Forsíða  > Fagaðilar  > Helstu tölur  > Helstu tölur rekstur 2011
Veftré   A- A+

Opinber gjöld einstaklinga með rekstur 2011

Staðgreiðsla opinberra gjalda 2011
Staðgreiðsla 37,31 / 40,21 / 46,21%

Staðgreiðslan samanstendur af tekjuskatti og útsvari. Útsvar í staðgreiðslu er 14,41%. Tekjuskatturinn er þrepaskiptur, sbr. eftirfarandi töflu.

Tekjuskattstofn Tekjuskattur Staðgreiðsla
kr. 0-209.400 22,9% 37,31%
kr. 209.401-650.000 25,8% 40,21%
Af fjárhæð umfram kr. 680.550- 31,8% 46,21%

Vikulaun:

Þegar laun eru greidd vikulega skal reikna staðgreiðslu skatta af launum sem hér segir:

Tekjuskattstofn Staðgreiðsla
Allt að kr. 48.190 37,31%
Af kr. 48.191 - 156.619 40,21%
Af launum umfram kr. 156.619 46,21%

Ef laun eru breytileg er heimilt að jafna þeim milli vikna, innan mánaðarins, þannig að staðgreiðsla mánaðarins verði rétt. Tilfærsla á milli mánaða í staðgreiðslu er ekki heimil. Sjá þó undantekningar í reglugerð nr. 111/2010, um innheimtuhlutfall launa í staðgreiðslu.

Launþegum sem þiggja laun frá fleiri en einum launagreiðanda ber að upplýsa launagreiðanda um það við hvaða skattþrep skuli miða við útreikning á staðgreiðslu skatta.

Frá reiknuðum tekjuskatti er dreginn persónuafsláttur. Launþegar sem stunda sjómannsstörf á íslensku skipi eða skipi sem gert er út af íslensku skipafélagi fá einnig sjómannaafslátt dreginn frá.

Hlutfall útsvars er mismunandi eftir sveitarfélögum. Hlutfall útsvars í staðgreiðslu er þó það sama á öllu landinu. Um er að ræða bráðabirgðagreiðslu upp í útsvar í álagningu. Mismunur kann því að vera milli staðgreiðslu og álagningar. Við álagningu er gerð krafa um greiðslu mismunar eða hann endurgreiddur, eftir því sem við á. Í upplýsingaveitu á upplýsingavef Sambands íslenskra sveitarfélaga má finna útsvar allra sveitarfélaga.

Útsvar er greitt til þess sveitarfélags þar sem viðkomandi átti lögheimili 31. desember 2010.

Stofn til útreiknings tekjuskatts og útsvars er hvers kyns endurgjald fyrir vinnu að teknu tilliti til þess frádráttar sem heimilaður er með lögum. Sem dæmi um endurgjald fyrir vinnu eru laun, hlunnindi, styrkir og reiknað endurgjald sem og lífeyrisgreiðslur, bætur og styrkir sem ekki eru sérstaklega undanþegin með lögum. Heimilaður frádráttur frá tekjum er m.a. lífeyrissjóðsiðgjald og frádráttur á móti ökutækjastyrk og dagpeningum eða hliðstæðum endurgreiðslum á kostnaði sem sannað er að séu ferða- og dvalarkostnaður vegna atvinnurekanda og eru í samræmi við matsreglur fjármálaráðherra.

Staðgreiðsla manna með takmarkaða skattskyldu vegna launa 37,31 / 40,21 / 46,21%

Staðgreiðslan samanstendur af tekjuskatti og útsvari. Útsvar í staðgreiðslu er 14,41%. Tekjuskatturinn er þrepaskiptur, sbr. eftirfarandi töflu.

Tekjuskattstofn Tekjuskattur Staðgreiðsla
kr. 0-209.400 22,9% 37,31%
kr. 209.401-680.550 25,8% 40,21%
kr. 680.551 - 31,8% 46,21%

Vikulaun:

Þegar laun eru greidd vikulega skal reikna staðgreiðslu skatta af launum sem hér segir:

Tekjuskattstofn Staðgreiðsla
Allt að kr. 48.190 37,31%
Af kr. 48.191 - 156.619 40,21%
Af launum umfram kr. 156.619 46,21%

Ef laun eru breytileg er heimilt að jafna þeim milli vikna, innan mánaðarins, þannig að staðgreiðsla mánaðarins verði rétt. Tilfærsla á milli mánaða í staðgreiðslu er ekki heimil. Sjá þó undantekningar í reglugerð nr. 111/2010, um innheimtuhlutfall launa í staðgreiðslu.

Menn sem koma til Íslands til tímabundinna starfa, þ.e. skemur en 6 mánuði á 12 mánaða tímabili, bera takmarkaða skattskyldu vegna tekna sem þeir afla hér á landi.

Með tekjum er átt við laun, starfstengdar greiðslur, hlunnindi o.s.frv.

Við álagningu er tekið tillit til persónuafsláttar og sjómannaafsláttar hjá þeim sem stunda sjómannsstörf.

Einstaklingar sem búsettir eru á einhverju öðru Norðurlandanna greiða fullan tekjuskatt og útsvar hérlendis vegna eftirlauna eða lífeyrisgreiðslna frá Íslandi. Tekið er tillit til persónuafsláttar á móti slíkum greiðslum. Sama á við um einstaklinga sem búsettir eru í landi sem ekki hefur gert tvísköttunarsamning við Ísland. Að öðru leyti gilda ákvæði tvísköttunarsamninga ef einstaklingur er búsettur í ríki sem gert hefur tvísköttunarsamning við Ísland.

RSK 12.10 - Að starfa á Íslandi tímabundið (242 kb)

Hlutfall útsvars er mismunandi eftir sveitarfélögum. Hlutfall útsvars í staðgreiðslu er þó það sama á öllu landinu. Um er að ræða bráðabirgðagreiðslu upp í útsvar í álagningu. Mismunur kann því að vera milli staðgreiðslu og álagningar. Við álagningu er gerð krafa um greiðslu mismunar eða hann endurgreiddur, eftir því sem við á. Í upplýsingaveitu á upplýsingavef Sambands íslenskra sveitafélaga má finna útsvar allra sveitafélaga.

Útsvar manna er bera takmarkaða skattskyldu er greitt til þess sveitarfélags þar sem meirihluta tekna var aflað.

Stofn til útreiknings tekjuskatts og útsvars er hvers kyns endurgjald fyrir vinnu að teknu tilliti til þess frádráttar sem heimilaður er með lögum. Sem dæmi um endurgjald fyrir vinnu eru laun, hlunnindi, styrkir og reiknað endurgjald sem og lífeyrisgreiðslur, bætur og styrkir sem ekki eru sérstaklega undanþegin með lögum. Heimilaður frádráttur frá tekjum er m.a. lífeyrissjóðsiðgjald og frádráttur á móti ökutækjastyrk og dagpeningum eða hliðstæðum endurgreiðslum á kostnaði sem sannað er að séu ferða- og dvalarkostnaður vegna atvinnurekanda og eru í samræmi við matsreglur fjármálaráðherra.Stofn til útreiknings tekjuskatts og útsvars er hvers kyns endurgjald fyrir vinnu að teknu tilliti til þess frádráttar sem heimilaður er með lögum. Sem dæmi um endurgjald fyrir vinnu eru laun, hlunnindi, styrkir og reiknað endurgjald sem og lífeyrisgreiðslur, bætur og styrkir sem ekki eru sérstaklega undanþegin með lögum. Heimilaður frádráttur frá tekjum er m.a. lífeyrissjóðsiðgjald og frádráttur á móti ökutækjastyrk og dagpeningum eða hliðstæðum endurgreiðslum á kostnaði sem sannað er að séu ferða- og dvalarkostnaður vegna atvinnurekanda og eru í samræmi við matsreglur fjármálaráðherra.

Staðgreiðsla manna með takmarkaða skattskyldu vegna þjónustu / starfsemi sem innt er af hendi hér á landi og launa manna sem ekki dvelja hér á landi 32,41%
Tekjuskatt 18,00%
Útsvar í staðgreiðslu 14,41%

Tekjur sem skattlagðar eru með 18% tekjuskatti:

Laun, t.d. stjórnarlaun, eða hliðstæðar greiðslur frá íslenskum aðilum til manna sem ekki dvelja hér á landi.

Greiðslur og þóknanir sem skattlagðar eru með 18% tekjuskatti

Greiðslur eða þóknanir til manna, listamanna eða annarra, sem koma fram í atvinnuskyni til skemmtunar og/eða í hvers konar keppni. Njóti menn afraksturs af starfsemi í stað ákveðinna launa eða þóknunar, skal greiða 10% tekjuskatt af heildartekjum án nokkurs frádráttar.

Greiðslur eða þóknanir til lögaðila vegna listamanna eða annarra sem koma fram í atvinnuskyni til skemmtunar eða í hvers konar keppni.

Greiðslur til sjálfstætt starfandi manna fyrir aðra þjónustu og starfsemi.

Greiðslur til lögaðila fyrir aðra þjónustu og starfsemi.

Nánari upplýsingar um takmarkaða skattskyldu.

Staðgreiðsla barna af tekjum umfram 100.745 kr. 6,00%
Tekjuskatt 4,00%
Útsvar 2,00%

Börn sem fædd eru 1996 og síðar og ná því ekki 16 ára aldri á árinu 2011 greiða 6% skatt án persónuafsláttar af tekjum sínum umfram 100.745.

Á skilagreinum RSK 5.12 og sundurliðunum RSK 5.06 skal tiltaka heildarlaun án tillits til frádráttar.

Börn fá engan persónuafslátt og fá því ekki útgefið skattkort.

Fjármagnstekjuskattur 20,00%

Stofn til útreiknings skatts á fjármagnstekjur er m.a. vaxtatekjur, verðbætur, afföll, gengishagnaður, arður af hlutabréfum, leigutekjur og skattskyldur söluhagnaður.

Hvorki er lagt á útsvar né önnur gjöld á fjármagnstekjur.

Fjármálafyrirtækjum ber að draga staðgreiðslu af vaxtatekjum og afföllum. Félögum með takmarkaða ábyrgð og samvinnufélögum ber að draga staðgreiðslu af arði. Aðrar tekjur er mynda stofn til fjármagnstekjuskatts einstaklinga eru skattlagðir við álagningu opinberra gjalda næsta ár á eftir tekjuári.

Frá reiknuðum skatti á fjármagnstekjur dragast 18/37 af þeim persónuafslætti sem ekki hefur verið nýttur með öðrum hætti.

Uppgjör staðgreiðslu við álagningu

20% staðgreiðsla er innheimt af öllum staðgreiðsluskyldum fjármagnstekjum á árinu 2011, þ.e. arði og vaxtatekjum.

Frítekjumark fjármagnstekna í álagningu 2012

Frítekjumark vegna vaxtatekna er kr. 100.000 á ári á mann. (200.000 kr. á ári hjá hjónum)
Frítekjumark vegna leigutekna manna af íbúðarhúsnæðis er 30% af leigutekjum.
Frítekjumark gildir ekki um arð, söluhagnað og leigutekjur af öðru en íbúðarhúsnæði.

Nánari upplýsingar um fjármagnstekjuskatt.

Skattleysismörk – á mánuði. kr. 123.419
Skattleysismörk á mánuði kr. 123.419
Skattleysismörk á ári kr. 1.481.028

Tekið er tillit til 4% iðgjalds í lífeyrissjóð.

Persónuafsláttur
Persónuafsláttur á ári 530.466 kr.
Persónuafsláttur á ári. kr. 530.466
Persónuafsláttur á mánuði. kr. 44.205

Hjá hjónum færist allur óráðstafaður persónuafsláttur til maka og kemur til lækkunar á reiknuðum tekjuskatti eða gengur til greiðslu á útsvari. Sama gildir um sambúðarfólk sem hefur heimild til samsköttunar og skilar sameiginlegu skattframtali.Skili sambúðar fólk ekki sameiginlegu skattframtali millifærist persónuafsláttur ekki.

Börn yngri en 16 ára fá ekki persónuafslátt. Miðað er við almanaksár (börn fædd 1995 eða síðar).

Eftirlifandi maki getur nýtt persónuafslátt hins látna í níu mánuði eftir andlát að andlátsmánuðinum meðtöldum.

Til að menn geti nýtt sér persónuafslátt við ákvörðun á staðgreiðslu á tekjuárinu þarf að afhenda launagreiðanda skattkort sitt.

Persónuafsláttur reiknast eingöngu þann tíma sem einstaklingur er heimilisfastur hérlendis.

Ákvarða skal persónuafslátt launatímabils þannig:

Kr. 530.466 / 365 x dagafjöldi launatímabils.

Nánari upplýsingar um persónuafslátt.

Sjómannaafsláttur á dag 740 kr.

Sjómannaafsláttur sem ekki nýtist á móti tekjuskatti fellur niður.

Nánari upplýsingar um sjómannaafslátt.

Virðisaukaskattur og aðrir skattar
Virðisaukaskattur

Virðisaukaskattur er greiddur af viðskiptum innanlands á öllum stigum, svo og af innflutningi vöru og þjónustu.

Meginreglan er sú að uppgjörstímabil taki til tveggja mánaða.

Gjalddagi er einum mánuði og fimm dögum eftir lok hvers uppgjörstímabils, t.d. er 5. apríl gjalddagi vegna tímabilsins janúar-febrúar.

Veltumark ársskila miðast við kr. 1.400.000, þó miðast leiðréttingarskylda innan ársins við kr. 3.000.000. Þó svo velta aðila sé undir kr. 1.400.000 skal hann ekki færast í ársskil ef reiknað endurgjald eða meðallaun sem greidd hafa verið samkvæmt skilagreinum staðgreiðslu eru kr. 100.000 eða hærri á mánuði.

Beri gjalddaga upp á helgidag eða almennan frídag færist gjalddagi á næsta virkan dag á eftir.

Eftirtalin vinna og þjónusta er undanþegin virðisaukaskatti:

  1. Heilbrigðisþjónusta
  2. Félagsleg þjónusta
  3. Rekstur skóla og menntastofnana
  4. Menningarstarfsemi
  5. Íþróttastarfsemi
  6. Fólksflutningar
  7. Póstþjónusta
  8. Fasteignaleiga
  9. Vátryggingarstarfsemi
  10. Banka- og lánastarfsemi
  11. Happdrætti og getraunastarfsemi
  12. Liststarfsemi
  13. Þjónusta ferðaskrifstofa
  14. Útfarar- og prestþjónusta

Aðilar með lítinn rekstur eru ekki virðisaukaskattsskyldir (skráningarskyldir) samkvæmt lögum um virðisaukaskatt. Þeir eiga þó kost á að skrá sig á virðisaukaskattsskrá. Kjósi aðili með lítinn rekstur að standa utan virðisaukaskattsskrár innheimtir hann ekki virðisaukaskatt (útskatt) af sölu og getur ekki nýtt sér innskattsfrádrátt af aðföngum til starfseminnar.

Aðilar með lítinn rekstur:

Þeir sem selja skattskylda vöru eða þjónustu fyrir minna en kr. 1.000.000 á hverju 12 mánaða tímabili eru undanþegnir skattskyldu.

Þeir sem hafa verið skráðir á virðisaukaskattsskrá falla ekki sjálfkrafa af skrá þó velta verði á einhverju 12 mánaða tímabili undir lágmarki. Beina skal beiðni um afskráningu til ríkisskattstjóra.

Nánari upplýsingar um virðisaukaskatt.

Almennt skattþrep 25,50%
Lægra skattþrep 7,00%

Vörur og þjónusta í lægra skattþrepi eru eftirfarandi:

  1. Útleiga hótel- og gistiherbergja og önnur gistiþjónusta.
  2. Afnotagjald útvarpsstöðva.
  3. Sala tímarita, dagblaða og landsmála- og héraðsfréttablaða.
  4. Sala bóka, jafnt frumsaminna sem þýddra, sem og hljóðupptökur af lestri slíkra bóka.
  5. Sala á heitu vatni, rafmagni og olíu til hitunar húsa og laugarvatns.
  6. Sala á matvörum og öðrum vörum til manneldis eins og skilgreind er í viðauka við lög um virðisaukaskatt, þó ekki sala áfengi.
  7. Aðgangur að vegamannvirkjum.
  8. Geisladiskar, hljómplötur, segulbönd og aðrir sambærilegir miðlar með tónlist en ekki mynd.
Aðrir skattar
Búnaðargjald Meira
Álagning 2011 1,20%

Gjaldskyldir eru þeir aðilar sem ber skylda til að skrá sig á grunnskrá virðisaukaskatts eða sem skráðir eru og sem stunda rekstur sem fellur undir atvinnugreinanúmer 01 (landbúnaður) og 02 (skógrækt) í atvinnuvegaflokkun Hagstofu Íslands (ÍSAT 2008), þó ekki starfsemi í undirflokkum 01.61, 01.62, 01.63, 01.64, 01.70 og 02.40.

Gjaldstofn er velta búvöru og tengdrar þjónustu hjá gjaldskyldum búvöruframleiðendum.

Til gjaldskyldrar veltu telst skattskyld og undanþegin velta að frádregnu andvirði seldra varanlegra rekstrarfjármuna. (11.-13. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt)

Gjaldið er lagt á samhliða álagningu opinberra gjalda 2011.

Fyrirframgreiðsla upp í væntanlega álagningu 2011 1,20%

Fyrirframgreiðslan er innheimt í ágúst - desember 2011.

Fyrirframgreiðslan nemur samtals 1,2% af búnaðargjaldsstofni 2010.

Jöfnunargjald alþjónustu Meira
Álagning 2011 0,10%

Gjaldið er lagt á fjarskiptafyrirtæki sem starfrækja fjarskiptanet eða þjónustu.

Gjaldstofn er bókfærð velta.

Með bókfærðri veltu er átt við rekstrartekjur sem fjarskiptafyrirtæki hefur af umræddri starfsemi hér á landi.

Fyrirframgreiðsla upp í væntanlega álagningu 2011 8,50%

Fyrirframgreiðslan er innheimt í febrúar - september 2011.

Fyrirframgreiðslan nemur 8,5% af álögðu jöfnunargjaldi alþjónustu 2010 á hverjum gjalddaga. Samtals nemur fyrirframgreiðslan því 68% af jöfnunargjaldi alþjónustu ársins 2010.

Launatengd gjöld
Tryggingagjald og önnur launatengd gjöld

Gjaldskyldir eru þeir sem greiða laun.

Stofn til tryggingagjalds er allar tegundir launa eða þóknana fyrir starf, hverju nafni sem nefnist, þ.m.t. framlag launagreiðanda í lífeyrissjóð, ökutækjastyrkir og dagpeningar umfram skattmat skattyfirvalda.

Tryggingagjald er samsett úr atvinnutryggingagjaldi og almennu tryggingagjaldi. Önnur launatengd gjöld er gjald í Ábyrgðasjóð launa v/gjaldþrota og markaðsgjald

Nánari upplýsingar um tryggingagjald.

Þegar samanlagður gjaldstofn er innan við kr. 504.000 á árinu, er heimilt að senda skilagrein ásamt greiðslu einu sinni á ári eins og um uppgjör fyrir desember væri að ræða. Gjalddagi greiðslu er þá 1. janúar 2011 vegna tekjuársins 2010 og eindagi 14 dögum síðar.

Almennt
Álagning 2011 vegna tekjuárs 2010 8,65%
Staðgreiðsla 2011 8,65%
Launþegar með E-101

Um er að ræða erlenda aðila sem heimilisfastir eru innan EES eða ESB er framvísa E-101 vottorði.

Álagning 2011 vegna tekjuárs 2010 0,632%
Staðgreiðsla 2011 0,632%
Sérstök viðbót vegna sjómanna
Álagning 2011 vegna tekjuárs 2010 0,650%
Staðgreiðsla 2011 0,650%
Mótframlag atvinnurekanda í lífeyrissjóð
Mótframlag 8,00%
Mótframlag atvinnurekanda vegna viðbótarlífeyrissparnaðar að lágmarki 2,00%
Fyrningar og niðurfærsla eigna
Lausafé
Skip, skipsbúnaður og fólksbifreiðar 10 - 20%
Loftför og fylgihlutir 10 - 20%
Verksmiðjuvélar, iðnaðarvélar og tæki 10 - 30%
Skrifstofuáhöld og tæki 20 - 35%
Aðrar vélar, tæki og bifreiðar 20 - 35%

Aðrar fyrnanlegar eignir
Íbúðar-, skrifstofu- og verslunarhúsnæði 1 - 3%
Verksmiðju- og verkstæðishúsnæði, vörugeymslur o.fl. 3 - 6%
Gróðurhús og bryggjur 6 - 8%
Borholur, raflínur og óvaranlegar vinnubúðir 7,5 - 10%
Keyptur eignarréttur að hugverkum og auðkennum 15 - 20%
Keypt viðskiptavild 10 - 20%

Einstaklingar

  • Helstu tölur
  • Staðgreiðsla opinberra gjalda
  • Álagning

Einstaklingar í rekstri

  • Staðgreiðsla opinberra gjalda

Lögaðilar

  • Staðgreiðsla opinberra gjalda

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook