Tilkynningar til fyrirtækjaskrár um breytingar
Breytingar hjá fyrirtækjum eða félögum á póstfangi, nafni, stjórn, prókúru, hækkun eða lækkun á hlutafé o.fl. ber að tilkynna fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.
Allar breytingar skal tilkynna skriflega. Tilkynningar þurfa að vera undirritaðar af meirihluta stjórnar eða skráðum prókúruhafa. Nýir aðilar í stjórn þurfa alltaf að staðfesta stjórnarsetu sína með eiginhandarundirritun. Ef breytingar eru á samþykktum félaga þurfa þær að fylgja með í heild sinni. Tilkynningargjald (sjá gjaldskrá) staðgreiðist eða leggist inn á reikning fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra.
Einnig er hægt að tilkynna breytingar á eftirfarandi eyðublöðum. Tilkynningargjald er 2.650 kr. og staðgreiðist eða leggist inn á reikning fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra. Ljósrit af kvittun þarf að fylgja tilkynningunni.
Hér er hægt að nálgast eyðublöð Fyrirtækjaskrár, m.a. vegna breytinga.
Hér er hægt að nálgast leiðbeiningar Fyrirtækjaskrár, vegna breytinga.
