Forsíða  > Rekstur / Félög  > Bókhald og tekjuskráning  > TS bókhald
Veftré   A- A+

TS-bókhaldskerfi

Rekstraraðilar sem eru ekki með rafræn bókhaldskerfi í skilningi reglugerðar nr. 598/1999, heldur með bókhaldskerfi sem uppfylla ákveðnar öryggiskröfur geta fengið heimild (ts-númer) til að prenta út sölureikninga í einriti.

Fyrirliggjandi í bókhaldi þarf að vera undirrituð yfirlýsing, þess efnis að viðkomandi bókhaldskerfi uppfylli ákveðnar öryggiskröfur, frá seljanda eða hönnuði viðkomandi bókhaldskerfis. ( sjá sýnishorn)

  • Sækja þarf um heimild til ríkisskattstjóra til að prenta út sölureikninga í einriti.
  • Reikningseyðublöðin skulu vera fyrirfram tölusett (áprentuð númer) í samfelldri töluröð.
  • Á sölureikningi í einriti skal koma fram að hann sé prentaður út í einriti skv. heimild ríkisskattstjóra og vísað í ts-númer viðkomandi heimildarbréfs, sbr. 3. mgr. 15. gr. reglugerðar nr. 50/1993.
  • Þessi áritun getur t.d. verið: Sölureikningur þessi er prentaður í einriti skv. heimild ríkisskattstjóra , ts xxx/xx.
  • Einu gildir hvort þessi áletrun er prentuð við útgáfu sölureiknings eða fyrirfram áprentuð á reikningseyðublöðin.

Undirritaðar yfirlýsingar frá seljendum/hönnuðum eftirfarandi bókhaldskerfa, þess efnis að þau uppfylli ákveðnar öryggiskröfur, liggja fyrir hjá embætti ríkisskattstjóra.

  • Alvís
  • Boði/A-FISH software
  • Grettir 8.2
  • Hansa Financials, First Office og Office/2 - útgáfa 3,9 og nýrri
  • ÓpusAllt 4.1.004
  • RJ 2008
  • Snati verk- og fjárhagsbókhald, útgáfa 2004.1.0
  • Stólpi fyrir MS-DOS, útgáfa 2000 og nýrri
  • Stólpi fyrir Windows, útgáfa 2003.1 og nýrri
  • TOK 2001 og nýrri
  • TOK 4,7 og nýrri
  • Xbókhald.is

Notendum þessara kerfa er bent á ákveðin skilyrði sem þeir þurfa að uppfylla til að fá ts-heimild.

Ef óskað er eftir ts-heimild til að prenta út sölureikninga í einriti, fyllið út umsókn

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook