Forsíða  > Fagaðilar  > Helstu tölur  > Staðgreiðsla opinberra gjalda 2005
Veftré   A- A+

Staðgreiðsla opinberra gjalda 2005

Staðgreiðsla
Staðgreiðsla 37,73%

Staðgreiðslan skiptist í:

Tekjuskatt 24,75%
Útsvar í staðgreiðslu 12,98%

Hlutfall útsvars er mismunandi eftir sveitarfélögum. Hlutfall útsvars í staðgreiðslu er þó það sama á öllu landinu. Um er að ræða bráðabirgðagreiðslu upp í útsvar í álagningu. Mismunur kann því að vera milli staðgreiðslu og álagningar. Við álagningu er gerð krafa um greiðslu mismunar eða hann endurgreiddur, eftir því sem við á.

Stofn til útreiknings tekjuskatts og útsvars er hvers kyns endurgjald fyrir vinnu að teknu tilliti til þess frádráttar sem heimilaður er með lögum. Sem dæmi um endurgjald fyrir vinnu eru laun, hlunnindi, styrkir og reiknað endurgjald sem og lífeyrisgreiðslur, bætur og styrkir sem ekki eru sérstaklega undanþegin með lögum. Heimilaður frádráttur frá tekjum er m.a. lífeyrissjóðsiðgjald og frádráttur á móti ökutækjastyrk og dagpeningum eða hliðstæðum endurgreiðslum á kostnaði sem sannað er að séu ferða- og dvalarkostnaður vegna atvinnurekanda og eru í samræmi við matsreglur fjármálaráðherra.

Staðgreiðsla manna með takmarkaða skattskyldu vegna launa 37,73%

Staðgreiðslan skiptist í:

Tekjuskatt 24,75%
Útsvar í staðgreiðslu 12,98%

Menn sem koma til Íslands til tímabundinna starfa, þ.e. skemur en 6 mánuði á 12 mánaða tímabili, bera takmarkaða skattskyldu vegna tekna sem þeir afla hér á landi.

Með tekjum er átt við laun, starfstengdar greiðslur, hlunnindi o.s.frv.

Við álagningu er tekið tillit til persónuafsláttar og sjómannaafsláttar hjá þeim sem stunda sjómannsstörf.

Einstaklingar sem búsettir eru á einhverju öðru Norðurlandanna greiða fullan tekjuskatt og útsvar hérlendis vegna eftirlauna eða lífeyrisgreiðslna frá Íslandi. Tekið er tillit til persónuafsláttar á móti slíkum greiðslum. Sama á við um einstaklinga sem búsettir eru í landi sem ekki hefur gert tvísköttunarsamning við Ísland. Ákvæði tvísköttunarsamninga gilda ef einstaklingur er búsettur í ríki sem gert hefur tvísköttunarsamning við Ísland.

Hlutfall útsvars er mismunandi eftir sveitarfélögum. Hlutfall útsvars í staðgreiðslu er þó það sama á öllu landinu. Um er að ræða bráðabirgðagreiðslu upp í útsvar í álagningu. Mismunur kann því að vera milli staðgreiðslu og álagningar. Við álagningu er gerð krafa um greiðslu mismunar eða hann endurgreiddur, eftir því sem við á.

Stofn til útreiknings tekjuskatts og útsvars er hvers kyns endurgjald fyrir vinnu að teknu tilliti til þess frádráttar sem heimilaður er með lögum. Sem dæmi um endurgjald fyrir vinnu eru laun, hlunnindi, styrkir og reiknað endurgjald sem og lífeyrisgreiðslur, bætur og styrkir sem ekki eru sérstaklega undanþegin með lögum. Heimilaður frádráttur frá tekjum er m.a. lífeyrissjóðsiðgjald og frádráttur á móti ökutækjastyrk og dagpeningum eða hliðstæðum endurgreiðslum á kostnaði sem sannað er að séu ferða- og dvalarkostnaður vegna atvinnurekanda og eru í samræmi við matsreglur fjármálaráðherra.

RSK 12.10 - Að starfa á Íslandi tímabundið (242 kb)

Staðgreiðsla manna með takmarkaða skattskyldu vegna þjónustu / starfsemi sem innt er af hendi hér á landi og launa manna sem ekki dvelja hér á landi 27,98%
Staðgreiðslan skiptist í:
Tekjuskatt 15,00%
Útsvar í staðgreiðslu 12,98%

Launatekjur sem skattlagðar eru með 15% tekjuskatti:

  • Laun eða hliðstæðar greiðslur frá íslenskum aðilum til manna sem ekki dvelja hér á landi.

Greiðslur og þóknanir sem skattlagðar eru með 15% tekjuskatti

  1. Greiðslur eða þóknanir til manna, listamanna eða annarra, sem koma fram í atvinnuskyni til skemmtunar og/eða í hvers konar keppni.
  2. Greiðslur eða þóknanir til lögaðila vegna listamanna eða annarra sem koma fram í atvinnuskyni til skemmtunar eða í hvers konar keppni.
  3. Greiðslur til sjálfstætt starfandi manna fyrir aðra þjónustu og starfsemi.
  4. Greiðslur til lögaðila fyrir aðra þjónustu og starfsemi.

Sérstakt skattkort er gefið út til þeirra sem greiða ekki fullan tekjuskatt hér á landi. Kortið veitir ekki rétt til persónuafsláttar. Á skattkorti eru upplýsingar um það skatthlutfall sem launagreiðanda ber að halda eftir sem staðgreiðslu.

Þeir sem eiga ekki lögheimili á Íslandi, en eiga þar eignir, greiða 10% fjármagnstekjuskatt af brúttóleigutekjum og söluhagnaði sem þeir hafa af þessum eignum.

Nánari upplýsingar um takmarkaða skattskyldu.

Staðgreiðsla barna af tekjum umfram 96.125 kr. 6,00%
Staðgreiðslan skiptist í:
Tekjuskatt 4,00%
Útsvar 2,00%

Með börnum er átt við einstaklinga yngri en 16 ára. Miðað er við almanaksár (börn fædd 1991 eða síðar).

Börn fá engan persónuafslátt og fá því ekki útgefið skattkort.

Fjármagnstekjuskattur 10,00%

Stofn til útreiknings skatts á fjármagnstekjur er m.a. vaxtatekjur, verðbætur, afföll, gengishagnaður, arður af hlutabréfum, leigutekjur og skattskyldur söluhagnaður.

Hvorki er lagt á útsvar né önnur gjöld á fjármagnstekjur.

Fjármálafyrirtækjum ber að draga staðgreiðslu af vaxtatekjum og afföllum. Félögum með takmarkaða ábyrgð og samvinnufélögum ber að draga staðgreiðslu af arði. Aðrar tekjur er mynda stofn til fjármagnstekjuskatts einstaklinga eru skattlagðar við álagningu opinberra gjalda næsta ár á eftir tekjuári.

Nánari upplýsingar um fjármagnstekjuskatt.

Persónuafsláttur og sjómannaafsláttur
Persónuafsláttur á ári 339.846 kr.

Heimilt er að yfirfæra ónýttan persónuafslátt að fullu til maka. Sama gildir um sambúðarfólk sem hefur heimild til samsköttunar og skilar sameiginlegu skattframtali. Skili sambúðar fólk ekki sameiginlegu skattframtali millifærist persónuafsláttur ekki.

Börn yngri 16 ára fá ekki persónuafslátt. Miðað er við almanaksár (börn fædd 1991 eða síðar).

Eftirlifandi maki getur nýtt persónuafslátt hins látna í níu mánuði eftir andlát að andlátsmánuðinum meðtöldum.

Til að menn geti nýtt sér persónuafslátt við ákvörðun á staðgreiðslu á tekjuárinu þurfa þeir að afhenda launagreiðanda skattkort sitt.

Persónuafsláttur reiknast eingöngu þann tíma sem einstaklingur er heimilisfastur hérlendis.

Nánari upplýsingar um persónuafslátt.

Persónuafsláttur ef launatímabil er einn mánuður 28.321 kr.
Persónuafsláttur ef launatímabil er hálfur mánuður 14.160 kr.
Persónuafsláttur ef launatímabil er fjórtán dagar 13.035 kr.
Persónuafsláttur ef launatímabil er ein vika 6.517 kr.
Sjómannaafsláttur á dag 768 kr.
Frádráttur frá tekjum
Iðgjald í lífeyrissjóð
Lífeyrissjóðsiðgjald 4,00%
Iðgjald vegna viðbótarlífeyrissparnaðar allt að 4,00%
Ökutækjastyrkur - hámarksfrádráttur

Ökutækjastyrkur er greiðsla launagreiðanda til launþega vegna afnota launþega á eigin bifreið í þágu rekstrar launagreiðanda.

Aldrei leyfist hærri fjárhæð til frádráttar en talin er til tekna sem ökutækjastyrkur.

Almennt kílómetragjald
1. jan. 28. júlí 62,00 kr./km.
29. júlí - 8. sept. 60,00 kr./km.
9. sept - 30. sept. 61,50 kr./km.
1. okt - 31. des. 62,00 kr./km.
Sérstakt gjald

Greitt vegna aksturs á vegum fyrir almenna umferð þar sem ekki er bundið slitlag.

Gera verður fullnægjandi grein fyrir því að forsendur fyrir greiðslu sérstaks gjalds séu uppfylltar.

1. jan.- 28. júlí 71,30 kr./km.
29. júlí - 8. sept. 71,30 kr./km.
9. sept - 30. sept. 70,80 kr./km.
1.okt. - 31. des. 71,30 kr./km.
Torfærugjald

Greitt vegna aksturs utan vega eða á vegaslóðum sem ekki eru færir fólksbílum.

Gera verður fullnægjandi grein fyrir því að forsendur fyrir greiðslu torfærugjalds séu uppfylltar.

1. jan - 28. júlí 89,90 kr./km.
29. júlí - 8. sept. 89,90 kr./km.
9. sept. - 30. sept. 89,20 kr./km.
1. okt. - 31. des. 89,90 kr./km.
Dagpeningar

Dagpeningar eru greiddir vegna tilfallandi ferðalaga launþega á vegum launagreiðanda utan fasts samningsbundins vinnustaðar. Þeim er ætlað að standa undir kostnaði launþegans vegna fjarveru frá heimili sínu, annars vegar vegna gistikostnaðar og hins vegar vegna fæðiskaupa og annars tilfallandi kostnaðar sem af ferðinni hlýst.

Frádráttur á móti dagpeningum er heimill að eftirtöldum skilyrðum uppfylltum:

  1. Dagpeningarnir hafi verið greiddir vegna tilfallandi ferða á vegum launagreiðandans utan venjulegs vinnustaðar og launþeginn greitt gistingu og fæði og annan ferðatengdan kostnað, svo sem fargjöld að og frá flugvöllum.
  2. Gögn um tilefni ferðar og fjölda dvalardaga, fjárhæð ferðapeninga eða dagpeninga, svo og nafn og kennitala launþega, verða að liggja fyrir í bókhaldi launagreiðanda, sem og hjá launþega.
Innanlands
Gisting og fæði í sólarhring
jan.-maí 13.100 kr.
júní-sept. 16.500 kr.
okt.-des. 14.300 kr.
Gisting í eina nótt
jan.-maí 7.500 kr.
júní-sept. 10.800 kr.
okt.-des. 8.300 kr.
Fæði hvern heilan dag (minnst 10 klst. ferðalag)
jan.-maí 5.600 kr.
júní-sept. 5.700 kr.
okt.-des. 6.000 kr.
Fæði hvern hálfan dag (minnst 6 klst. ferðalag)
jan.-maí 2.800 kr.
júní-sept. 2.850 kr.
okt.-des. 3.000 kr.
Erlendis (almennir)

Þegar dagpeningar eru umreiknaðir í íslenskar krónur skal miða við sölugengi eins og það var í lok ferðar.

SDR er gjaldmiðlakarfa ákvörðuð af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Karfan samanstendur af fjórum gjaldmiðlum, bandaríkjadal (USD), bresku pundi (GBP), evru (EUR) og japönsku yeni (JPY). Peningamálasvið Seðlabanka Íslands ákvarðar daglega gengi SDR gagnvart íslensku krónunni.

(Upplýsingar um SDR eru teknar af heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is)

London, New York, Washington DC og Tokyo SDR
Gisting 145
Annað 110
Annars staðar
Gisting 110
Annað 100
Erlendis (v. þjálfunar, náms og eftirlitsstarfa)

Þegar dagpeningar eru umreiknaðir í íslenskar krónur skal miða við sölugengi eins og það var í lok ferðar.

SDR er gjaldmiðlakarfa ákvörðuð af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Karfan samanstendur af fjórum gjaldmiðlum, bandaríkjadal (USD), bresku pundi (GBP), evru (EUR) og japönsku yeni (JPY). Peningamálasvið Seðlabanka Íslands ákvarðar daglega gengi SDR gagnvart íslensku krónunni.

(Upplýsingar um SDR eru teknar af heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is)

London, New York, Washington DC og Tokyo SDR
Gisting 93
Annað 70
Annars staðar
Gisting 70
Annað 64
Hlunnindamat í staðgreiðslu 2005
Bifreiðahlunnindi - full og ótakmörkuð afnot

Fólksbifreið er launagreiðandi lætur starfsmanni sínum í té til fullra og ótakmarkaðra umráða skal meta starfsmanni til tekna óháð notkun hans á bifreið.

Með fólksbifreið er jafnframt átt við skutbifreið, jeppabifreið eða aðra bifreið sem hægt er að hafa sambærileg not af.

Bifreið telst tekin í notkun:

  1. á framleiðsluári ef notuð bifreið er flutt til landsins
  2. á fyrsta skráningardegi samkvæmt skráningu hjá umferðastofu ef ónotuð bifreið er flutt til landsins

Bifreiðahlunnindi í staðgreiðslu reiknast af verðmæti bifreiðar skv. bifreiðaskrá viðkomandi tekjuárs. Sé bifreiðar ekki getið í bifreiðaskrá og ekki unnt að fá upplýsingar um verð hennar annars staðar, skal miða við verð á sambærilegum bifreiðum.

Til viðbótar verði samkvæmt bifreiðaskrá skal koma verð á hvers konar auka- eða sérútbúnaði bifreiðarinnar.

Ef launagreiðandi greiðir rekstrarkostnað:

Greiði launamaður launagreiðanda sínum fyrir afnot og/eða rekstur bifreiðarinnar koma slíkar greiðslur til frádráttar tekjumatinu.

Bifreið tekin í notkun 2003 eða síðar 26%
Bifreið tekin í notkun 2002 eða fyrr 21%
Ef launamaður greiðir rekstrarkostnað:
Bifreið tekin í notkun 2003 eða síðar 20%
Bifreið tekin í notkun 2002 eða fyrr 15%
Bifreiðahlunnindi - takmörkuð afnot

Fólksbifreið er launagreiðandi lætur starfsmanni sínum í té til takmarkaðra afnota skal meta starfsmanni til tekna að svo miklu leyti sem hann notar bifreið í eigin þágu.

Með takmörkuðum afnotum er átt við að launamanni sé eingöngu heimilt að nota bifreið utan vinnutíma til aksturs milli heimilis og vinnustaðar og til einstakra tilfallandi afnota, enda sé hún að öðru leyti notuð í daglegum rekstri launagreiðanda.

Frá 1. janúar 2005 62 kr./km.
Önnur hlunnindi
Einkennisfatnaður

Nái kostnaðarverð fatnaðar ekki framangreindu mati skal miða við kostnaðarverð.

Einkennisyfirhafnir 11.000 kr.
Buxur/pils 4.000 kr.
Jakki/kuldagalli 11.000 kr.
Peysa/skyrta/blússa/vesti 2.000 kr.
Hálsbindi/slæða/belti 1.000 kr.
Skór 6.000 kr.
Morgunverður 250 kr.
Hádegisverður eða kvöldverður 360 kr.
Fullt fæði á dag 970 kr.
Íbúðarhúsnæði og orlofshús Meira
Lán Meira

Einstaklingar

  • Helstu tölur
  • Staðgreiðsla opinberra gjalda
  • Álagning

Einstaklingar í rekstri

  • Staðgreiðsla opinberra gjalda

Lögaðilar

  • Staðgreiðsla opinberra gjalda

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook