Um ársreikningaskrá
Ársreikningaskrá er starfrækt samkvæmt lögum nr. 3/2006, um ársreikninga. Í X. kafla laganna, 109. – 117. gr., eru ákvæði um skyldu allra hlutafélaga, einkahlutafélaga, samlagshlutafélaga og samvinnufélaga að leggja fram ársreikninga sína, og samstæðureikninga þegar það á við, hjá ársreikningaskrá til opinberrar birtingar. Enn fremur eru sameignarfélög skilaskyld ef félögin eru í eigu framangreindra skilaskyldra félaga eða ef þau fara yfir stærðarmörk eigna, veltu og ársverka sem tiltekin eru í 2. tölul. 1. gr. laganna án tillits til eignaraðildar.
Skilafrestur á ársreikningi er eigi síðar en einum mánuði eftir samþykkt hans en þó eigi síðar en átta mánuðum eftir lok reikningsárs en félög, sem hafa hlutabréf sín eða skuldabréf skráð á opinberu verðbréfaþingi, skulu þó senda ársreikninga þegar í stað eftir samþykkt þeirra en þó eigi síðar en sex mánuðum eftir lok reikningsárs. Skilaskylda á samstæðureikningi hvílir einnig hjá móðurfélagi samstæðu.
Reglugerðin um skil og birtingu ársreikninga er nr. 664/2008. Samkvæmt 8. gr. hennar skal veita almenningi aðgang að ársreikningunum. Heimilt er að selja ljósrit af ársreikningunum gegn gjaldi, sbr. lög um aukatekjur ríkissjóðs, og er gjaldið 150 kr. á hverja blaðsíðu.
Reglugerðin um framsetningu og innihald ársreikninga og samstæðureikinga er nr. 696/1996, með áorðnum breytingum.
Reglugerðin um framsetingu ársreikninga í samandregnu formi er nr. 694/1996, með áorðnum breytingum.
Ársreikningur skal innihalda, sbr. reglur nr. 1220/2007, um rafræn skil ársreikninga til ársreikningaskrár, rekstrar- og efnahagsreikning, sjóðstreymi, skýringar og athugasemdir og áritun endurskoðanda/skoðunarmanns ásamt undirritaðri skýrslu stjórnar með nöfnum hluthafa sem eiga 10% eða hærri eignarhluta. Á forsíðu skal koma fram skráð nafn félagsins, kennitala og póstfang (sveitarfélag) ásamt áritun um dagsetningu aðalfundar.
Ársreikningaskrá hefur verið starfrækt frá og með rekstrarárinu 1995.
