Einkahlutafélag (ehf) einn stofnandi
Sjá nánar í XVII. kafla einkahlutafélagalaga.
Stofngögn sem leggja þarf inn til skráningar eru auk tilkynningareyðublaðs, stofnskrá, stofngerð og samþykktir. Æskilegt er að stofngögn séu gerð í þremur eintökum; eitt fer til fyritækjaskrár ríkisskattstjóra, annað til viðkomandi skattstjóra í þeim tilvikum sem skylt er að tilkynna um starfsemi félagsins á virðisaukaskattsskrá og þriðja eintakið fyrir félagið sjálft.
Þegar einn aðili stofnar einkahlutafélag er ekki talað um stofnsamning heldur stofnskrá og ekki talað um stofnfundargerð heldur stofngerð. Ekki eru gefin út hlutabréf í einkahlutafélagi heldur er talað um hluti eða hlutaskírteini.
Eftirfarandi er:
- Sýnishorn af stofngögnum í Word, hægt er að breyta og aðlaga að eigin þörfum, síðan prenta út og undirrita.
- Eyðublaðið "Tilkynning um stofnun einkahlutafélags - RSK 17.21"
- Leiðbeiningar RSK 17.71 með tilkynningareyðublaði. Gott er að prenta leiðbeiningarnar út og hafa til hliðsjónar þegar tilkynningareyðublaðið er fyllt út.
Lágmarkshlutafé skal vera 500.000 kr. Skal allt hlutafé vera greitt við stofnun félagsins. Ef hlutafé er greitt í öðru en peningum skal koma staðfesting frá lögmanni eða löggiltum endurskoðanda um að viðkomandi eign sé til staðar. Hlutur félags er í höndum eins aðila. Hlutabréf eru ekki gefin út í einkahlutafélagi.
Skila þarf inn útfylltu tilkynningarblaði til fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra ásamt stofngögnum þ.e.:
- Samþykktum - undirrituðum af meirihluta stjórnar.
- Stofnskrá - undirritaðri af stofnanda.
- Stofngerð - undirritaðri af stofnanda.
Gæta þarf þess að:
- Tilkynningarblað sé fyllt út í samræmi við stofngögn.
- Rithandarsýnishorn séu rétt.
- Allar undirskriftir séu réttar.
Tilkynningareyðublað skal undirritað af öllum stjórnarmönnum og skulu undirskriftir staðfestar af tveimur vottum, lögmanni, eða löggiltum endurskoðanda.
Kennitala verður til við skráningu félags. ÍSAT-númer (íslensk atvinnugreinaflokkun) er skráð við stofnun samkvæmt upplýsingum stofnenda um aðalstarfsemi félagsins.
Kostnaður við skráningu einkahlutafélags greiðist við afhendingu gagna (sjá gjaldskrá).

