Stofnun útibús erlends félags á Íslandi
- hlutafélags eða einkahlutafélags
Erlent félag sem vill stofna útibú á íslandi þarf að koma tilkynningu til fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra með eftirfarandi upplýsingum:
| 1. Heiti útibús | Heiti útibúsins skal vera nafn erlenda félagsins að viðbættu: útibú á Íslandi. Dæmi: Ef félag heitir Hydro Pro Ltd., þá verður heiti útibúsins: Hydro Pro Ltd., útibú á Íslandi. |
| 2. Heimilisfang á Íslandi | |
| 3. Tilgangur útibúsins | |
| 4. Útibússtjóri | Nafn, kenntala og heimilisfang. |
| 5. Firmaritun/prókúruumboð | Útibússtjóri skuldbindur félagið skv. lögum (sjá 2. mgr. 140. gr. hfl), en félagsstjórn getur jafnframt veitt prókúruumboð. |
| Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma um erlenda félagið sem er stofnandi: | |
| 6. Stofnandi | Nafn, lögheimili, skráningarnúmer og skráningardagur. |
| 7. Lagalegt form | Rekstrarform erlenda félagsins, þ.e. hvort félagið er hlutafélag eða einkahlutafélag. |
| 8. Dagsetning samþykkta | |
| 9. Hlutafé | |
| 10. Tilgangur | |
| 11. Stjórn |
Tilkynningu skal senda til fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra og skal hún undirrituð af útibússtjóra. Eftirfarandi fylgiskjöl þurfa að fylgja tilkynningunni:
- Stofnsamningur og samþykktir erlenda félagsins í íslenskri þýðingu
- Skráningarvottorð, þ.e. staðfesting á skráningu erlenda félagsins í heimalandi þess.
- Búsetuvottorð, þ.e. ef útibússtjóri er búsettur erlendis.
- Starfsumboð. Stjórn erlenda félagsins veitir starfsumboð fyrir útibússtjóra auk prókúruumboðs.
- Ársreikningur, þ.e. síðasti ársreikningur erlenda félagsins.
Kostnaður við skráningu greiðist við afhendingu gagna (sjá gjaldskrá).
