Forsíða  > Fagaðilar  > Helstu tölur  > Opinber gjöld 2008
Veftré   A- A+

Opinber gjöld 2008

Tekjuskattur
Félög með takmarkaða ábyrgð og samvinnufélög 18,00%
  1. Skráð hlutafélög, einkahlutafélög og samlagshlutafélög.
  2. Gagnkvæm vátryggingar- og ábyrgðarfélög, kaupfélög, önnur samvinnufélög og samvinnufélagasambönd.
  3. Samlög og samtök sem hafa það að meginmarkmiði að annast vinnslu eða sölu á framleiðsluvörum félagsaðila sinna, innkaup á rekstrarvörum eða þjónustu í beinum tengslum við atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi þeirra. Skilyrði er að þau séu skráð í firmaskrá hér á landi og að við skráningu sé þess getið að þau séu sjálfstæðir skattaðilar.
  4. Önnur félög, sjóðir og stofnanir, þar með taldar sjálfseignarstofnanir sem eiga hér heimili og hafa með höndum atvinnustarfsemi, svo og dánarbú og þrotabú.
Alþjóðleg viðskiptafélög 5,00%
Aðrir skattskyldir lögaðilar 26,00%

Sameignar- og samlagsfélög sem eru sjálfstæðir skattaðilar greiða 10% tekjuskatt af fengnum arði.

Ýmsir óskattskyldir lögaðilar af tilteknum fjármagnstekjum 10,00%

Þeir lögaðilar sem undanþegnir eru skattskyldu en ber að greiða tekjuskatt af tilteknum fjármagnstekjum eru:

  1. Ríkissjóður, ríkisstofnanir og ríkisfyrirtæki sem ríkissjóður rekur og ber ótakmarkaða ábyrgð á svo og Fiskifélag Íslands.
  2. Sýslu- og sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir sem þau reka og bera ótakmarkaða ábyrgð á.
  3. Lögaðilar er verja hagnaði sínum einungis til almenningsheilla og hafa það að einasta markmiði samkvæmt samþykktum sínum.
  4. Félög, sjóðir og stofnanir, sbr. 5. tölul. 2. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sem ekki reka atvinnu.
  5. Aðilar sem undanþegnir eru skattskyldu með sérlögum.

Fjármagnstekjur sem framangreindir lögaðilar greiða skatt af:

  1. Vextir, verðbætur, afföll og gengishagnaður.
  2. Arður af hlutum og hlutabréfum.
  3. Greiðslur úr gagnkvæmum vátryggingar- og ábyrgðarfélögum, kaupfélögum, öðrum samvinnufélögum og samvinnufélagasamböndum.
  4. Söluhagnaður af hlutabréfum.

Óskattskyldir lögaðilar sem sérstaklega eru undanþegnir skattlagningu fjármagnstekna:

Lánasjóður íslenskra námsmanna, Byggðastofnun, Íbúðalánasjóður, Framkvæmdasjóður fatlaðra, Framkvæmdasjóður aldraðra, Framleiðnisjóður landbúnaðarins, Lánasjóður sveitarfélaga, Lánasjóður Vestur-Norðurlanda, Seðlabanki Íslands, Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, Þróunarsjóður sjávarútvegsins og lífeyrissjóðir sem eiga undir lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

Fjármagnstekjur lánastofnana sem skattskyldar eru samkvæmt lögum um skattskyldu lánastofnana falla undir almenna skattskyldu.

Fyrirframgreiðsla tekjuskatts 2008 8,50%

Fyrirframgreiðslan er innheimt í febrúar - september 2008.

Fyrirframgreiðslan nemur 8,5% af tekjuskatti ársins 2007 á hverjum gjalddaga. Samtals nemur fyrirframgreiðslan því 68% af álögðum tekjuskatti 2007.

Virðisaukaskattur og aðrir skattar
Virðisaukaskattur

Virðisaukaskattur er greiddur af viðskiptum innanlands á öllum stigum, svo og af innflutningi vöru og þjónustu.

Meginreglan er sú að uppgjörstímabil taki til tveggja mánaða.

Gjalddagi er einum mánuði og fimm dögum eftir lok hvers uppgjörstímabils, t.d. er 5. apríl gjalddagi vegna tímabilsins janúar-febrúar.

Létt hefur verið á leiðréttingarskyldu innan ársins og miðast hún við kr. 3.000.000 enda þótt veltumark ársskila miðist við kr. 1.400.000. Þó svo velta aðila sé undir kr. 1.400.000 skal hann ekki færast í ársskil ef reiknað endurgjald eða meðallaun sem greidd hafa verið samkvæmt skilagreinum staðgreiðslu eru kr. 100.000 eða hærri á mánuði.

Beri gjalddaga upp á helgidag eða almennan frídag færist gjalddagi á næsta virkan dag á eftir.

Eftirtalin vinna og þjónusta er undanþegin virðisaukaskatti:

  1. Heilbrigðisþjónusta
  2. Félagsleg þjónusta
  3. Rekstur skóla og menntastofnana
  4. Menningarstarfsemi
  5. Íþróttastarfsemi
  6. Fólksflutningar
  7. Póstþjónusta
  8. Fasteignaleiga
  9. Vátryggingarstarfsemi
  10. Banka- og lánastarfsemi
  11. Happdrætti og getraunastarfsemi
  12. Liststarfsemi
  13. Þjónusta ferðaskrifstofa
  14. Útfarar- og prestþjónusta

Aðilar með lítinn rekstur eru ekki virðisaukaskattsskyldir (skráningarskyldir) samkvæmt lögum um virðisaukaskatt. Þeir eiga þó kost á að skrá sig á virðisaukaskattsskrá. Kjósi aðili með lítinn rekstur að standa utan virðisaukaskattsskrár innheimtir hann ekki virðisaukaskatt (útskatt) af sölu og getur ekki nýtt sér innskattsfrádrátt af aðföngum til starfseminnar.

Aðilar með lítinn rekstur:

Þeir sem selja skattskylda vöru eða þjónustu fyrir minna en kr. 500.000 á hverju 12 mánaða tímabili eru undanþegnir skattskyldu.

Þeir sem hafa verið skráðir á virðisaukaskattsskrá falla ekki sjálfkrafa af skrá þó velta verði á einhverju 12 mánaða tímabili undir lágmarki. Beina skal beiðni um afskráningu til skattstjóra.

Nánari upplýsingar um virðisaukaskatt.

Almennt skattþrep 24,50%
Athuga ber að 14% þrepið var í gildi til 28. febrúar 2007.
Lægra skattþrep (gildir frá og með 1. mars 2007) 7,00%

Vörur og þjónusta í lægra skattþrepi eru eftirfarandi:

  1. Útleigu hótel- og gistiherbergja og annarri gistiþjónustu.
  2. Afnotagjöldum hljóðvarps- og sjónvarpsstöðva.
  3. Sölu tímarita, dagblaða og landsmála- og héraðsfréttablaða.
  4. Sölu bóka, jafnt frumsaminna sem þýddra, sem og hljóðupptökur af lestri slíkra bóka.
  5. Sölu á heitu vatni, rafmagni og olíu til hitunar húsa og laugarvatns.
  6. Sölu á matvælum og öðrum vörum til manneldis sem skilgreindar eru í viðauka við lög um virðis auka skatt.
  7. Aðgangi að vegamannvirkjum, s.s. gjaldtöku vegna aðgangs að Hvalfjarðargöngum.
  8. Geisladiskar, hljómplötur, segulbönd og aðrir sambærilegir miðlar með tónlist en ekki mynd.
Aðrir skattar
Iðnaðarmálagjald Meira
Álagning 2008 0,08%

Gjaldið leggst á iðnað í landinu, sem fellur undir þau atvinnugreinanúmer (ÍSAT 95), sem talin eru upp í viðauka við lög um iðnaðarmálagjald.

Til gjaldskyldrar veltu telst skattskyld velta sem og velta sem undanþegin er virðisaukaskatti. (11. og 12. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt)

Gjald er lagt á samhliða álagningu opinberra gjalda.

Fyrirframgreiðsla 8,50%

Fyrirframgreiðslan er innheimt í febrúar - september 2008.

Fyrirframgreiðslan nemur 8,5% af álögðu iðnaðarmálagjaldi 2007 á hverjum gjalddaga. Samtals nemur fyrirframgreiðslan því 68% af iðnaðarmálagjaldi ársins 2007.

Búnaðargjald Meira
Álagning 2008 1,20%

Gjaldskyldir aðilar eru virðisaukaskattskyldir búvöruframleiðendur sem falla undir atvinnugreinanúmer 01 (landbúnaður) og 02 (skógrækt) í atvinnuvegaflokkun Hagstofu Íslands (ÍSAT 95), þó ekki starfsemi í undirflokkum 01.4 (þjónusta við jarðyrkju og búfjárrækt), 01.5 (dýraveiðar og tengd þjónusta) og 02.02 (þjónusta tengd skógrækt).

Gjaldstofn er velta búvöru og tengdrar þjónustu hjá gjaldskyldum búvöruframleiðendum.

Til gjaldskyldrar veltu telst skattskyld og undanþegin velta að frádregnu andvirði seldra varanlegra rekstrarfjármuna. (11.-13. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt)

Gjaldið er lagt á samhliða álagningu opinberra gjalda 2008.

Fyrirframgreiðsla upp í væntanlega álagningu 2009 1,20%

Fyrirframgreiðslan er innheimt í ágúst - desember 2008.

Fyrirframgreiðslan nemur samtals 1,2% af búnaðargjaldsstofni 2007.

Jöfnunargjald alþjónustu Meira
Álagning 2008 0,12%

Gjaldið er lagt á fjarskiptafyrirtæki sem starfrækja fjarskiptanet eða þjónustu.

Gjaldstofn er bókfærð velta.

Með bókfærðri veltu er átt við rekstrartekjur sem fjarskiptafyrirtæki hefur af umræddri starfsemi hér á landi.

Fyrirframgreiðsla 8,50%

Fyrirframgreiðslan er innheimt í febrúar - september 2008.

Fyrirframgreiðslan nemur 8,5% af álögðu jöfnunargjaldi alþjónustu 2007 á hverjum gjalddaga. Samtals nemur fyrirframgreiðslan því 68% af jöfnunargjaldi alþjónustu ársins 2007.

Launatengd gjöld
Tryggingagjald

Gjaldskyldir eru þeir sem greiða laun.

Stofn til tryggingagjalds er allar tegundir launa eða þóknana fyrir starf, hverju nafni sem nefnist, þ.m.t. framlag launagreiðanda í lífeyrissjóð, ökutækjastyrkir og dagpeningar umfram skattmat skattyfirvalda.

Tryggingagjald er samsett úr atvinnutryggingagjaldi og almennu tryggingagjaldi.

Nánari upplýsingar um tryggingagjald.

Almennt
Álagning 2008 vegna tekjuárs 2007 5,190%

Tryggingagjald skiptist í:

Atvinnutryggingagjald 0,650%
Almennt tryggingagjald 4,540%
Staðgreiðsla 2008 5,190%

Tryggingagjald skiptist í:

Atvinnutryggingagjald 0,650%
Almennt tryggingagjald 4,540%

Þegar samanlagður gjaldstofn er innan við kr. 504.000 á árinu, er heimilt að senda skilagrein ásamt greiðslu einu sinni á ári eins og um uppgjör fyrir desember væri að ræða. Gjalddagi greiðslu er þá 1. janúar 2009 vegna tekjuársins 2008 og eindagi 14 dögum síðar.

Launþegar með E-101

Um er að ræða erlenda aðila sem heimilisfastir eru innan EES eða ESB er framvísa E-101 vottorði.

Álagning 2008 vegna tekjuárs 2007 0,008%

Launþegar með E-101 greiða eingöngu almenna tryggingagjaldið.

Staðgreiðsla 2008 0,158%

Launþegar með E-101 greiða eingöngu almenna tryggingagjaldið.

Markaðsgjald

Gjaldskyldir eru þeir sem greiða laun.

Markaðsgjald er lagt á gjaldstofn til greiðslu tryggingagjalds.

Gjaldstofn er allar tegundir launa eða þóknana fyrir starf, hverju nafni sem nefnist, þ.m.t. framlag launagreiðanda í lífeyrissjóð, ökutækjastyrkir og dagpeningar umfram skattmat skattyfirvalda.

Nánari upplýsingar um markaðsgjald.

Almennt
Álagning 2008 vegna tekjuárs 2007 0,050%
Staðgreiðsla 2008 0,050%
Launþegar með E-101
Álagning 2008 vegna tekjuárs 2007 0,050%
Staðgreiðsla 2008 0,050%
Gjald í Ábyrgðasjóð launa

Gjaldskyldir eru þeir sem greiða laun.

Ákvæði laga um tryggingagjald eiga við um gjaldstofn, gjaldskyldu, greiðslutímabil, álagningu og innheimtu gjalds í ábyrgðasjóð launa.

Gjaldstofn er allar tegundir launa eða þóknana fyrir starf, hverju nafni sem nefnist, þ.m.t. framlag launagreiðanda í lífeyrissjóð, ökutækjastyrkir og dagpeningar umfram skattmat skattyfirvalda.

Almennt
Álagning 2008 vegna tekjuárs 2007 0,100%
Staðgreiðsla 2008 0,100%
Launþegar með E-101
Álagning 2008 vegna tekjuárs 2007 0,100%
Staðgreiðsla 2008 0,100%
Sérstök viðbót vegna sjómanna
Álagning 2008 vegna tekjuárs 2007 0,650%
Staðgreiðsla 2008 0,650%
Samtals tryggingagjald og önnur launatengd gjöld
Almennt
Álagning 2008 vegna tekjuárs 2007 5,340%
Staðgreiðsla 2008 5,340%
Sjómenn
Álagning 2008 vegna tekjuárs 2007 5,990%
Staðgreiðsla 2008 5,990%
Launþegar með E-101
Álagning 2008 vegna tekjuárs 2007 0,158%
Staðgreiðsla 2008 0,308%
Mótframlag atvinnurekanda í lífeyrissjóð
Mótframlag 8,00%

Sé í gildi kjarasamningur sem kveður á um að lágmarksiðgjald til lífeyrissjóðs skuli vera 10% (greiðsla launþega + mótframlag atvinnurekanda) þá er heimilt að miða mótframlag atvinnurekanda við 6%.

Mótframlag atvinnurekanda vegna viðbótarlífeyrissparnaðar að lágmarki 2,00%
Fyrningar og niðurfærsla eigna
Lausafé
Skip, skipsbúnaður og fólksbifreiðar 10 - 20%
Loftför og fylgihlutir 10 - 20%
Verksmiðjuvélar, iðnaðarvélar og tæki 10 - 30%
Skrifstofuáhöld og tæki 20 - 35%
Aðrar vélar, tæki og bifreiðar 20 - 35%

Aðrar fyrnanlegar eignir
Íbúðar-, skrifstofu- og verslunarhúsnæði 1 - 3%
Verksmiðju- og verkstæðishúsnæði, vörugeymslur o.fl. 3 - 6%
Gróðurhús og bryggjur 6 - 8%
Borholur, raflínur og óvaranlegar vinnubúðir 7,5 - 10%
Keyptur eignarréttur að hugverkum og auðkennum 15 - 20%
Keypt viðskiptavild 10 - 20%

Einstaklingar

  • Helstu tölur
  • Staðgreiðsla opinberra gjalda
  • Álagning

Einstaklingar í rekstri

  • Staðgreiðsla opinberra gjalda

Lögaðilar

  • Staðgreiðsla opinberra gjalda

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook