfiX 1.0. RSK úthlutar þessum streng, ekki er hægt að nota vefþjónustuna nema gildur strengur sé skilgreindur. Lengd strengsins skal vera 5 til 30 stafir.
KennitalaGreidanda Hér skal tilgreina kennitölu greiðanda/sendanda. TegKennitala. Svæðið verður að vera útfyllt og 10 stafir að lengd. Kennitalan verður að vera til í Þjóðskrá.
Athugasemdir Allt að 200 stafa texti sem getur innihaldið upplýsingar sem sendandi vill koma á framfæri við RSK. Hér er æskilegt að tilgreina nafn, símanúmer og tölvupóstfang sendanda. Dæmi um texta:
Tengliður: Jón Jónsson, sími: 6677889, tölvupóstfang: jon.jonsson@stofnun.is.
TegString_1_200. Svæðið skal vera 1 til 200 stafir á lengd. Stakinu má sleppa.
Það er leyfilegt að tilgreina þetta stak oft (maxOccurs="unbounded").
Hér eru tilgreind þau tvö stök sem tilheyra yfirkafla Samtolur:
SamtalsGreidslur Heildarfjárhæð greiðslna í sendingunni. TegUpphaedHeil. Svæðið skal innihalda tölustafi og má vera mínus tala. Stakið verður að vera til staðar.
SamtalsStadgreidsla Heildarfjárhæð staðgreiðslu í sendingunni. TegUpphaedHeil. Svæðið skal innihalda tölustafi og má vera mínustala. Stakið verður að vera til staðar.

Yfirkafli Vidtakandi:

SvæðisheitiLýsing svæðisVilluprófun
KennitalaVidskiptamanns 10 stafa kennitala framteljanda/viðskiptamanns. TegKennitala. Kennitalan er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Annaðhvort þetta stak eða undirkaflinn ErlendurAdili verður að vera til staðar (XML choice).
ErlendurAdili Undirkafli með upplýsingum um erlendan aðila. Þennan undirkafla skal einungis tilgreina fyrir aðila sem ekki hafa íslenska kennitölu. Annaðhvort verður þessi undirkafli að vera til staðar eða stakið KennitalaVidskiptamanns(XML choice).
Hér koma stök undirkaflans ErlendurAdili. Athugið að undirkaflinn er einungis tilgreindur þegar viðskiptamaður er erlendur og á ekki íslenska kennitölu. Þegar þessi kafli er tilgreindur má ekki tilgreina kennitölu.
Nafn Nafn erlends aðila. TegString_1_70. Athugað er hvort svæðið sé 1 til 70 stafir á lengd. Stakið verður að vera til staðar ef yfirkafli þess er tilgreindur.
EigandiGreidslu Hér skal setja J ef viðtakandi greiðslu er raunverulegur eigandi (benficial owner). Ef viðtakandi er milligönguaðili er sett N í svæðið. TegString_J_N. Athugað er hvort svæðið innihaldi J eða N. Stakið verður að vera til staðar ef yfirkafli þess er tilgreindur.
Tin Skattkennitala, TIN (Tax Identification Number) eins og hún er gefin út í heimalandi viðskiptamanns. TegString_0_20. Athugað er hvort svæðið sé 0 til 20 stafir á lengd. Stakinu má sleppa.
OECDkodi OECD kóði viðtakanda greiðslu:
01: Einstaklingur.
02: Hlutafélag eða einkahlutafélag.
03: Sameignarfélag.
04: Samtök önnur en tilgreind eru í 02 eða 03.
05: Ríkis- eða alþjóðastofnun.
06: Annað.
07: Óþekkt.
TegString_OECD. Athugað er hvort svæðið innihaldi eitt af gildunum sem tilgreind eru í dálkinum hér við hliðina. Stakið verður að vera til staðar ef yfirkafli þess er tilgreindur.
Gata Heiti götu og húsnúmer og/eða heiti húss. TegString_1_70. Athugað er hvort svæðið sé 1 til 70 stafir á lengd. Stakið verður að vera til staðar ef yfirkafli þess er tilgreindur.
Borg Borg eða bær ásamt póstnúmeri. Póstnúmer kemur ýmist á undan eða eftir borg eða bæ. Gert er ráð fyrir að það sé skrá með sama hætti og tíðkast í heimalandinu. Dæmi: Bristol BS9 3BH, 21228 Malmö. TegString_1_35. Athugað er hvort svæðið sé 1 til 35 stafir á lengd. Stakið verður að vera til staðar ef yfirkafli þess er tilgreindur.
Fylki Hér má tilgreina hérað, sýslu eða fylki eða nýta þetta svæði ef heimilisfang er mjög langt. TegString_0_35. Athugað er hvort svæðið sé 0 til 35 stafir á lengd. Stakinu má sleppa.
Land Hér skal setja tveggja stafa landkóða heimilisfesturíkis viðskiptamanns samkvæmt staðli ISO 3166. TegLandKodi:Stakið verður að innihalda gildan landkóða. Stakið verður að vera til staðar.

Kafli Greidsla:

SvæðisheitiLýsing svæðisVilluprófun
UpprunaAudkenni Einkvæmt auðkenni færslunnar eins og hún er skráð hjá sendanda. Ef hægt er að auðkenna hana með banka, höfuðbók og reikningsnúmeri má setja hér hér banka, höfuðbók og númer í forminu BBBBHHNNNNNN. Annars má tilgreina hér númer greiðslu/verðbréfs/bankareiknings eða hverja þá auðkenningu sem gefur færslunni einkvæmt númer eða auðkenni. TegString_1_30. Þetta stak er eigind (attribute) og verður þar af leiðandi að vera til staðar. Það skal vera 1 til 30 stafir á lengd.
TegundGreidslu Hér skal tilgreina tegund þeirrar greiðslu sem innt er af hendi. Ef um er að ræða fleiri en eina tegund skal endurtaka undirkaflann Greidsla eins oft og þörf er á. Nákvæma skilgreiningu á einstökum gildum má finna í lýsingu á eyðublaði RSK 5.41 TegTegundGreidslu. Svæðið skal vera 3 tölustafir og verður að vera til staðar. Lista yfir leyfileg gildi má finna í XML sniðinu (schema).
Upphaed Upphæð greiðslu. TegUpphaedHeil. Svæðið skal innihalda tölustafi og má vera mínustala. Stakið verður að vera til staðar.
Stadgreidsla Afdregin staðgreiðsla TegUpphaedHeil. Svæðið skal innihalda tölustafi og má vera mínustala. Stakið verður að vera til staðar.

Skilagrein RSK 5.44

Þessi kafli er í vinnslu.

Skilagrein RSK 5.44 tekur til tekna erlendra aðila með takmarkaða skattskyldu (þ.m.t. þeir Íslendingar sem eru búsettir erlendis), af söluhagnaði og arði íslenskra hlutabréfa , stofnbréfa og annarra réttinda til hlutdeildar í hagnaði, sbr. 7. tölulið 3. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Aðgerðin ReiknaOgVilluprofa544 skilar upphaflegu skjali ásamt villuboðum, athugasemdum og reiknaðri staðgreiðslu í stökunum XmlVillur, Villubod og ReiknudStadgreidsla. Hentugt getur verið að nota þess aðgerð til að reikna staðgreiðslu áður en skilagrein er send. Aðgerðin SendaSkilagrein544 skilar sömu gögnum auk upplýsinga um um kröfu og kvittun í stakinu Svar.

XML snið (schema) fyrir skil á staðgreiðslu.
XML snið (schema) fyrir svar með villuboðum og athugasemdum.

Dæmi um XML skjal með skilagrein og sundurliðun.
Dæmi 1 um svar.
Dæmi 2 um svar.

Yfirkafli Greidandi:

SvæðisheitiLýsing svæðisVilluprófun
Tekjuar Ártal skilagreinar. Ártalið á við það ár sem greiðslur hafa átt sér stað. TegNum_4. Svæðið skal vera 4 á lengd og innihalda einungis tölustafi. Stakið verður að vera til staðar.
Timabil Mánuður skilagreinar. Ártal og mánuður mynda tímabil. Hér er átt við það tímabil sem greiðslur hafa átt sér stað. TegManudur. Svæðið skal vera 2 á lengd og innihalda númer mánaðar.
Veflykill Veflykill frá RSK til aðgangsstýringar. Hér skal tilgreina veflykil staðgreiðslu. TegString_6_20. Svæðið skal vera 6 til 20 stafir á lengd. Stakið verður að vera til staðar.
ForritUtgafa Útgáfustrengur forrits sendanda. TegString_5_50. Nafn og útgáfunúmer upprunaforrits t.d. LaunakerfiX 1.0. RSK úthlutar þessum streng, ekki er hægt að nota vefþjónustuna nema gildur strengur sé skilgreindur. Lengd strengsins skal vera 5 til 30 stafir.
KennitalaGreidanda Hér skal tilgreina kennitölu greiðanda/sendanda. TegKennitala. Svæðið verður að vera útfyllt og 10 stafir að lengd. Kennitalan verður að vera til í Þjóðskrá.
Athugasemdir Allt að 200 stafa texti sem getur innihaldið upplýsingar sem sendandi vill koma á framfæri við RSK. Hér er æskilegt að tilgreina nafn, símanúmer og tölvupóstfang sendanda. Dæmi um texta:
Tengliður: Jón Jónsson, sími: 6677889, tölvupóstfang: jon.jonsson@stofnun.is.
TegString_1_200. Svæðið skal vera 1 til 200 stafir á lengd. Stakinu má sleppa.
Það er leyfilegt að tilgreina þetta stak oft (maxOccurs="unbounded").
Hér eru tilgreind þau tvö stök sem tilheyra yfirkafla Samtolur:
SamtalsGreidslur Heildarfjárhæð greiðslna í sendingunni. Þetta er summa söluhagnaðar og arðs. TegUpphaedHeil. Svæðið skal innihalda tölustafi og má vera mínustala. Stakið verður að vera til staðar.
SamtalsStadgreidsla Heildarfjárhæð staðgreiðslu í sendingunni. Þetta er summa staðgreiðslu af söluhagnaði og arðs TegUpphaedHeil. Svæðið skal innihalda tölustafi og má vera mínustala. Stakið verður að vera til staðar.

Yfirkafli Vidtakandi:

SvæðisheitiLýsing svæðisVilluprófun
KennitalaVidskiptamanns 10 stafa kennitala framteljanda/viðskiptamanns. TegKennitala. Kennitalan er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Annaðhvort þetta stak eða undirkaflinn ErlendurAdili verður að vera til staðar (XML choice).
ErlendurAdili Undirkafli með upplýsingum um erlendan aðila. Þennan undirkafla skal einungis tilgreina fyrir aðila sem ekki hafa íslenska kennitölu. Annaðhvort verður þessi undirkafli að vera til staðar eða stakið KennitalaVidskiptamanns(XML choice).
Hér koma stök undirkaflans ErlendurAdili. Athugið að undirkaflinn er einungis tilgreindur þegar viðskiptamaður er erlendur og á ekki íslenska kennitölu. Þegar þessi kafli er tilgreindur má ekki tilgreina kennitölu.
Nafn Nafn erlends aðila. TegString_1_70. Athugað er hvort svæðið sé 1 til 70 stafir á lengd. Stakið verður að vera til staðar ef yfirkafli þess er tilgreindur.
EigandiGreidslu Hér skal setja J ef viðtakandi greiðslu er raunverulegur eigandi (benficial owner). Ef viðtakandi er milligönguaðili er sett N í svæðið. TegString_J_N. Athugað er hvort svæðið innihaldi J eða N. Stakið verður að vera til staðar ef yfirkafli þess er tilgreindur.
Tin Skattkennitala, TIN (Tax Identification Number) eins og hún er gefin út í heimalandi viðskiptamanns. TegString_1_20. Athugað er hvort svæðið sé 1 til 20 stafir á lengd. Stakinu má sleppa.
OECDkodi OECD kóði viðtakanda greiðslu:
01: Einstaklingur.
02: Hlutafélag eða einkahlutafélag.
03: Sameignarfélag.
04: Samtök önnur en tilgreind eru í 02 eða 03.
05: Ríkis- eða alþjóðastofnun.
06: Annað.
07: Óþekkt.
TegString_OECD. Athugað er hvort svæðið innihaldi eitt af gildunum sem tilgreind eru í dálkinum hér við hliðina. Stakið verður að vera til staðar ef yfirkafli þess er tilgreindur.
Gata Heiti götu og húsnúmer og/eða heiti húss. TegString_1_70. Athugað er hvort svæðið sé 1 til 70 stafir á lengd. Stakið verður að vera til staðar ef yfirkafli þess er tilgreindur.
Borg Borg eða bær ásamt póstnúmeri. Póstnúmer kemur ýmist á undan eða eftir borg eða bæ. Gert er ráð fyrir að það sé skrá með sama hætti og tíðkast í heimalandinu. Dæmi: Bristol BS9 3BH, 21228 Malmö. TegString_1_35. Athugað er hvort svæðið sé 1 til 35 stafir á lengd. Stakið verður að vera til staðar ef yfirkafli þess er tilgreindur.
Fylki Hér má tilgreina hérað, sýslu eða fylki eða nýta þetta svæði ef heimilisfang er mjög langt. TegString_1_35. Athugað er hvort svæðið sé 1 til 35 stafir á lengd. Stakinu má sleppa.
Land Hér skal setja tveggja stafa landkóða heimilisfesturíkis viðskiptamanns samkvæmt staðli ISO 3166. TegLandKodi:Stakið verður að innihalda gildan landkóða. Stakið verður að vera til staðar.

Tæknileg lýsing vefþjónustunnar

Vefþjónustan notar Windows Communication Foundation (WCF) frá Microsoft. Þar má finna nánari lýsingu á WCF.

WCF þjónustur nota svokallaða "endpoints" og öll samskipti við þjónusturnar fara fram gegnum þá. "Endpoint" samanstendur af "Address" "Binding" og "Contract".

Address er urlið á þjónustunni. Clientar sem nota sér þjónustuna verða að setja slóðina á vefþjónustunni sem þeir ætla að tala við þarna.

Binding er aðferðin sem notuð er við að tala við þjónustuna. Hægt er að nota http(s)/ tcp ofl. máta til að tala við þjónustuna. Þegar þjónustan er hýst á IIS eru samskiptin þó bundin við http(s).

Contract er samningurinn eða Interfacið sem þjónustan útfærir og skilgreinir hvernig skeytin sem fara á milli líta út.

Eins og fram kemur þegar farið er á slóð vefþjónustunnar er sýnt hvernig hægt er að nota svcutil.exe til að búa til client. SvcUtil er hægt að downloada sérstaklega (http://msdn.microsoft.com/en-us/vstudio/aa973758.aspx) en séu menn með VisualStudio 2008 uppsett eiga þeir það til á vélinni sinni.

Fljótlegasta leiðin til að búa til client á WCF þjónustu er að gera Add Service reference (Add web reference er gamla leiðin til að gera þetta) úr VisualStudio og setja inn urlið á vefþjónustunni. Þá er búinn til proxy klasi og web.config eða app.config skrá búin til með nauðslynlegum endpoint stillingum til að tala við þjónustuna. Hér fyrir neðan eru hlekkir á dæmi um endpoint sem verður til við að búinn er til service referenc e á vefþjónustuna í prófun(Umhverfið býr þessar stillingar til):

Dæmi um Endpoint.

Dæmi um Bind.

Stundum þarf að eiga við stillingarnar td. maxReceivedMessageSize og maxArrayLength hef ég þurft að stækka, default gildin í þessu eru frekar lítil af öryggisástæðum. Þar sem þjónustan notar https þá verður til wsHttpBinding sem er notað þegar um er að ræða https. Væri vefþjónustan .asmx þjónusta væri basicHttpBinding notuð. Annað sem vert er að nefna er að security mode = Transport verður að nota þegar um https samskipti er að ræða.

Dæmi um hvernig kallað er í vefþjónustuna (SendaSkilagrein541) þegar búið er að gera Service reference á hana.

TskSendingar.TskThjonustur.SkilagreinClient thjon =
new TskSendingar.TskThjonustur.SkilagreinClient();
FileStream inputStream = File.Open(InputName, FileMode.Open);
Stream resp = thjon.SendaSkilagrein541(InputName, inputStream);
string guidSkra = System.Guid.NewGuid().ToString();
string keyrsluFolder = Application.ExecutablePath;
string filename = keyrsluFolder + guidSkra + ".xml";
SaveStreamToFile(resp, filename);

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook