Forsíða  > Fagaðilar  > Helstu tölur  > Álagning 2008
Veftré   A- A+

Álagning 2008 vegna tekna ársins 2007

Tekjuskattur
Tekjuskattur 22,75%
Tekjuskattur manna með takmarkaða skattskyldu vegna launa 22,75%

Menn sem koma til Íslands til tímabundinna starfa, þ.e. skemur en 6 mánuði á 12 mánaða tímabili, bera takmarkaða skattskyldu vegna tekna sem þeir afla hér á landi.

Með tekjum er átt við laun, starfstengdar greiðslur, hlunnindi o.s.frv.

Við álagningu er tekið tillit til persónuafsláttar og sjómannaafsláttar hjá þeim sem stunda sjómannsstörf.

Einstaklingar sem búsettir eru á einhverju öðru Norðurlandanna greiða fullan tekjuskatt og útsvar hérlendis vegna eftirlauna eða lífeyrisgreiðslna frá Íslandi. Tekið er tillit til persónuafsláttar á móti slíkum greiðslum. Sama á við um einstaklinga sem búsettir eru í landi sem ekki hefur gert tvísköttunarsamning við Ísland. Að öðru leyti gilda ákvæði tvísköttunarsamninga ef einstaklingur er búsettur í ríki sem gert hefur tvísköttunarsamning við Ísland.

RSK 12.10 - Að starfa á Íslandi tímabundið (242 kb)

Tekjuskattur manna með takmarkaða skattskyldu vegna þjónustu / starfsemi sem innt er af hendi hér á landi og launa manna sem ekki dvelja hér á landi 15,00%

Launatekjur sem skattlagðar eru með 15% tekjuskatti:

Laun eða hliðstæðar greiðslur frá íslenskum aðilum til manna sem ekki dvelja hér á landi.

Greiðslur og þóknanir sem skattlagðar eru með 15% tekjuskatti

  1. Greiðslur eða þóknanir til manna, listamanna eða annarra, sem koma fram í atvinnuskyni til skemmtunar og/eða í hvers konar keppni. Njóti menn afraksturs af starfsemi í stað ákveðinna launa eða þóknunar, skal greiða 10% tekjuskatt af heildartekjum án nokkurs frádráttar.
  2. Greiðslur eða þóknanir til lögaðila vegna listamanna eða annarra sem koma fram í atvinnuskyni til skemmtunar eða í hvers konar keppni.
  3. Greiðslur til sjálfstætt starfandi manna fyrir aðra þjónustu og starfsemi.
  4. Greiðslur til lögaðila fyrir aðra þjónustu og starfsemi.

Nánari upplýsingar um takmarkaða skattskyldu.

Útsvar 11,24-13,03%

Útsvar er greitt til þess sveitarfélags þar sem viðkomandi átti lögheimili 31. desember 2007.

Útsvar manna er bera takmarkaða skattskyldu er greitt til þess sveitarfélags þar sem meirihluta tekna var aflað.

Hlutfall útsvars er mismunandi eftir sveitarfélögum. Hlutfall útsvars í staðgreiðslu er þó það sama á öllu landinu.

Um er að ræða bráðabirgðagreiðslu upp í útsvar í álagningu. Mismunur kann því að vera milli staðgreiðslu og álagningar. Við álagningu er gerð krafa um greiðslu mismunar eða hann endurgreiddur, eftir því sem við á.

Útsvar í staðgreiðslu 2007 12,97%

Útsvarsprósenta við álagningu eftir sveitarfélögum:

Sveitarfélög sem ekki eru á eftirfarandi lista 13,03%

Seltjarnarnes

12,35%
Garðabær 12,46%
Mosfellsbær 12,94%
Reykjanesbær 12,70%
Sandgerðisbær 12,70%

Skorradalshreppur

11,24%
Hvalfjarðarsveit 11,61%
Helgafellssveit 11,24%
Eyja- og Miklaholtshreppur 12,80%
Bæjarhreppur 12,80%
Skagabyggð 12,40%
Húnavatnshreppur 12,20%
Arnarneshreppur 13,00%
Tjörneshreppur 12,85%
Svalbarðshreppur 12,50%
Ásahreppur 11,24%
Rangárþing ytra 12,99%
Grímsnes og Grafningshreppur 12,74%
Tekjuskattur barna af tekjum umfram 100.745 kr. 4,00%

Með börnum er átt við einstaklinga yngri en 16 ára á árinu 2007. Miðað er við almanaksár (börn fædd 1992 eða síðar).

Börn fá ekki persónuafslátt.

Útsvar barna af tekjum umfram 100.745 kr. 2,00%

Með börnum er átt við einstaklinga yngri en 16 ára á árinu 2007. Miðað er við almanaksár (börn fædd 1992 eða síðar).

Fjármagnstekjuskattur 10,00%

Stofn til útreiknings skatts á fjármagnstekjur er m.a. vaxtatekjur, verðbætur, afföll, gengishagnaður, arður af hlutabréfum, leigutekjur og skattskyldur söluhagnaður.

Hvorki er lagt á útsvar né önnur gjöld á fjármagnstekjur.

Frá reiknuðum skatti á fjármagnstekjur dragast 10/38 af þeim persónuafslætti sem ekki hefur verið nýttur með öðrum hætti.

Nánari upplýsingar um fjármagnstekjuskatt.

Gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra 7.103 kr.

Gjaldið er lagt á alla einstaklinga á aldrinum 16-69 ára í lok árs 2007 (fædd 1938 og síðar) sem eru með tekjuskattsstofn umfram kr. 1.080.067 á árinu 2007.

Elli- og örorkulífeyrisþegar sem eru vistmenn á dvalar- og hjúkrunarheimilum eru undanþegnir gjaldinu.

Persónuafsláttur og sjómannaafsláttur
Persónuafsláttur á ári 385.800 kr.

Hjá hjónum færist allur óráðstafaður persónuafsláttur til maka og kemur til lækkunar á reiknuðum tekjuskatti eða gengur til greiðslu á útsvari. Sama gildir um sambúðarfólk sem hefur heimild til samsköttunar og skilar sameiginlegu skattframtali.

Börn yngri en 16 ára á tekjuárinu 2007 njóta ekki persónuafsláttar. Miðað er við almanaksár (börn fædd 1992 eða síðar).

Eftirlifandi maki getur nýtt persónuafslátt hins látna í níu mánuði eftir andlát, að andlátsmánuðinum meðtöldum.

Persónuafsláttur reiknast eingöngu þann tíma sem einstaklingur er heimilisfastur hérlendis.

Nánari upplýsingar um persónuafslátt.

Sjómannaafsláttur á dag 834 kr.

Sjómannaafsláttur sem ekki nýtist á móti tekjuskatti fellur niður.

Nánari upplýsingar um sjómannaafslátt.

Frádráttur frá tekjum
Iðgjald í lífeyrissjóð
Lífeyrissjóðsiðgjald 4,00%
Iðgjald vegna viðbótarlífeyrissparnaðar allt að 4,00%
Ökutækjastyrkur - hámarksfrádráttur

Ökutækjastyrkur eru greiðslur launagreiðanda til launþega vegna afnota launþega á eigin bifreið í þágu rekstrar launagreiðanda.

Aldrei leyfist hærri fjárhæð til frádráttar en talin er til tekna sem ökutækjastyrkur.

Almennt kílómetragjald
Sundurliðun eftir tímabilum á tekjuárinu 2007:
jan. - maí 68,00 kr./km.
júní - sept. 69,50 kr./km.
okt - des. 71,50 kr./km.
Sérstakt gjald

Greitt vegna aksturs á vegum fyrir almenna umferð þar sem ekki er bundið slitlag.

Gera verður fullnægjandi grein fyrir því að forsendur fyrir greiðslu sérstaks gjalds séu uppfylltar.

Sundurliðun eftir tímabilum á tekjuárinu 2007:
jan. - maí 78,20 kr./km.
júní - sept. 79,90 kr./km.
okt. - des 82,20 kr./km.
Torfærugjald

Greitt vegna aksturs utan vega eða á vegaslóðum sem ekki eru færir fólksbílum.

Gera verður fullnægjandi grein fyrir því að forsendur fyrir greiðslu torfærugjalds séu uppfylltar.

Sundurliðun eftir tímabilum á tekjuárinu 2007:
jan. - maí 98,60 kr./km.
júní - sept. 100,80 kr./km.
okt - des. 103,70 kr./km.
Dagpeningar

Dagpeningar eru greiddir vegna tilfallandi ferðalaga launþega á vegum launagreiðanda utan fasts samningsbundins vinnustaðar. Þeim er ætlað að standa undir kostnaði launþegans vegna fjarveru frá heimili sínu, annars vegar vegna gistikostnaðar og hins vegar vegna fæðiskaupa og annars tilfallandi kostnaðar sem af ferðinni hlýst.

Frádráttur á móti dagpeningum er heimill að eftirtöldum skilyrðum uppfylltum:

  1. Dagpeningarnir hafi verið greiddir vegna tilfallandi ferða á vegum launagreiðandans utan venjulegs vinnustaðar og launþeginn greitt gistingu og fæði og annan ferðatengdan kostnað, svo sem fargjöld að og frá flugvöllum.
  2. Gögn um tilefni ferðar og fjölda dvalardaga, fjárhæð ferðapeninga eða dagpeninga, svo og nafn og kennitala launþega, verða að liggja fyrir í bókhaldi launagreiðanda, sem og hjá launþega.

Nánari upplýsingar um dagpeninga.

Innanlands
Gisting og fæði í sólarhring
jan.-maí 15.100 kr.
júní-sept. 17.700 kr.
okt.-des. 15.300 kr.
Gisting í eina nótt
jan.-maí 8.700 kr.
júní-sept. 11.700 kr.
okt.-des. 9.300 kr.
Fæði hvern heilan dag (minnst 10 klst. ferðalag)
jan.-maí 6.400 kr.
júní-sept. 6.000 kr.
okt.-des. 6.000 kr.
Fæði hvern hálfan dag (minnst 6 klst. ferðalag)
jan.-maí 3.200 kr.
júní-sept. 3.000 kr.
okt.-des. 3.000 kr.
Erlendis (almennir).

Þegar dagpeningar eru umreiknaðir í íslenskar krónur skal miða við sölugengi eins og það var í lok ferðar.

SDR er gjaldmiðlakarfa ákvörðuð af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Karfan samanstendur af fjórum gjaldmiðlum, bandaríkjadal (USD), bresku pund (GBP), evru (EUR) og japönsku yeni (JPY). Peningamálasvið Seðlabanka Íslands ákvarðar daglega gengi SDR gagnvart íslensku krónunni.

(Upplýsingar um SDR eru teknar af heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is)

Frá jan. - maí.
Mexikóborg, New York, Washington DC og Tókýó SDR
Gisting 170
Annað 113
Aþena, Dublin, Hong Kong, Istanbúl, London, Lúxemborg, Moskva, Seúl og Singapor.
Gisting 149
Annað 100
Amsterdam, Barselóna, Brussel, Genf, Kaupmannahöfn, Osló, París og Stokkhólmur.
Gisting 136
Annað 90
Annars staðar
Gisting 117
Annað 78
Frá jún. - des.
Moskva, New York borg, Washington DC og Tókýó SDR
Gisting 189
Annað 126
Aþena, Dublin, Istanbúl, Japan(nema Tókýó), London, Lúxemborg, Mexíkóborg, Seúl og Singapor.
Gisting 161
Annað 107
Amsterdam, Bandaríkin (nema New York borg og Washington DC), Barselóna, Brussel, Genf, Hong Kong, Kanada, Kaupmannahöfn, Madrid, Osló, París, Róm og Stokkhólmur.
Gisting 142
Annað 95
Annars staðar
Gisting 126
Annað 84
Erlendis (v. þjálfunar, náms og eftirlitsstarfa).

Þegar dagpeningar eru umreiknaðir í íslenskar krónur skal miða við sölugengi eins og það var í lok ferðar.

SDR er gjaldmiðlakarfa ákvörðuð af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Karfan samanstendur af fjórum gjaldmiðlum, bandaríkjadal (USD), bresku pundi (GBP), evru (EUR) og japönsku yeni (JPY). Peningamálasvið Seðlabanka Íslands ákvarðar daglega gengi SDR gagnvart íslensku krónunni.

(Upplýsingar um SDR eru teknar af heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is)

Frá jan. - maí.
Mexikóborg, New York, Washington DC og Tókýó SDR
Gisting 109
Annað 72
Aþena, Dublin, Hong Kong, Istanbúl, London, Lúxemborg, Moskva, Seúl og Singapor.
Gisting 96
Annað 64
Amsterdam, Barselóna, Brussel, Genf, Kaupmannahöfn, Osló, París og Stokkhólmur.
Gisting 87
Annað 58
Annars staðar
Gisting 75
Annað 50
Frá jún. - des.
Moskva, New York borg, Washington DC og Tókýó SDR
Gisting 121
Annað 81
Aþena, Dublin, Istanbúl, Japan(nema Tókýó), London, Lúxemborg, Mexíkóborg, Seúl og Singapor.
Gisting 103
Annað 68
Amsterdam, Bandaríkin (nema New York borg og Washington DC), Barselóna, Brussel, Genf, Hong Kong, Kanada, Kaupmannahöfn, Madrid, Osló, París, Róm og Stokkhólmur.
Gisting 91
Annað 61
Annars staðar
Gisting 81
Annað 54
Hlunnindamat
Bifreiðahlunnindi - full og ótakmörkuð afnot

Fólksbifreið er launagreiðandi lætur starfsmanni sínum í té til fullra og ótakmarkaðra umráða skal meta starfsmanni til tekna óháð notkun hans á bifreiðinni.

Með fólksbifreið er jafnframt átt við skutbifreið, jeppabifreið eða aðra bifreið sem hægt er að hafa sambærileg not af.

Bifreið telst tekin í notkun:

  1. á framleiðsluári ef notuð bifreið er flutt til landsins
  2. á fyrsta skráningardegi samkvæmt skráningu hjá umferðastofu ef ónotuð bifreið er flutt til landsins

Bifreiðahlunnindi í staðgreiðslu reiknast af verðmæti bifreiðar skv. bifreiðaskrá 2007 að teknu tilliti til verðbreytingastuðuls. Sé bifreið ekki getið í bifreiðaskrá og ekki er unnt að fá upplýsingar um verð hennar annars staðar, skal miða við verð á sambærilegum bifreiðum.

Verð á hvers konar auka- eða sérútbúnaði bifreiðar kemur EKKI til viðbótar verði bifreiðar.

Ef launagreiðandi greiðir rekstrarkostnað:

Greiði launamaður launagreiðanda sínum fyrir afnot og/eða rekstur bifreiðarinnar koma slíkar greiðslur til frádráttar tekjumatinu.

Bifreið tekin í notkun 2005 -2007 26%
Bifreið tekin í notkun 2002 - 2004 21%
Bifreið tekin í notkun 2001 eða fyrr 18%
Ef launamaður greiðir rekstrarkostnað:
Bifreið tekin í notkun 2005 -2007 20%
Bifreið tekin í notkun 2002 - 2004 15%
Bifreið tekin í notkun 2001 eða fyrr 12%
Bifreiðahlunnindi - takmörkuð afnot

Fólksbifreið er launagreiðandi lætur starfsmanni sínum í té til takmarkaðra afnota skal meta starfsmanni til tekna að svo miklu leyti sem hann notar bifreið í eigin þágu.

Með takmörkuðum afnotum er átt við að launamanni sé eingöngu heimilt að nota bifreið utan vinnutíma til aksturs milli heimilis og vinnustaðar og til einstakra tilfallandi afnota, enda sé hún að öðru leyti notuð í daglegum rekstri launagreiðanda.

Frá 1. janúar 2007 68 kr./km.
Önnur hlunnindi
Einkennisfatnaður 25.000 kr.

Nái kostnaðarverð fatnaðar ekki neðangreindu mati skal miða við kostnaðarverð.

Kveði lög eða stjórnvaldsfyrirmæli á um að launþegi skuli klæðast ákveðnum einkennisfatnaði við störf sín, eru slík afnot ekki metin til tekna. (Regla tók gildi á staðgreiðsluári 2006).

Morgunverður 250 kr.
Hádegisverður eða kvöldverður 365 kr.
Fullt fæði á dag 980 kr.
Íbúðarhúsnæði og orlofshús Meira
Lán Meira
Vaxtabætur og barnabætur
Vaxtabætur Reiknivél

Vaxtabætur greiðast eingöngu til þeirra sem bera fulla og ótakmarkaða skattskyldu hérlendis.

Ótakmörkuð skattskylda hvílir á þeim sem heimilisfastir/búsettir eru hér á landi og þeim er dvelja hér á landi lengur en samtals 183 daga á sérhverju 12 mánaða tímabili.

Vaxtabætur vegna þess árs þegar maður aflar sér íbúðarhúsnæðis og hefur ekki fengið greiddar vaxtabætur árið áður reiknast frá og með þeim ársfjórðungi sem fyrsta fasteignaveðlán vegna kaupanna er tekið. Skal hámark vaxtagjalda, tekjuskattsstofn og hámark vaxtabóta þá ákveðið hlutfallslega miðað við það.

Heimilt er að greiða ársfjórðungslega fyrirfram áætlaðar vaxtabætur til þeirra sem festa kaup á íbúðarhúsnæði til eigin nota. Sækja verður um fyrirframgreiðsluna til skattstjóra. Við álagningu að tekjuári liðnu fer fram endanleg ákvörðun á vaxtabótum fyrir tekjuárið.

Frestur til að sækja um fyrirframgreiðslu vaxtabóta er í einn mánuð eftir að ársfjórðungi lýkur.

  • Vegna 1. ársfjórðungs (jan., feb., mars) er frestur til 30. apríl
  • Vegna 2. ársfjórðungs (apr., maí, júní) er frestur til 31. júlí
  • Vegna 3. ársfjórðungs (júlí, ág., sept.) er frestur til 31. október
  • Vegna 4. ársfjórðungs (okt., nóv., des.) er frestur til 31. janúar

Fyrirframgreiðsla vaxtabóta er greidd ársfjórðungslega, fjórum mánuðum eftir lok hvers ársfjórðungs.

  • Vaxtabætur fyrir 1. ársfjórðung eru greiddar 1. ágúst
  • Vaxtabætur fyrir 2. ársfjórðun eru greiddar 1. nóvember
  • Vaxtabætur fyrir 3. ársfjórðun eru greiddar 1. febrúar
  • Vaxtabætur fyrir 4. ársfjórðun eru greiddar 1. maí

Vaxtabætur eru bæði tekju- og eignatengdar.

Áhrif tekna og eigna á vaxtabætur:

Stofn til útreiknings:

Vaxtagjöld til útreiknings vaxtabóta er sú fjárhæð sem lægst er af 1), 2) og 3).

  1. Vaxtagjöld skv. reit 87 og/eða 166 á framtali
  2. 5% af eftirstöðvum skulda skv. reit 41, 45 eða 167
  3. Hámark vaxtagjalda, sem er:
Hjá einstaklingi 524.469 kr.
Hjá einstæðu foreldri 688.517 kr.
Hjá hjónum/sambúðarfólki 852.562 kr.

Tekjutenging

Frá vaxtagjöldum skv. framansögðu dragast 6% af tekjustofni og er mismunurinn vaxtabætur, nema ef mismunurinn er hærri en hámark vaxtabóta og/eða ef kemur til skerðingar vegna eigna.

Tekjustofn til útreiknings vaxtabóta er frábrugðinn tekjuskattsstofni að því leyti að fjármagnstekjur eru meðtaldar og laun frá alþjóðastofnunum sem ekki eru skattlögð koma inn í tekjustofn til útreiknings á vaxtabótum.

Eignatenging

Vaxtabætur, eins og þær eru reiknaðar hér að ofan, skerðast ef eignir að frádregnum skuldum fara yfir mörk sem eru:

Hjá einstaklingi/einst. foreldri 5.273.425 kr.
Hjá hjónum/sambúðarfólki 9.157.480 kr.

Réttur til vaxtabóta fellur niður um leið og nettóeign verður:

Hjá einstaklingi/einst. foreldri 8.437.481 kr.
Hjá hjónum/sambúðarfólki 13.499.970 kr.

Nánari upplýsingar um vaxtabætur

Hámark vaxtabóta 2008
Einstaklingur 179.713 kr.
Einstætt foreldri 231.125 kr.
Hjón og sambúðarfólk 297.194 kr.
Barnabætur Reiknivél

Barnabætur greiðast eingöngu til þeirra sem bera fulla og ótakmarkaða skattskyldu hérlendis.

Ótakmörkuð skattskylda hvílir á þeim sem heimilisfastir/búsettir eru hér á landi og þeim er dvelja hér á landi lengur en samtals 183 daga á sérhverju 12 mánaða tímabili.

Barnabætur skiptast í fjórar greiðslur yfir árið. Endanleg ákvörðun barnabóta fer fram við álagningu.

Fyrirframgreiðsla barnabóta upp í álagningu er greidd 1. febrúar og 1. maí. Fyrirframgreiðsla nemur samtals 50% af áætluðum barnabótum ársins. Við ákvörðun á fyrirframgreiðslu er tekið mið af upplýsingum úr staðgreiðsluskrá um launatekjur framfæranda og upplýsingum úr framtali fyrra árs.

Við uppgjör í ágúst er fyrirframgreiðslan dregin frá barnabótum eins og þær eru ákvarðaðar í álagningu. Eftirstöðvar eru greiddar út 1. ágúst og 1. nóvember.

Barnabætur skiptast jafnt á milli hjóna/sambúðarfólks. Miðað er við fjölskyldustöðu í árslok 2007, en breytingar innan ársins hafa ekki áhrif.

Nánari upplýsingar um barnabætur.

Ótekjutengdar barnabætur

Um er að ræða heildargreiðslu fyrir árið sem skiptist jafnt milli hjóna/sambúðarfólks. Miðað er við fjölskyldustöðu í árslok 2007, en breytingar innan ársins hafa ekki áhrif.

Bætur skiptast í fjórar greiðslur yfir árið. (1. febrúar, 1. maí, 1. ágúst og 1. nóvember).

Með hverju barni yngra en sjö ára (fætt 2001 eða síðar) 57.891 kr.
Hámark tekjutengdra barnabóta
Skerðingarmörk - barnabætur skerðast séu tekjur umfram:
Hjón / sambúðarfólk 2.415.492 kr.
Einstæðir foreldrar 1.207.746 kr.

Hjá hjónum/sambúðarfólki reiknast skerðing vegna tekna af samanlögðum tekjustofni.

Skerðingarhlutfall þegar tekjur eru umfram ofangreind skerðingarmörk:
Eitt barn 2,00%
Tvö börn 6,00%
Þrjú eða fleiri börn 8,00%
Dæmi um útreikning:
Hjón með tvö börn, 6 og 8 ára.
Samanlagður tekjustofn 2.500.000 kr.
Skerðingarmörk vegna tekna 2.415.942 kr.
Stofn til skerðingar:
(tekjustofn- skerðingarmörk) 84.058 kr.
x 6%
Skerðing vegna tekna 5.043 kr.
Óskertar barnabætur
(144.116 + 171.545) 315.661 kr.
Skerðing vegna tekna - 5.043 kr.
Viðbót v/barns innan 7 ára 57.891 kr.
Barnabætur verða: 368.509 kr.
Hjón/sambúðarfólk
Með fyrsta barni 144.116 kr.
Með hverju barni umfram eitt 171.545 kr.
Einstæðir foreldrar
Með fyrsta barni 240.034 kr.
Með hverju barni umfram eitt 246.227 kr.

Einstaklingar

  • Helstu tölur
  • Staðgreiðsla opinberra gjalda
  • Álagning

Einstaklingar í rekstri

  • Staðgreiðsla opinberra gjalda

Lögaðilar

  • Staðgreiðsla opinberra gjalda

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook