Almenn þjónusta fyrirtækja- og hlutafélagaskrár
Ríkisskattstjóri starfrækir fyrirtækjaskrá.
Fyrirtækjaskrá er safn nokkurra undirskráa og er hlutafélagaskrá þar langstærst. Hún inniheldur upplýsingar um öll einkahlutafélög og hlutafélög sem til eru skráð á Íslandi. Einnig eru skrár um samvinnufélög og sjálfseignarstofnanir í atvinnurekstri húsfélög og ýmiskonar áhugamannafélög.
Nýskráning hlutafélaga, einkahlutafélaga, sjálfseignarstofnana í atvinnurekstri og samvinnufélaga fer fram hjá ríkisskattstjóra, fyrirtækjaskrá. Þangað eru einnig tilkynntar allar breytingar sem verða á skráningarskyldum atriðum hjá félögum í skránni.
Þjónusta sem fyrirtækja- og hlutafélagaskrá veitir:
- Almennum fyrirspurnum er svarað í síma 563 1250 eða á netfang fyrirtaekjaskra@rsk.is.
- Hægt er að fá upplýsingar úr hlutafélagaskrá, afrit af samþykktum og öðrum gögnum félaga. Gefin eru út vottorð með upplýsingunum. Upplýsingar um einkahlutafélög og hlutafélög eru veittar með eftirfarandi hætti:
- Nafn og heimilisfang er gefið upp í síma 563 1250. Einnig er hægt að slá því upp hér.
- Einstaka vottorð eru seld í afgreiðslu eða send í bréfapósti gegn staðgreiðslu.
- Hægt er að komast í reikningsviðskipti ef óskað er.
- Ef þörf er mikil fyrir upplýsingar, er hægt að fá tengingu hjá miðlurum sem gert hafa samning við ríkisskattstjóra um veitingu upplýsinga úr hlutafélagaskrá.
- Hægt er að gerast áskrifandi að hlutafélagaskrá á rafrænan hátt gegnum uppflettikerfi miðlara sem gert hafa samning við ríkisskattstjóra.
- Beintenging eða símtenging við fyrirtækjaskrá fæst hjá Skýrr hf.
Almennar upplýsingar
- Aðsetur fyrirtækja- og hlutafélagaskrár er að Laugavegi 166.
- Afgreiðslu- og símatími er frá 9:30 til 15:30 alla virka daga.
- Síminn er 563 1250 - bréfasíminn er 563 1279
