Forsíða  > Fyrirtækjaskrá  > Félög, stofnun og breytingar  > Einkahlutafélag  > Einkahlutafélag margir stofnendur
Veftré   A- A+

Einkahlutafélag (ehf) margir stofnendur

Sjá nánar í XVII. kafla einkahlutafélagalaga.

Stofngögn sem leggja þarf inn til skráningar eru auk tilkynningareyðublaðs, stofnskrá, stofngerð og samþykktir. Æskilegt er að stofngögn séu gerð í þremur eintökum; eitt fer til fyritækjaskrár ríkisskattstjóra, annað til viðkomandi skattstjóra í þeim tilvikum sem skylt er að tilkynna um starfsemi félagsins á virðisaukaskattsskrá og þriðja eintakið fyrir félagið sjálft.

Ekki eru gefin út hlutabréf í einkahlutafélagi heldur er talað um hluti eða hlutaskírteini.

Eftirfarandi er:

Lágmarkshlutafé skal vera 500.000 kr. Skal allt hlutafé vera greitt við stofnun félagsins. Ef hlutafé er greitt í öðru en peningum skal koma staðfesting frá lögmanni eða löggiltum endurskoðanda um að viðkomandi eign sé til staðar. Hlutir félags eru í höndum fleiri en eins aðila. Hlutabréf eru ekki gefin út í einkahlutafélagi.

Skila þarf inn útfylltu tilkynningarblaði til fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra ásamt stofngögnum þ.e.:

  • Samþykktum - undirrituðum af meirihluta stjórnar.
  • Stofnskrá - undirritaðri af stofnanda.
  • Stofngerð - undirritaðri af stofnanda.

Gæta þarf þess að:

  • Tilkynningarblað sé fyllt út í samræmi við stofngögn.
  • Rithandarsýnishorn séu rétt.
  • Allar undirskriftir séu réttar.

Tilkynningareyðublað skal undirritað af öllum stjórnarmönnum og skulu undirskriftir staðfestar af tveimur vottum, lögmanni, eða löggiltum endurskoðanda.

Kennitala verður til við skráningu félags. ÍSAT-númer (íslensk atvinnugreinaflokkun) er skráð við stofnun samkvæmt upplýsingum stofnenda um aðalstarfsemi félagsins.

Kostnaður við skráningu einkahlutafélags greiðist við afhendingu gagna (sjá gjaldskrá).

Vantar þig aðstoð?

  • Senda fyrirspurn á fyrirtaekjaskra@rsk.is
  • Hringdu í fyrirtækjaskrá 442-1250

    Opið 9:30 - 15:30 virka daga

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook