Skráning sjálfseignarstofnunar (ses) í atvinnurekstri
Sjá nánar 37. gr. laga um sjálfseignarstofnanir í atvinnurekstri.
Stofngögn sem leggja þarf inn til skráningar eru auk tilkynningareyðublaðs, stofnfundargerð og samþykktir (skipulagsskrá). Stofngögn skulu undirrituð af stjórn. Æskilegt er að stofngögn séu gerð í þremur eintökum; eitt fer til fyritækjaskrár ríkisskattstjóra, annað til viðkomandi skattstjóra í þeim tilvikum sem skylt er að tilkynna um starfsemi félagsins á virðisaukaskattsskrá og þriðja eintakið fyrir félagið sjálft.
Eftirfarandi er:
- Sýnishorn af stofngögnum. Sýnishornið er í Word skjali sem hægt er að breyta og aðlaga að eigin þörfum, síðan prenta út og undirrita.
- Sýnishorn af stofnfundargerð.
- Eyðublaðið "Tilkynning um sjálfseignarstofnun í atvinnurekstri - RSK 17.22
Lágmarksstofnfé skal vera 1.000.000 kr.
Gæta þarf þess að:
- Tilkynningarblað sé fyllt út í samræmi við stofngögn.
- Rithandarsýnishorn séu rétt.
- Allar undirskriftir séu réttar.
Kennitala verður til við skráningu félags. ÍSAT-númer (íslensk atvinnugreinaflokkun) er skráð við stofnun samkvæmt upplýsingum stofnenda um aðalstarfsemi félagsins.
Kostnaður við skráningu sjálfseignarstofnunar í atvinnurekstri greiðist við afhendingu gagna (sjá gjaldskrá).
