Forsíða  > Fagaðilar  > Helstu tölur  > Helstu tölur lögaðila 2011
Veftré   A- A+

Opinber gjöld 2011

Tekjuskattur
Félög með takmarkaða ábyrgð og samvinnufélög 20,00%
  1. Skráð hlutafélög, einkahlutafélög og samlagshlutafélög.
  2. Gagnkvæm vátryggingar- og ábyrgðarfélög, kaupfélög, önnur samvinnufélög og samvinnufélagasambönd.
  3. Samlög og samtök sem hafa það að meginmarkmiði að annast vinnslu eða sölu á framleiðsluvörum félagsaðila sinna, innkaup á rekstrarvörum eða þjónustu í beinum tengslum við atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi þeirra. Skilyrði er að þau séu skráð í firmaskrá hér á landi og að við skráningu sé þess getið að þau séu sjálfstæðir skattaðilar.
  4. Önnur félög, sjóðir og stofnanir, þar með taldar sjálfseignarstofnanir sem eiga hér heimili og hafa með höndum atvinnustarfsemi, svo og dánarbú og þrotabú.
Aðrir skattskyldir lögaðilar 36,00%

Sameignar- og samlagsfélög sem eru sjálfstæðir skattaðilar greiða 20% tekjuskatt af fengnum arði.

Ýmsir óskattskyldir lögaðilar af tilteknum fjármagnstekjum 20,00%

Þeir lögaðilar sem undanþegnir eru skattskyldu en ber að greiða tekjuskatt af tilteknum fjármagnstekjum eru:

  1. Ríkissjóður, ríkisstofnanir og ríkisfyrirtæki sem ríkissjóður rekur og ber ótakmarkaða ábyrgð á svo og Fiskifélag Íslands.
  2. Sýslu- og sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir sem þau reka og bera ótakmarkaða ábyrgð á.
  3. Lögaðilar er verja hagnaði sínum einungis til almenningsheilla og hafa það að einasta markmiði samkvæmt samþykktum sínum.
  4. Félög, sjóðir og stofnanir, sbr. 5. tölul. 2. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sem ekki reka atvinnu.
  5. Lífeyrissjóðir sem starfa skv. III. kafla laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og starfstengdir eftirlaunasjóðir sem hafa heimild til að taka á móti iðgjöldum til myndunar eftirlaunaréttar.
  6. Aðilar sem undanþegnir eru skattskyldu með sérlögum.

Fjármagnstekjur sem framangreindir lögaðilar greiða skatt af:

  1. Vextir, verðbætur, afföll og gengishagnaður.
  2. Arður af hlutum og hlutabréfum.
  3. Fé sem gagnkvæm vátryggingar- og ábyrgðarfélög, kaupfélög, önnur samvinnufélög og samvinnufélagasambönd færa félagsaðilum sínum til séreignar í stofnsjóði vegna viðskipta þeirra.
  4. Söluhagnaður af hlutabréfum.

Óskattskyldir lögaðilar sem sérstaklega eru undanþegnir skattlagningu fjármagnstekna:

Lánasjóður íslenskra námsmanna, Byggðastofnun, Íbúðalánasjóður, Framkvæmdasjóður fatlaðra, Framkvæmdasjóður aldraðra, Framleiðnisjóður landbúnaðarins, Lánasjóður sveitarfélaga ohf., Lánasjóður Vestur-Norðurlanda, Seðlabanki Íslands, Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, Fiskiræktarsjóður og lífeyrissjóðir sem eiga undir lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og starfstengdir eftirlaunasjóðir sem hafa heimild til að taka á móti iðgjöldum til myndunar eftirlaunaréttar.

Fjármagnstekjur lánastofnana sem skattskyldar eru samkvæmt lögum um skattskyldu lánastofnana falla undir almenna skattskyldu.

Fyrirframgreiðsla tekjuskatts 2011 8,50%

Fyrirframgreiðslan er innheimt í febrúar - september 2011.

Fyrirframgreiðslan nemur 8,5% af tekjuskatti ársins 2010 á hverjum gjalddaga. Samtals nemur fyrirframgreiðslan því 68% af álögðum tekjuskatti 2010.

Virðisaukaskattur og aðrir skattar
Virðisaukaskattur

Virðisaukaskattur er greiddur af viðskiptum innanlands á öllum stigum, svo og af innflutningi vöru og þjónustu.

Meginreglan er sú að uppgjörstímabil taki til tveggja mánaða.

Gjalddagi er einum mánuði og fimm dögum eftir lok hvers uppgjörstímabils, t.d. er 5. apríl gjalddagi vegna tímabilsins janúar-febrúar.

Veltumark ársskila miðast við kr. 1.400.000, þó miðast leiðréttingarskylda innan ársins við kr. 3.000.000. Þó svo velta aðila sé undir kr. 1.400.000 skal hann ekki færast í ársskil ef reiknað endurgjald eða meðallaun sem greidd hafa verið samkvæmt skilagreinum staðgreiðslu eru kr. 100.000 eða hærri á mánuði.

Beri gjalddaga upp á helgidag eða almennan frídag færist gjalddagi á næsta virkan dag á eftir.

Eftirtalin vinna og þjónusta er undanþegin virðisaukaskatti:

  1. Heilbrigðisþjónusta
  2. Félagsleg þjónusta
  3. Rekstur skóla og menntastofnana
  4. Menningarstarfsemi
  5. Íþróttastarfsemi
  6. Fólksflutningar
  7. Póstþjónusta
  8. Fasteignaleiga
  9. Vátryggingarstarfsemi
  10. Banka- og lánastarfsemi
  11. Happdrætti og getraunastarfsemi
  12. Liststarfsemi
  13. Þjónusta ferðaskrifstofa
  14. Útfarar- og prestþjónusta

Aðilar með lítinn rekstur eru ekki virðisaukaskattsskyldir (skráningarskyldir) samkvæmt lögum um virðisaukaskatt. Þeir eiga þó kost á að skrá sig á virðisaukaskattsskrá. Kjósi aðili með lítinn rekstur að standa utan virðisaukaskattsskrár innheimtir hann ekki virðisaukaskatt (útskatt) af sölu og getur ekki nýtt sér innskattsfrádrátt af aðföngum til starfseminnar.

Aðilar með lítinn rekstur:

Þeir sem selja skattskylda vöru eða þjónustu fyrir minna en kr. 1.000.000 á hverju 12 mánaða tímabili eru undanþegnir skattskyldu.

Þeir sem hafa verið skráðir á virðisaukaskattsskrá falla ekki sjálfkrafa af skrá þó velta verði á einhverju 12 mánaða tímabili undir lágmarki. Beina skal beiðni um afskráningu til ríkisskattstjóra.

Nánari upplýsingar um virðisaukaskatt.

Almennt skattþrep 25,50%
Lægra skattþrep 7,00%

Vörur og þjónusta í lægra skattþrepi eru eftirfarandi:

  1. Útleiga hótel- og gistiherbergja og önnur gistiþjónusta.
  2. Afnotagjald útvarpsstöðva.
  3. Sala tímarita, dagblaða og landsmála- og héraðsfréttablaða.
  4. Sala bóka, jafnt frumsaminna sem þýddra, sem og hljóðupptökur af lestri slíkra bóka.
  5. Sala á heitu vatni, rafmagni og olíu til hitunar húsa og laugarvatns.
  6. Sala á matvörum og öðrum vörum til manneldis eins og skilgreind er í viðauka við lög um virðisaukaskatt, þó ekki sala áfengi.
  7. Aðgangur að vegamannvirkjum.
  8. Geisladiskar, hljómplötur, segulbönd og aðrir sambærilegir miðlar með tónlist en ekki mynd.
Aðrir skattar
Búnaðargjald Meira
Álagning 2011 1,20%

Gjaldskyldir eru þeir aðilar sem ber skylda til að skrá sig á grunnskrá virðisaukaskatts eða sem skráðir eru og sem stunda rekstur sem fellur undir atvinnugreinanúmer 01 (landbúnaður) og 02 (skógrækt) í atvinnuvegaflokkun Hagstofu Íslands (ÍSAT 2008), þó ekki starfsemi í undirflokkum 01.61, 01.62, 01.63, 01.64, 01.70 og 02.40.

Gjaldstofn er velta búvöru og tengdrar þjónustu hjá gjaldskyldum búvöruframleiðendum.

Til gjaldskyldrar veltu telst skattskyld og undanþegin velta að frádregnu andvirði seldra varanlegra rekstrarfjármuna. (11.-13. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt)

Gjaldið er lagt á samhliða álagningu opinberra gjalda 2011.

Fyrirframgreiðsla upp í væntanlega álagningu 2011 1,20%

Fyrirframgreiðslan er innheimt í ágúst - desember 2011.

Fyrirframgreiðslan nemur samtals 1,2% af búnaðargjaldsstofni 2010.

Jöfnunargjald alþjónustu Meira
Álagning 2011 0,10%

Gjaldið er lagt á fjarskiptafyrirtæki sem starfrækja fjarskiptanet eða þjónustu.

Gjaldstofn er bókfærð velta.

Með bókfærðri veltu er átt við rekstrartekjur sem fjarskiptafyrirtæki hefur af umræddri starfsemi hér á landi.

Fyrirframgreiðsla upp í væntanlega álagningu 2011 8,50%

Fyrirframgreiðslan er innheimt í febrúar - september 2011.

Fyrirframgreiðslan nemur 8,5% af álögðu jöfnunargjaldi alþjónustu 2010 á hverjum gjalddaga. Samtals nemur fyrirframgreiðslan því 68% af jöfnunargjaldi alþjónustu ársins 2010.

Launatengd gjöld
Tryggingagjald og önnur launatengd gjöld

Gjaldskyldir eru þeir sem greiða laun.

Stofn til tryggingagjalds er allar tegundir launa eða þóknana fyrir starf, hverju nafni sem nefnist, þ.m.t. framlag launagreiðanda í lífeyrissjóð, ökutækjastyrkir og dagpeningar umfram skattmat skattyfirvalda.

Tryggingagjald er samsett úr atvinnutryggingagjaldi og almennu tryggingagjaldi. Önnur launatengd gjöld er gjald í Ábyrgðasjóð launa v/gjaldþrota og markaðsgjald

Nánari upplýsingar um tryggingagjald.

Þegar samanlagður gjaldstofn er innan við kr. 504.000 á árinu, er heimilt að senda skilagrein ásamt greiðslu einu sinni á ári eins og um uppgjör fyrir desember væri að ræða. Gjalddagi greiðslu er þá 1. janúar 2011 vegna tekjuársins 2010 og eindagi 14 dögum síðar.

Almennt
Álagning 2011 vegna tekjuárs 2010 8,65%
Staðgreiðsla 2011 8,65%
Launþegar með E-101

Um er að ræða erlenda aðila sem heimilisfastir eru innan EES eða ESB er framvísa E-101 vottorði.

Álagning 2011 vegna tekjuárs 2010 0,632%
Staðgreiðsla 2011 0,632%
Sérstök viðbót vegna sjómanna
Álagning 2011 vegna tekjuárs 2010 0,650%
Staðgreiðsla 2011 0,650%
Mótframlag atvinnurekanda í lífeyrissjóð
Mótframlag 8,00%
Mótframlag atvinnurekanda vegna viðbótarlífeyrissparnaðar að lágmarki 2,00%
Fyrningar og niðurfærsla eigna
Lausafé
Skip, skipsbúnaður og fólksbifreiðar 10 - 20%
Loftför og fylgihlutir 10 - 20%
Verksmiðjuvélar, iðnaðarvélar og tæki 10 - 30%
Skrifstofuáhöld og tæki 20 - 35%
Aðrar vélar, tæki og bifreiðar 20 - 35%

Aðrar fyrnanlegar eignir
Íbúðar-, skrifstofu- og verslunarhúsnæði 1 - 3%
Verksmiðju- og verkstæðishúsnæði, vörugeymslur o.fl. 3 - 6%
Gróðurhús og bryggjur 6 - 8%
Borholur, raflínur og óvaranlegar vinnubúðir 7,5 - 10%
Keyptur eignarréttur að hugverkum og auðkennum 15 - 20%
Keypt viðskiptavild 10 - 20%

Einstaklingar

  • Helstu tölur
  • Staðgreiðsla opinberra gjalda
  • Álagning

Einstaklingar í rekstri

  • Staðgreiðsla opinberra gjalda

Lögaðilar

  • Staðgreiðsla opinberra gjalda

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook